Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1986, Side 73

Læknaneminn - 01.04.1986, Side 73
Mynd 3. Ytirlit yfir heimastjórn osteoclasta. Skýringar í texta. beineyðingu31 en vaxi æxlið inni í beini hverfa osteoclastar í grennd við það þar sem styrkur Pg er mestur34. Sé þetta dregið saman má segja að flest Pg valdi aukinni beineyðingu in vivo og í lifandi beinræktun en bæli einangraða osteoclasta. Þessar mótsagnakenndu niðurstöð- ur má túlka á þann veg að mismunandi prostaglandin og umbrotsefni þeirra séu hluti af heimastjórn (local control) osteoclastanna. Osteoblastar hafa viðtaka fyrir Pg en mynda það einnig sjálfir24 og bæla þar með ná- læga osteoclasta. Framleiðslunni er svo stýrt með neikvæðri afturvirkni (negative feedback). Osteoblastar nema það Pg (eða niðurbrotsefni) sem í kringum þá er og haga fram- leiðslu sinni á Pg í samræmi við styrk þess. Sennilega eru viðtakarnir fyrir hin ýnrsu Pg sérhæfðir en þó gætu svipuð afbrigði verkað að einhverju leyti á þá, ýmist sem agonistar eða antagonistar. PgF. sem myndað er af þekju- frumum í æðaveggjum (endothelial cells), og umbrotsefni þess, 6-oxo- PgF, falla einmitt vel inn í þessa til- gátu um Pg heimastjórn35. Pgl: gæti verið það efni sem einkum hemurost- eoclastana en myndun þess e.t.v. stjórnað með neikvæðri afturvirkni af styrk 6-oxo-PgF, sem hefur engin áhrif á osteoclasta. Bæði þessi efni ættu þá sína sérhæfðu viðtaka, Pgl2 á osteoclöstum og 6-oxo-PgF, á þekju- frumum. Aðrar arachidonic afleiður, svo sem PgE2, sem monocytar mynda í bólgu, gætu svo verkað á viötakana og truflað þessa eðlilegu (physiologísku) stjórnleið36'37. T.d. gæti orðið aukin beineyðing ef PgE2 verkaði antagonískt á Pgl2 viðtaka á osteoclöstum eða agonískt á 6-oxo-PgF, viðtaka á entothelfrum- um. Ólíklegt er þó að verkun hverrar arachidonic afleiðu sé hrein agonísk eða antagónísk heldur mismikiö af hvorri. Þegar Pg er sett í vefjarækt verður í fyrstu bæling á osteoclöstunum vegna beinna áhrifa þessa utanað- komandi Pg. Síðan örvast þeir vegna einhvers „second messenger“ frá osl- eoblöstum eða öðrum frumum sent nema það Pg sem er í ræktinni og vinna gegn áhrifum þess. Þessi „sec- ond messenger" gæti e.t.v. verið minnkuð local Pg myndun og þar með minni bæling, en ekki er hægt að útiloka að osteoblastar myndi einhver örvandi efni. (3. mynd) Parathyroideahormon (PTH): Áhrif þess eru flókin og velta á skammtastærð, tíma og tímalengd gjafar. Þó rná einfalda málið og segja að PTH hækki S-Ca, m.a. með því að auka Ca losun úr beinum. Séu ost- eoclastar athugaðir sérstaklega kemur tvennt fram4: 1. Eftir u.þ.b. 20 mín. frá gjöf PTH verður á þeim útlitsbreyting sem felst einkurn í aukningu úfins yfir- borðs og eftir 1-2 klst mælist auk- in RNA myndun í þeim. 2. Fjölgun verður á osteoclöstum eftir u.þ.b. 16 klst, sennilega vegna samruna preostepclasta38. Til að ná þessum áhrifum þarf PTH að verka óbeint, þ.e. um aðrar frumur því það hefur engin áhrif á einangr- aða osteoclasta30,24 sem eru án við- taka fyrir PTH39. Osteoblastar hafa PTH viðtaka. PTH veldur þar aukningu á intracell- ular c'AMP og örvun, en aukið c’AMP bælir hins vegar frumur ætt- aðar úr merg. Osteoblastar gætu síð- an haft áhrif á osteoclasta með örv- andi boðum eða á annan hátt (sjá uin Prostaglandin), en þessar tvær frumugerðir sjást oft tengjast með frymisöngum. Örvun osteoblasta get- ur einnig leitt af sér einhverja breyt- ingu á beinstrúktúr sem síðan veldur á einhvern hátt virkjun á macrophög- um og osteoclöstum (sjá unt frumu- LÆKNANEMINNVI985- '/1986- 38.-39. árg. 71

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.