Læknaneminn - 01.10.1989, Page 28
Sýklabólgur
Tryggvi Þorsteinsson læknir
Bólga
Bólga (inflammation) er svörun líkamans við
frumusköddun eða viðvarandi frumuskaðlegu áreiti og
einkennast af æðaútvíkkun og auknu plasmaflæði
(exudatation) á staðnum, en hvorutveggja hefur þann
tilgang að fjar- lægja eða eyða hinum skaðlegu áhrifum.
Samfara þessu taka bandvefsfrumur að vaxa og skipta
sér á staðnum og mynda þar örvef, sem stefnir að því að
fylla upp í og lagfæra þá skemmd, sem alitaf verður í
einhverjum mæli. Utvessunarfasinn (exudation) er mest
áberandi við bráðar bólgur, en meira ber á
bandvefsmyndun við hægfara og langvinnar bólgur.
Venjulega þjónar bólgan mikilvægum tilgangi
og er lífsnauðsynleg til að ráða niðurlögum ýmissa
sýkinga og til að draga úr áhrifum eiturefna. Fyrir
kemur þó, að bólgusvörunin sjálf verði hættuleg og
erfiðari viðureignaren upphaflegri sjúkdómurinn. Við
sýkingar í kverkum og raddböndum, sem væru
tiltölulega meinlausar annarstaðar í líkamanum, getur
bólgan lokað fyrir öndunarfærin og þannig valdið
köfnunardauða. Bólga, sem kemur fram við ofnæmi
fyrir ýmsum efnum hjá næmum einstaklingum, eins og
hjá t.d. við frjókomaofnæmi (hay-fever), þjónar ekki
tilgangi og er til ills eins.
Þótt aðalreglan sé sú, að bólgan læknast, þegar
sjúkdómsorsökin er fjarlægð, þá koma þau tilvik fyrir,
að meðferðin þarf einkum að beinast að sjálfri bólgunni
og er um ýmsa möguleika að ræða til að minnka spennu
í vefnum, bæði lyfjameðferð og skurðaðgerðir.
Frá fomu fari er talað um fimm einkenni bólgu,
en þau eru fyrirferðaraukning (tumor), roði (mbor), hiti
(calor), sársauki (dolor) og skert starfshæfni (functio
lesa).
Orsakir: Orsakir bólgu eru margvíslegar og
verða hér taldir upp nokkrir flokkar:
- Kemiskt áreiti, t.d. ertandi efni, sýrur, lútarefni
og tjara, svo eitthvað sé nefnt.
- Önnur útvortist áreiti, svo sem of mikill hiti, of
26
mikil kæling eða sólbruni.
- Langvinn, síendurtekin áreynsla getur valdið
bólgum í sinaslíðri eða sinabelg.
- Ofnæmissvaranir.
- Bandvefssjúkdómar, eins og t.d. arthritis
rheumatoidea.
- Efhaskiptasjúkdómar, svo sem arthritis urica.
- Sýklar. Bólgur af völdum sóttkveikja eru þó
einna algengastar og kallaðar septiskar bólgur.
Sýkingar af völdum baktería:
\
Hæfileiki sóttkveikja til að valda sýkingu nefnist
pathogenesity eða virulens og bakteríur, sem það geta,
erukallaðarpartogen. Bakteríurgetaþvíaðeins valdið
sýkingu, að þær komist inn í líkamsvefi og nái þar
bólfestu, ef frá eru taldar bakteríur, sem valda
matareitrun og kólerubakterían. Til að þetta megi
takast verða sýklar að komast í gegnum yfirborðsþekju
líkamans, húð eða slímhúð. Álitið er, að bakteríur
komist ekki gegnum heila húð, en ýmsirflokkar þeirra
komast inn um heilbrigða slímhúð.
Nú er algengt að sóttkveikjur komist gegnum
yfirborðsþekju líkamans, oftast vegna einhvers konar
áverka. Iflestumtilvikumframkallarþettaekki sjúklegt
ástand hjá viðkomandi, þar eð vamarkerfi líkamans
vinnur bug á sýklunum. Sóttkveikjur geta því aðeins
valdið sýkingum, að þær nái að marg- faldast þar sem
þær hafa brotizt í gegn.
Hæfileiki sóttkveikjatilaðfjölga sérílifandi vef
er nefndur aggressiveness eða invasiveness. Þótt
bakteríur nái að skipta sér og margfaldast í lifandi vef,
þarf það ekki að framkalla sjúkdóma, nema því aðeins
að þær geti á einhvem hátt skaðað vefinn. Hæfileiki
sóttkveikja til að skadda eða eyðileggja lifandi vef er
nefnt toxidity. Aggressiveness og toxidity eru þannig
mismunandi eiginleikar, sem pathogen bakteriur hafa.
Sumir sýklar, eins og t.d. lungnabólgu-bakteríur
LÆKNANEMINN l-Vm9-42. árg.
i