Læknaneminn - 01.10.1989, Blaðsíða 40
rauðleitt og vessarfrá því. Eftir ca. 4 vikur kemur fram
drep í æxlistoppinn og fer nú tumorinn smátt og smátt
minnkandi og lagast venjulega af sjálfu sér á 7 vikum,
án þess að eftir verði ör.
Engin sérstök meðferð er þekkt við þennan
sjúkdóm. Fúkalyf gagna ekki. Klippa má ofan af
ofholdguninni eða brenna með lapis. Bacteriusýking
getur komið í granulomið, sem nauðsynlegt getur rey nzt
að gefa sýklalyf við.
Almennt meðferðarprógram
Nauðsynlegt er að leggja fólk með alvarlegar
handarsýkingar í rúmið og oft heppilegast að senda það
á sjúkrahús. Hreyfihefta hönd og fingur með spelkum
eða þéttum umbúðum og setja íhálegu. Til að draga úr
hættu á contracturum og stirðleika er eftirfarandi staða
fingra og handar telin heppilegust.
Ulnliður í 45° réttingu. Þumalfingur í abductio.
MCP-liðir fingra í 60-70° beygingu og IP-liðir í ca.
30° beygingu. Þegarhættuástandið er liðið hjá og vald
hefur náðst á sýkingunni, er nauðsynlegt að hefja
æfinga- meðferð. Athuga þarf að gefa tetanus-toxoid
þegar áverki er orsök fyrir sýkingunni og við dýrabit
þarf að athuga hugsanlegar vamir við hundaæði (rabies).
Oftast mun ráðlegast að gefa Penicillinase
resident Penicillin við handarsýkingar, nema næmispróf
bendi til annars.
Snemmkomin greining og viðeigandi meðferð,
fyrst og fremst með skurðaðgerðum, er grundvallar-
atriði til að draga úr örmyndun, samvöxtum og öðrum
örkumlum, sem handarsýkingar geta valdið.
Eftirmáli
Greinin um SYKLABOLGUR, sem unnin er
úr fyrirlestrum fyrir læknastúdenta á Bsp., er ætluð tii
leiðbeiningar við skoðun og kliniskt mat á
sárasýkingum. Að því leyti, sem komið er inn á efni úr
bakteríufræðum, sem óhjákvæmilegt er, hef ég leyft
mér að hafa hliðsjón af hinni frábæru handbók,
BACTERIOLOGOGY AND IMMUNOLOGY
FOR STUDENTS OF MEDICINE eftir F. S. Stewart.
Eg vil nota tækifærið og þakka Erni Ingasyni
lækni fyrir hvatningu og góðar ábendingar við samningu
þessarar greinar