Læknaneminn - 01.04.1986, Síða 70
(SLENSKT SÉRLYF:
ATENÓLÓL
HAGKVÆMT OG ÁRANGURSRÍKT LYF
TIL MEÐFERÐAR Á HÁÞRÝSTINGI OG HJARTAÖNG.
Eiginleikar: Beta-blokkari með áhriftim aðallega á beta-1 viðtæki, en án eigin sympatomi-
metískra áhrifa (ISA). Ábendingar: 1. Háþrýstingur. 2. Hjartaöng (angina pectoris). Frá-
bendingar: Algerar: 1. Ómeðhöndluð hjartabilun. 2. II.—III. gráðu leiðslurof (dissociatio
atrioventricularis). Afstæðar: 1. Lungnasjúkdómar með berkjusamdrætti. 2. Hjartabilun.
3. Hægur hjartsláttur. 4. Æðaþrengsliíútlimum (arteriosclerosis obliterans, Raynauds phen-
omen). 5. Sykursýki án meðferðar. 6. Sýring í líkamanum (acidosis metabolica). 7. Háþrýst-
ingur ílungnablóðrás (cor pulmonale). 8. Þungun. Varúð: 1. Varastberaðhættagjöflyfsins
skyndilega hjá kransæðasjúklingum. 2. Lyfið dregur úr samdráttarkrafti hjartans og hjarta-
bilun, sem áður olli ekki einkennum, getur þá komið fram. 3. Einkenni berkjusamdráttar (mb.
respiratoricus obstructivus) geta komið í ljós af lyfinu. 4. Lyfið getur leynt einkennum of lágs
blóðsykurs og ofstarfsemi skjaldkirtils (thyreotoxicosis). 5. Við nýrnabilun þarf að minnka
skammt lyfsins. Aukaverkanir: Geðrænar: Þreyta, þunglyndi, svefnleysi, martröð, of-
skynjanir. Meltingarfæri: Verkir, ógleði, uppköst, niðurgangur. Blóðrás: svimi, hand- og
fótkuldi. - Vöðvaþreyta. Útþot og þurrkur í augum, þá ber að hætta notkun lyfsins, þó ekki
skyndilega. Milliverkanir: 1. Beta-blokkara og verapamíl (Isoptin) á helst ekki að gefa
samtímis vegna hættu á AV-blokki og hjartabilun. Nífedipín (Adalat) getur einnig valdið AV-
blokki og hjartabilun, ef það er gefið samtímis beta-blokkara, en sjaldnar en verapamíl.
Hvorki skal gefa beta-blokkara, né kalsíumantagónista (nífedipín, verapamíl) í œö fýrr en
a.m.k. tveimur sólarhringum liðnum frá því gjöf lyfsins úr hinum lyfjaflokknum var hætt.
2. Digitalis og beta-blokkarar geta dregið of mikið úr rafleiðni og valdið hægum hjartslætti
eða leiðslurofi. 3. Sýrubindandi lyf með álsöltum draga úr virkni lyfsins. 4. Címetidín eykur
áhrif lifsins. 5. Svæfingalyf geta ásamt beta-blokkurum dregið verulega úr samdráttarkrafti
hjartans. 6. Gæta skal sérstakrar varúðar ef beta-blokkarar og dísópýramíð eða skyld lyf eru
gefin samtímis vegna hættu á hjartabilun eða alvarlegum leiðslutruflunum. Eiturverkanir:
Hægur hjartsláttur, leiðslurof, blóðþrýstingsfall, lágur blóðsykur, krampar, berkjusamdrátt-
ur. Meðferð: Atrópín 1-2 mg iv, má endurtaka; handa smábörnum 50 míkróg. Glucagon
10 mgiv, máendurtaka eftir 10 mín. Prenalterol 10 mghægt iv, það mágefa þennan skammt
á 3-5 mín. ffesti, þar til hjartabilunareinkenni minnka. Skammtastærðir handa fullorðn-
um: Háþrýstingur: 50-100 mgá dag, sjaldan 200 mgá dag. Lyfið má gefa íeinum skammti
daglega. Minni skammta skal nota, ef nýrnarstarfsemi er skert. Hjartaöng: 50 mg tvisvar
sinnum á dag; má auka með varúð í 100 mg tvisvar sinnum á dag. Skammtastærðir handa
bömum: Ekki eru tilgreindar upplýsingar um skammtastærðir handa börnum.
Töflur: 50 mg og 100 mg / 30 og 100 stk.
Jtfi Tóró hf
SÍÐUMÚLA 32 - 108 REYKJAVÍK - SlMI 91-686044
I