Læknaneminn - 01.10.1989, Blaðsíða 25
eða svæði. Hugmndin er að hjálpa nemendum að átta
sig á innbyrðis afstöðu líffæra(í heilanum sjá legu
kjama osfrv.). I útlimum getur forritið auðveldað að
sjá legu æða og tauga í vöðvaknippum. Þá er nemendum
kleift að kanna þekkingu sína m.þ.a. láta tölvuna spyrja
spurninga.
“Lifandi”þrívíddarrnyndir af hjarta
byggðar á ómskoðun.
Með því að umri ta ómmyndir yfir á stafrænt kerfi
tölvunnar má fá fram þrívíddarmyndir af hjartanu eða
einstökum hólfum þess. Þessar myndir má skoða eins
og kvikmynd, þar sem er hægt að virða fyrir sér
starfsemi hjartans fráýmsumhliðum. Þettaauðveldar
að meta stærð slegla og þykkt hjartavöðvans, meta
stærð hjartadreps og nákvæma staðsetningu þess, svo
og að meta stærð og útlit hjartagúls(aneurysm). Hægt
er að hugsa sér að nota þetta forrit á önnur líffæri sem
má ómskoða, s.s. fóstur í legi, gallblöðru og slagæðar.
Hönnun lyfjasameinda með aðstoð tölvu.
I minni tölvunnar er fjöldinn allur af þekktum
lyfjasameindum á strikaformi. Einnig hefur hún að
geyma upplýsingar um verkun, ábendingar,
frábendingar og aukaverkanir lyfjanna. Með hjálp
tölvunnar er mögulegt að bæta við og fjarlægja virka
hópa frumeindir og fá spá um verkun nýju
sameindarinnar. Loks má spyrja tölvuna hvort slík
sameind sé til fyrir og þá hvemig hún sé notuð.
Myndabanki fyrir greiningu og kennslu
í húðsjúkdómum.
I bankanum eru geymdar myndir af einkennum
húðsjúkdóma. Hér er því hægt hvort heldur er að leita
að sama sjúkdómi og ákveðinn sjúklingur hefur eða
kanna þekkingu sína. Þetta forrit er því í raun tölvuvædd
myndabók (atlas), en hefur þann kost að vera
fyrirferðarminni og hægt er að bæta við minnið eftir því
sem þekkingu fleygir fram.
QMR -Quick Medical Reference (“Skjót
gagnaleit lækna”).
Þettaforriteraðmiklu leiti hugsmíðDr. Randolph
Millers og kom hann frá Pittsburgh til að kynna það.
Forritið er hugsað sem hjálpartæki við greiningu og
meðferð sjúkdóma. Notandinn matar tölvuna á þeim
einkennum sem hann hefur fundið eða sjúklingurinn
lýst. Auk þess fræðir viðkomandi tölvuna á niðurstöðum
rannsóknaef þær liggja fyrir. Tölvan vinnur úrþessum
upplýsingum og gefur lista af mögulegum greiningum
og raðar þeim eftir líkindum. Til að styðja ákveðna
greiningu er svo hægt að spyrja tölvuna hvaða
viðbótarupplýsingar hún vilji fá . Að fengnum þeim
upplýsingum eða hluta þeirra er hægt að biðja um
endurskoðaðan greiningalista. Þannig má smátt og
smátt nálgast líklegustu greininguna og hafna öðrum
ólíklegri. Umbeðin getur tölvan gefið upp atriði sem
mæla með eða gegn ákveðinni greiningu. Þá er tölvan
tengd við MEDLINE og getur vísað í greinar máli sínu
til stuðnings.
Höfundarforritsins hafagertmjög strangarkröfur
til þeirra atriða sem tölvan má nota til að styðja
greiningar. Hvert atriði verður að hafa á bak við sig
a.m.k. fimm greinar í viðurkenndum læknaritum.
Þrátt fyrir þetta þekkir tölvan alla sjúkdóma þ.s. fleiri
en 250 tilfellum hefur verið lýst í heiminum.
Greiningarnákvæmniforritsinshefurveriðborin
saman við greiningar sérfræðinga í viðkomandi
sjúkdómum og hefur útkoma þess verið síst lakari en
þeirra. Þrátt fyrir þetta lagði dr. Miller áherslu á að
QMR væri f.o.f. hugsað til kennslu, en ekki til almennrar
notkunar á sjúkrastofnunum. Ekki reiknaði doktorinn
með að forritið yrði selt á almennum markaði á næstu
árum, f.o.f. vegna hættu á misnotkun. Þessa hættu taldi
hann aðallega vera fólgna í því að menn færu um of að
styðjast við forritið og raunveruleg þekking viðkomandi
læknis yrði því minni. Einnig benti hann á að óráðvandi r
menn gætu komið inn villum í forritið með hrikalegum
afleiðingum.
Við lítum á þetta forrit sem góða stoð við kennslu
og uppbyggingu góðra kliniskra eiginleika. Það
bendir notandanum á hvaða spuminga hann eigi eftir
að spyrja, hvaða atriði hann á eftir að skoða og hvaða
rannsóknir geti hjálpað við greiningu. Við óttumst
ekki að svona forrit hafi í för með sér hnignun á hinni
hefðbundnu læknislist. Þó erum við sammála Dr.
Miller um að í höndum rangra aðila getur þetta tæki
verið stórhættulegt.
KENNSLAN
Tölvukennsla við læknadeildina í
Gautaborg.
Tölvunotkun í náminu hefst vitaskuld á því að
LÆKNANEMINN 1—M989-42. árg.
23