Læknaneminn - 01.04.1986, Qupperneq 86
Dánartíðni er mismunandi, frá 2-
5% ,2 en fá eðlileg börn deyja úr þess-
um sjúkdómi ef möguleiki á gjör-
gæslumeðferð er fyrir hendi. Meiri-
hluti barna, sem deyja af völdum
bronchiolitis, er með ónæmisbæklun
eða undirliggjandi hjarta- eða lungna-
sjúkdóm.1
Forvarnarstarf
Áður var talið að RSV smitaðist með
úðasmiti, en nýlegar rannsóknir
benda til að líklegra sé að RSV smit-
ist með snertismiti, og virðist hand-
þvottur vera mikilvægasta atriðið í
smitvörnum.1' 2 Notkun maska er
óþörf.1 Oftast smitast ungabörn af
foreldrum eða eldri systkinum. Talið
er að allt að 30% barna á sjúkradeild
smitist af RSV ef sjúklingur með
bronchiolitis af völdum RSV liggur á
deildinni.1
Ekkert bóluefni er til gegn RSV,
þrátt fyrir að aðeins sé til ein serótýpa
af veirunni. Ýmis bóluefni hafa verið
reynd, og sem stendur beinist athygli
manna einkum að bóluefni sem hægt
væri að gefa sem nefúða, og gæfi
góða mótefnasvörun (íg A) í slímhúð
öndunarfæranna.8 Slíkt bóluefni yrði
að gefa bömunum nijög ungunr,
einkum þeim sem fædd eru rétt fyrir
hinn árlega RSV-farald,1 og það hef-
ur sýnt sig að mótefnasvörun svo
ungra barna er oft fremur lítil. Sem
stendur virðist virkt bóluefni gegn
RSV fjarlægur draumur.1
Að lokum vil ég þakka Þresti Lax-
dal lœkni fyrir lestur handrits og
gagnlegar ábendingar.
HEIMILDIR:
1. Wright P. F.: Bronchiolitis. Pediatrics
in Review, vol. 7. no. 7:219-222. Jan.
1986.
2. Nahata H. C., Johnson J. A., Powell
D. A.: Management of bronchiolitis.
Clinical Pharmacy, vol. 4:297-303.
May-June 1985.
3. Fireman P.: The Wheesing Infant. Pe-
diatrics in Review, vol. 7, no. 8:247-
254. Feb. 1986.
4. Taber L. H., Knight V., Gilbert B. E.
og fleiri: Ribavirin Aerosol Treatment
of Bronchiolitis Associated with Res-
piratory Syncytial Virus Infections in
Infants. Pediatrics, vol. 72, no.
5:613-618. Nov. 1985.
5. Hall C. B.. McBride J. T., Walsh E.
E. og fleiri: Aerosolised ribavirin treat-
ment of infants with respiratory syn-
cytial viral infection: A randomised
double blind study. New England
Journal of Medicine'308: 1443-1447.
1981.
6. Pullan C. R., Hey E. N.: Wheesing,
asthma, and pulmonary dysfunction 10
years after infection with respiratory
syncytial virus in infancy. British
Medicat Journal, vol. 284:1665-
1669. 5 June 1982.
7. Kempe H. C., Silver H. K., O'Brien
D.: Current Pediatric Diagnosis and
Treatment. 8th edition 1984. Lange
Medical Publications.
8. Fenner F. J., White D. O.: Medical
Virology. 2nd edition 1976. Academic
Press, Inc.
9. Kennslugögn og punktar úr fyrirlestr-
um Þrastar Laxdal.
84
LÆKNANEMINN M985- >/i986- 38.-39. árg.