Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1986, Side 21

Læknaneminn - 01.04.1986, Side 21
POSITIVE PRESSURE NEGATIVE PRESSURE OSMOTIC PRESSURE FROM NON-PERMEABLE SOLUTES ULTRAFILTRATION: The movement of FLUID through a membrane caused bv a pressure gradient Mynd 2. Ultrafiltration v.hydrostatísks eða osmótisks þrýstingshalia. vökvahólfi skilunnar og/eða yfir- þrýstingi í blóðhólfi fæst fram sá þrýstingshalli yfir himnuna (trans- membrane pressure (TMP)), sem á- kvarðar vökvatap sjúklingsins í skil- unni (ultrafiltration). Til að fullnægja þörfum misstórra sjúklinga með mismikla vökvasöfnun má kaupa skilur nteð mismikilli af- kastagetu. Á mynd 3 eru sýndar skilugeröir. Algengastar eru nr. 1 og 2: hárpípu og plötuskilur. Blóðskilvökvinn er blandaður úr þykkni (1:34) og er algeng samsetn- ing hans sýnd á töfiu I. Skilvökvinn þjónar þríþættum tilgangi. Honum er í fyrsta lagi ætlað að fjarlægja sem Ilest úrgangsefni úr blóði sjúklings- ins. Nýr skilvökvi er því snauður af öllum slíkum efnum, til þess að þéttnihalli verði sent mestur. í öðru lagi eru skilvökvanum ætlað aö taka viö umframmagni ýmissa jóna. sem líkamanum eru nauðsynleg í hæfilegu magni. Því er þeim bætt í skilvökv- ann í magni sem tryggir að hófiega mikið af þeim skilist gegnum himn- una. Hyperkalentia er oft vandamál og því hentar langfiestum lág þéttni kalíums í skilvökvanum (1,5 mek/1). Loks er skilvökvanum ætlaö að færa sjúkiingnum el'ni, sem hann skortir. en þar er fyrst og fremst um að ræða bíkarbónat og að nokkru kalsíum. Bíkarbónatskorturinn er fylgifiskur metabóliskrar acidósu. Æskilegt væri að bæta bíkarbónati í skilvökvann svo að þéttnihalli yrði inn í blóð sjúklingsins. Sá hængur er á, að nær ógerlegt er að blanda saman í skil- vöðvaþykkninu kalsíum ogbíkarbón- ati án þess að út falli kalsíum-karbó- nat. Því hafa menn gripið til þess að nota acetat í stað bíkarbónats. Acetat- ið flæðir inn í sjúklinginn og brennur niður í koldíoxíð og vatn og acetatið nýtist honum þannig í bíkarbónat. Sumir sjúklingar nýta þó illa acetatið og verður jafnvel illt af. Því eru nú til vélar sent blanda bikarbónati í skil- vökvann „á staðnum" en með nokk- urri fyrirhöfn. Sumum kann að finnast kalsíum- þéttni skilvökvans lág miðað viö að flestir skilunarsjúklingar búa við lágt kalsíum í blóði. Þéttnin í skilvökvanunt er þó ofurlítið hærri en þéttni jónaðs kalsíums í blóði og hækkar því blóðkalsíum ofur- lítið viö skilunina. Blóðöflun er mikilvægur þáttur skilunar því helst þarf aö vera unnt að renna 200-250 ml/mín. af blóði gegnum skiluna. Stóð það langvinnri skilun lengi fyrir þrifunt að varanleg, nægjandi tenging við blóðveitu þekklist ekki. Málið leystist loks með svokölluðu Scribner's skammhlaupi (shunt), en það felst í að teflonrör eru færð inn í slagæð og nálæga bláæð. Við það eru tengdar silastikslöngur sem færðar eru út gegnum húðina og tengdar saman. (Mynd 4). Efni þessi eru svo lítið vefjaertandi að tengin geta enst mánuðum eða árum santan. Við skilun eru slöngurnar teknar í sundur og tengdar blóðslöngum í skiluna. Hættast er við að sýking eyðileggi þessi tengi og verður ntjög að gæta hreinlætis við meðhöndlun þeirra. Þessi tengi hafa nú að mestu verið leyst af hólnri af svokölluðum BrescioCimino fistlum. Þetta eru bein skammhlaup milli slagæðar og bláæðar. (Mynd 4). Er stungið gild- um nálum í bláæöina ofan fistilsins til að afia blóðs og skila því aftur. Þessi tengi þurfa 2-3 vikur til að þroskast, en endast oftast vel. Til eru af fistlum þessum ýmis afbrigði. sum með til- færslu á æðum sem fyrir eru (t.d. LÆKNANEMINN Vms- /i»-38.-39. árg. 19

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.