Læknaneminn - 01.10.1989, Side 20
vefjameinafræðilega rannsókn á þeim fannst
Cytomegalovirus (mynd 2) og Toxoplasma gondii.
Umræða
Sjúkdómsgangurþessa sjúklings, sem tók tæplega
fjögurár,erdæmigerðurfyriralnæmissjúkling. Glöggt
sést hversu næmi sjúklings fyrir ýmsum sýkingum
eykst þegar ónæmiskerfi líkamans brotnar niður.
Blóðrannsóknir sjúklingsins sýndu merki þeirra bilana
í ónæmiskerfinu sem verða við alnæmi. Einkennandi
var, að T-hjálparfrumum hans fór stöðugt fækkandi.
Við alnæmi þá hafa þær T-hjálparfrumur sem ekki
drepast mjög skerta starfshæfni (12,4). Einnig var
hann með gammaglóbúlínaukningu í blóði, sem hlýst
af fjölstofna (polyclonal) örvun B-eitilfrumna með
aukinni mótefnamyndun (12).
Sjúklingurfékkmjögdæmigerðarfylgisýkingar.
Hin fyrsta var Candida vélindabólga. Næstum allir
alnæmissjúklingar fá þrusku og er algengt að sýkingin
dreifist til vélinda (7).
Sjúkdómar í lungum eru algengir við alnæmi.
Sjúklingurinn fékkPneumocystis carinii lungnabólgu
sem er algengasta fylgisýkingin í byrjun hjá
alnæmissjúklingum (7). Sjúklingurinn fékk
millivefslungnabólgu sem er algeng orsök afbrigðilegrar
starfshæfni lungna við alnæmi (21). Hann fékk einnig
Hemophilus influenzae lungnabólgu sem er algengari
hjá alnæmissjúklingum heldur en gengur og gerist.
Hið sama á við um Streptococcus pneumoniae
lungnabólgu (7,14). Dánarorsök sjúklings var
lungnabólga orsökuð af Staphylococcus aureus, en
þessi baktería er þekkt fyrir að valda lungnabólgum hjá
alnæmissjúklingum sem fengið hafa Pneumocystis
carinii lungnabólgu (7). Við krufningu fannst
Toxoplasma gondii í átfrumum í lungum, en við alnæmi
er þekkt að frumdýrið getur valdið lungnabólgu
(pneumonitis) (5,15).
Viðkrufninguhafaflestiralnæmisjúklingarmerki
um dreifða Cytomegalovirus (CMV) sýkingu (ræktun
á CMV og vejfafræðileg merki um CMV sýkingu) (7).
Þessi sjúklingur hafði vefjafræðileg merki um CMV
sýkingu í nýmahettu (mynd 2) og reyndar einnig
Toxoplasma gondii og voru nýmahettumar rýrar.
SIEMENS
lækningatæki
SMITH &
NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300
18
LÆKNANEMINN 1-4Í989-42. árg.