Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1986, Page 83

Læknaneminn - 01.04.1986, Page 83
Bronchiolitis Gylfi Óskarsson læknanemi Inngangur Bronchiolitis er neðri loftvegasýking, sem er algeng hjá börnum undir 2 ára aldri, og nær alltaf orsökuð af veiru. Flestir sjúklinga sent fá bronchiolitis ei'u á aldursbilinu 2-9 mánaða.2 Frarnan af öldinni varþessi sjúkdóm- ur almennt álitinn lungnabóiga, og það var fyrst árið 1941 að minnst var á bronchiolitis í tímariti (British Me- dical Journal), og ekki fyrr en 1954 að sjúkdómurinn hlaut umfjöllun í kennslubók í barnalæknisfræði. Bronchiolitis einkennist kliniskt af nefrennsli, hósta, hraðri öndun, inn- dráttum á thorax og öndunarerfiðleik- unt, ásamt hvæsi í útöndun og dreifð- um slímhljóðum við lungnahlustun. Orsakir bronchiolitis Respiratory syncitiai veiran (RSV) er aðalorsakavaldur bronchiolitis, og er talin ábyrg fyrir um 50% allra bron- chiolitis-tilfella, en allt að 80% til- fella á tímabilinu des.-mars þegar hinn árlegi RSV-faraldur gengur yf- ir.2 Parainflúensu-veiran (týpa 1-3) er talin orsaka unr 25%, en adenoveir- an, rhinoveirur, inflúensuveirurnar (A & B) og mycoplasm pneumoniae hver um sig 5% tilfella.2 Minna en 5% allra tilfella eru orsökuð af en- teroveirum, herpes-veirum og hettu- sóttarveirunni.2 Auk þess er spurning hvort sum öndunarfæraeinkenni í smábörnum, sem talin eru bronchio- litis, séu í raun fyrstu einkenni asthma. Faraldsfræði Bronchiolitis er fyrst og fremst sjúk- dómur smábarna, og meðalaldur barna, sem leggjast á sjúkrahús vegna bronchiolitis, er =£6 mán., eða sá aldur sem flestar sýkingar eru heft- ar af mótefnum (ig G) frá móður.1 Sýnt hefur verið fram á tengsl milli reykinga móður og aukinna líkna þess að fá neðri loftvegasýkingu af völdum RSV, svo og tengsla ntilli fjölskyldustærðar og líka þess að fá neðri loftvegasýkingu af völdum RSV.6 Tíðnitölur fyrir bronchiolitis í börnum undir 2 ára eru mismunandi, eða frá 2.2-10% per ár.1-2 Það má áætla, að 1 % barna þurfi að leggjast á sjúkrahús vegna bronchiolitis á 1. ári ævinnar. Sjúkdómurinn kentur í árlegum faröldrum, sem vara 2-4 mánuði yfir vetrartíniann, og fara santan við tíðni RSV í þjóðfélaginu. Á sama tíma eykst einnig tíðni tveggja annarra sjúkdómseinkenna eða sjúkdóma sem tengjast RSV, þ. e. apnö í börnum yngri en 2 nrán. (einkum fyrirburum), og viral pneu- moniu í eldri börnum.1 RSV hefur einnig verið tengd svokölluðum vöggudauða, en slík tengsl hafa þó ekki verið sönnuð. í eldri börnum veldur RSV nefkvefi og hálsbólgu með hita, og oft fylgir otitis media í kjölfarið. RSV-sýking hjá fullorðn- um veldur saklausu nefkvefi án hita.8 Áhættuhópar fyrir slærnan bron- chiolitis og lungnabólgu af völdum RSV eru smábörn með meðfædda galla á hjarta eða öndunarfærum og fyrirburar sem hafa verið lengi í öndunarvél.1 RSV og ónæmissvar líkamans RSV er RNA-veira, og virðist vöxtur hennar bundinn við þekju öndunar- færanna. Incubationstíminn er stutt- ur, eða4 dagar.8 Á yfirborði veirunn- ar eru glycoprótein sem talin eru aðalmótefnavakar hennar, og eitt þeirra er talið valda santruna frumu- himna og myndun ntargkjarna fruma eða syncytia sem eru einkennandi fyrir RSV.1 Það er aðeins til ein sero- týpa af RSV, en engu að síður geta ntenn sýkst oft af þessari veiru, þrátt fyrir háan mótefnatíter gegn RSV í serrni. Þeirri spurningu hefur ekki verið svarað hvers vegna börn á fyrsta ári verða verst úti við sýkingu af völdum RSV. Langflest þessara barna hafa Ig G mótefni gegn RSV, fengin frá móður gegnum fylgju, en hins vegar lítil eða engin Ig A mótefni, þar sem þau komast ekki yfir fylgjuna.8 Ig A er að líkindum eini mótefnaflokkur- inn sem er verndandi gegn RSV- smiti,8 en Ig A er taliö hindra viðloð- un veirunnar við slímhúð öndunar- færanna. Ljóst er að Ig G mótefni veita enga vörn gegn RSV sýkingu, en gætu verið hluti af orsök bronchiolitis. Sumir hafa haldið frant að bronchio- litis sé ofnæmissvörun af týpu 3, og að veiru-mótefna komplexar falli út í bronchiolum.8 Tilraun, sem gerð var til að framleiða bóluefni gegn RSV, styður þessa kenningu. Reynt var formalín-inactiverað bóluefni, gefið parenteralt, sem gaf háan serum Ig G mótefnatíter. Börn, sem fengu þetta bóluefni, fengu hinsvegar mjög LÆKNANEMINN yi9S5- '/|9S6- 38.-39. árg.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.