Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1986, Page 36

Læknaneminn - 01.04.1986, Page 36
I. Mynd. Skematisk mynd af ólígódendrócyt (0) og nokkrum taugasímum (A) sem hann mýlir (M). Tölurnar vísa til mismunandi máta afinýlingar vegna veirusýk- injíar. I) Rofsýking ólígódendrócyta. 2) Ónæmisviðbrögð gegn veiruvöktum antigenum á frumuhimnu. 3) Bein álirif á mýli vegna sjálfsofnæmis eða ADCC ónæmisviðbragða. 4) „Bystander" afmýling. Sjá nánar í texta. eins um sjúkdóma þar sem mýli eyð- ist án þess að taugasími skemmist og í umfjöllun minni mun ég fylgja þeim skilningi. Veirusýking getur hugsanlega valdið afmýlingu á ýmsa vegu og hefurþað m.a. verið dregið saman af Salazar og samverkamönnum (52), sem hér verður tekið mið af. Tölu- settu liðirnir svara til þeirra talna sem settar eru inná 1. mynd. I. Rofsýking (lylic) óligódendrócyta leiðir að sjálfsögðu lil afmýlingar. Slíkt er vel þekkt við afmýlandi sjúkdóm hjá mönnum, progres- sive multifocal leucoencephalo- pathy (PML) sem kemur fyrir hjá sjúklingum sem eru ónæmisbæld- ir (immunosuppressed). Þar sýkja papova-veirur m.a. oligódendró- cyta, fjölgar í þeim og leiðir það til afmýlingar (72). Líkur hafa verið færðar að því að slíkt geti átt þátt í afmýlingu í visnu (60). 2. Breyting á frumuhimnu óligó- dendrócyta vegna veirusýkingar getur valdiö ónæmissvörun gegn ólígódendrócytum og leitt til af- mýlingar. Þar koma veirur eins og visnuveira, sem myndast með knappskoti (budding) frá yfirborði frtfma, mjög til greina. 3. Sjálfsofnæmi gegn mýlisprotein- um gæti orðið þegar þau losna vegna veirusýkingar og afmýling síðan orðið vegna ónæmisvið- bragða gegn mýli. Einnig gæti næming (sensitization) gegn óskyldu antigeni, sem vekti ónæmissvörun sem víxlverkaði við mýli eða önnur ólígódendró- cytantigen valdið afmýlingu. í því samhengi er athyglisvert að Kári Stefánsson og samverkamenn (59) hafa nýverið einangrað ein- stofna mótefni sem greinir bæði makrófaga og antigen í mið- taugakerfi en sem kunnugt er skipta makrófagar miklu í ýmsum formum afmýlingar og eru að því er sumir telja fyrstir á vettvang í bráðum vefjaskemmdum í M.S. 4. ADCC (antibody dependent cell- mediated cytotoxity) gæti leitt til afmýlingar á þann veg að mótefni bindust mýli og síðan bindust frumur sem hal'a viðtaka (recep- tors) fyrir Fc-hluta immúnóglóbú- lína þessum mótefnum og kæmu af stað cytotoxiskum viðbrögðum. Slík viðbrögö gætu hugsanlega skipt máli í M.S. Alténd hefur verið sýnl framá að fjöldi cyto- toxiskra eitilfruma er breytilegur í blóði og mænuvökva í hviðum og hvíldum (remission) í M.S. (I). 5. Svonefnd „bystander" afmýling getur orðið þegar lymfokín eða mýliseyðandi þættir losna í grennd viö nrýldan taugasíma við ónæmissvörun gegn ýmsum anti- genum sem eru óskyld antigen- 34 LÆKNANEMINN Vm5 - t/i986 — 38.-39. árg.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.