Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1986, Síða 33

Læknaneminn - 01.04.1986, Síða 33
Tilfelli II Júlíus Valsson læknir og Stefnir S. Guðmundsson læknir Saga Bráðainnlögn 55 ára gamallar konu á Lyflæknisdeild Landakotsspítala vegna höfuðkvala, hita og uppkasta. Konan veiktist fjórum dögunt fyrir innlögn með nefrennsli, hálssærind- um og 39" hita. Fljótlega fór að bera á slæmum höfuðkvölum. Eiginmaður hennar lá einnig veikur heima með svipuð einkenni, en vægari. Fljótlega ettir að veikindin byrjuðu fékk konan til sín heimilislækni. sem útvegaði henni verkja- og hitastillandi stíla (Dolyl). Hafði þetta lítil áhrif á höfuðverkinn og versnaði henni fremur en hitt. Var hún nú slæm af ógleði og kastaði upp 3-4 sinnum á dag. Hafði hún aftur samband við heimilislækni sinn og útvegaði hann símleiðis Doxicyclin töflur og Dol- vipar slíla. Ekki skánaði hún við þessa meðferð. Voru verkirnir nú orönir mjög slæmir í höfðinu. lágu aðallega fram í ennið, í bæði gagn- augu og aftur í hnakka. Fannst henni einnig, sem augun þrútnuðu og sem sjónin væri móðukennd. Ekki var saga um álíka einkenni áður. atropicans cum metaplasia intestin- ale, en engin merki sáust um blæð- ingu. Af hverju stafaði blóðleysið? Hvers konar blóðleysi er um að ræða? Gefa ofantaldar rannsóknarniður- stöður einhverja vísbendingu? Myndir þú gera einhverjar fleiri rannsóknir, hverjar? Heilsufarssaga Konan hef'ur u.þ.b. 40 pk.ár að baki, og fyrir 8 árum greindist hjá henni lungnaþemba. Hefur hún notað Bric- anyl og Becotide úða ásamt TheoDur töflum. Mæðin við áreynslu, en ekki var saga um áreynslubundna brjóst- verki. Saga var um brjóstsviða, sér- staklega ef hún borðaöi feitmeti. Einnig löng saga um dysphagiu og nýlega megrun. Að öðru leyti var heilsufarssagan ekki markverð. Skoðun Mjög grannvaxin 55 ára gömul kona, er veikindaleg, getur varla haldið augunum opnum og kúgast stöðugt. Litarháttur eölilegur. Ekki hnakka- stíf. Ekki stasi á hálsi. Hiti 37.5° við komu. Pupillan vinstra ntegin er víð- ari en sú hægri og ljósstíf. Hún er einnig acentrisk og óregluleg að lögun. Augnhreyfingar eðlilegar. Sclera vinstra megin er mjög rauðleit og conjunctiva þrútin og rauð. Að- spurð kvaðst konan alltaf hafa haft misvíð Ijósop. Við hlustun eru önd- unarhljóð minnkuð beggja vegna, út- öndun dálítið lengd. Stöku önghljóð heyrast. Plús 95/mín. Blóðþrýstingur 180/100. Hjartahlustun eðlileg. Skoðun á kvið leiddi ekkert óeðlilegt í ljós. Rectal exploration eðlil. Neur- ol. skoðun eölil. fyrir utan það sem sagt var um augnskoðunina. Skjald- kirtill þreifast stækkaður og er vinstri lappi stærri og þéttari en sá hægri. Kirtillinn var ekki aumur. Rannsóknir Hb. 174, sökk 16, H.crit 0,502, Hvít blóðkorn 10.7 þús. og þar af 13% stafir, 61% segment, 23% lymphoc- ytar, 3% monocytar. MCV 100, MCH 34.6, Se-Na+ 137 mmól/1, se-Ka+ 4.1 mmól/1, bilirubin 8 micromól/1, alk. fostafasi 33 ein/1, ALAT 1 1 ein/1, gamma-GT 27 ein/ 1. Fólinsýra 10.1 nanomól/1, B12- vítamín 746 pmól/1. S-T4 13.4 pmól/1, S-T3 1.59 nmól/1, S-TSH 2.4 nU/l. Alrnenn þvagrannsókn eðlileg. Daginn eftir koniu var konan mænustungin. Mænuvökvinn reynd- ist eðlilegur m.t.t. frumufjölda, sykurs, próteina og xantochromiu. Seinna kom í ljós að ekki ræktuðust bakteríur úr vökvanum. Nokkur sput- umsýni voru fengin og úr þeim rækt- aðist eðlileg flóra. Teknar voru blóð- ræktanir og reyndust þær neikvæðar. Mæling á Theofyllamini í sermi reyndist undir lækningalegri þéttni: 4.4 microg/ml. Veirutiterar í blóði sýndu við fyrstu mælingar hækkun á titerum fyrir Influenzu af A-stofni (I/ 32), seinni mæling sýndi ennþá meiri hækkun: (1/128). Gerð var spiro- metria og var sj. bæði restrictiv og obstructiv. Vital-Capacitet mældist 1,31, en reiknað 2.781. FEVl/FVC var 50%. Rtg. thorax sýndi lungna- þan en engar íferðir. Röntgenmynd af paranasal sinusum var eðlileg. Hjartalínurit var innan eðlilegra marka. Þrátt fyrir sterk verkjalyf hvarf höfuðverkurinn ekki. Hvað var að konunni? Influenza?, eða liggja ein- hverjir aðrir sjúkdómar að baki? LÆKNANEMINN y.985 - t/i986- 38.-39. árg. 31
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.