Læknaneminn - 01.10.1989, Síða 5
A R, E
Lobac (Winthrop, 640454)
Töflur; M 03 B B 52
Hver tafla inniheldur: Chlormezanonum INN 100 mg, Para-
cetamolum INN 450 mg.
Eiginleikar: Lyfið er blanda af vöðvaslakandi og róandi efni,
klórmezanóni, og paracetamóli, sem hefur verkjastillandi og
hitalækkandi verkun. Klórmezanón slakar á spenntum vöðv-
um með miðlægum áhrifum og einnig með því að lengja tor-
leiðnitíma taugavöðvatengingar. Bæði efnin frásogast vel frá
meltingarvegi. Hámarksblóðþéttni næst eftir 1-2 klst. Efnin
eru lítið próteinbundin. Helmingunartími paracetamóls er 2
klst., en klórmezanóns u.þ.b. 24 klst., sem veldur því, að
stöðug blóðþéttni næst ekki fyrr en eftir 3-4 daga. Efnin um-
brotna í lifur og skiljast út með þvagi.
Ábendingar: Bakverkir, vöðvaverkir, torticollis og spennu-
höfuðverkur.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Lifrar-
sjúkdómar.
Aukaverkanir: Preyta, sviði, ógleði, munnþurrkur og sjaldan
þvagtregða geta komið fram. Kólestatisk gula hefur sést.
Fækkun á blóðflögum og hvítum blóðkornum hefur verið
lýst. Haemolytisk anaemia hefur sést.
Varúð: Ekki er mælt með langtímanotkun lyfsins (nýrna-
skemmdir). Vara ber stjórnendur bifreiða og vélknúinna
tækja við slævandi áhrifum lyfsins.
Milliverkanir: Lyfið eykur áhrif róandi lyfja. Má ekki gefa
samtímis fetíazínsamböndum og MAO-hemjandi lyfjum.
Eiturverkanir: Mjög stórir skammtar af paracetamóli geta
valdið lifrarskemmdum. Einkenni eitrunar eru ógleði, upp-
köst, lystarleysi og magaverkir. Truflun á lifrarprófum kem-
ur fram eftir 12-48 klst.
Meðferð: Magaskolun. Lyfjakol. Mótefni gegn paracetamóli
er acetýlcýstein.
Skammtastærðir handa fullorðnum: 1-2 töflur þrisvar sinn-
um á dag.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börn-
um.
Pakkningar: 20 stk. (þynnupakkað); 50 stk. (þynnupakkað).
©
Sterling-Winthrop AB Box 1403171 27 Solna Tel. 08-734 08 80