Læknaneminn - 01.10.1989, Síða 50

Læknaneminn - 01.10.1989, Síða 50
ELISA tækni sem þróuð hefur verið á Rannsóknastofu í ónæmisfræði til þessara mælinga. Finnist hækkuð IgA mótefni gegn glúteníni í DH sjúklingum verður kannað hvort þau krosstengjast við elastínþætti í húð heilbrigðraeinstaklingaog DH sjúklinga. Seinni þáttur verkefnisins yrði e.t.v. að einhverju leyti unninn á Rannsóknastofu í húðsjúkdómum í London, sem er samstarfsaðili íþessu verkefni. Skrá yfir rit er geyma nánari upplýsingar er varða verkefnið: 1. Isotypeandsubclasspattemofantigliadin antibodies in patients with dermatitis herpetiformis and coeliac disease and healthy controls. Ingileif Jónsdóttir, Jóna Freysdóttir, Cristopher Griffiths, Jonathan Leonard, Lionel Fry, Helgi Valdimarsson. Scand. J. Immunol. 1987, 26, 316. 2. Longitudinal studies ofgliadin antibodies in patients with dermatitis hepetiformis and coeliac disease. Jóna Freysdóttir, Ingileif Jónsdóttir, Jonathan Leonard, Lionel Fry, Helgi Valdimarsson. Handrit til prentunar. Eftirhrif sýklalyfja (post-antibiotic effect). Umsjónarkennari: Sigurður Guðmundsson. Borgarspítalinn Eftirhrif sýklalyfja eru skilgreind sem framhald lyfjaáhrifa eftir að lyf er horfið frá sýkingarstað. Eftirhrifum hefur verið lýst eftir flest sýklalyf, sem könnuð hafa verið, en tilvist þeirra ræðst mjög af hvaða bakteríutegund á í hlut hverju sinni. Þannig valda lyf sem verka á frumuvegg (b-lactam, vancomycin o. fl.) einungis eftirhrifum á gram-jákvæða kokka (staphylokokka, streptokokka) en ekki á gram- neikvæðar stafbakteríur (Enterobacteriae, Pseudomonas). Hins vegar valda lyf er verka á prótein- og kjarnasýruframleiðslu (aminoglycosið, quinolon, erythromycin, tetracyclin o. fl.) eftirhrifum bæði á gram-jákvæðar og -neikvæðar bakteríur. Hefur bæði verið sýnt fram á þetta in vitro og in vivo í tilraunasýkingum í dýrum. Klíniskt gildi eftirhrifa tengist skömmtun sýklalyfja þar sem gefa má lyf sem löng eftirhrif hafa sjaldnar en áður og draga úr aukaverkunum. Tilraunir á dýrasýkingum hafa staðfest þetta og fyrstu rannsóknir í mönnum benda til að unnt sé að gefa amininóglýcósíð einu sinni á dag án þess að virkni sé skert. Undanfarin tvö ár hafa Helga Erlendsdóttir, meinatæknir, Aðalsteinn Guðmundsson, læknir og Magnús Gottfreðsson, BS læknanemi, ásamt ofanrituðum, unnið að in vitro rannsóknum á eftirhrifum sýklalufja og hafa rannsóknirnar farið fram á Borgarspítala. Eftirtalin meginatriði hafa verið eða eru í athugun: 1. Ahrif samsetninga lyfja (synergism, addition) á eftirhrif. 2. Ahrif sýrustigs (pH) sem er lægra á sýkingarstað en í slagæðablóði á eftirhrif, vöxt baktería og verkun sýklalyfja (drápshraða, MIC). 3. Breytingar á DNA framleiðslu (metinni með upptöku’H-thymidins) og útlitsbreytingar á “líffærum” baktería (metnum með rafeindasmásjá) á meðan á eftirhrifum stendur. 4. Nýjar og fljótlegri aðferðir við mælingu á eftirhrifum sem nota mætti við venjulega klíniska vinnu á sýkladeild. Ætla má að þessum atriðum verði að mestu lokið haustið 1989. Neðal annarra atriða sem könnuð verða á næstu messerum má nefna: 1. Eftirhriflyfja(bæðieinnaogísamsetningum) á enterokokka og loftfælnar bakteríur. 2. Frekari könnun á kjamsýru (RNA)-, peptidoglycan- og próteinframleiðslu baktería m.t.t. orsaka (mechanism) eftirhrifa. 3. Athugun á innfrumuþéttni (intracellular concentration) lyfja. 4. Áhrifhita(35-40°C)áeftirhrifog virkni (dráp, MIC). 5. Könnun á möguleikim á in vivo tilraunum í dýrum (músum, kanínum), einkanlega með lungnabólgu, ígerðir (subcutan abscess) eða vöðvasýkingu í huga. Peroxídasavirkni hemóglóbíns. Umsjónarkennari: Baldur Símonarson. Lífefnafræðistofa Verkefni þetta er hluti rannsókna sem hafa það að markmiði að greina á milli ensímvirkni glútaþíón peroxídasa (GSH-Px) og ósérhæfðrar peroxídasavirkni hemóglóbíns í rauðum blóðkornum með einfaldri og áreiðanlegri aðferð. Niðurstöður rannsókna þessa verkefnis og heildarverkefnisins eiga að geta leitt til sértækari mælingaraðferðar fyrir ensímið. GSH-Px hvetur niðurbrot vetnisperoxíðs og lífrænna peroxíða, sem m.a. myndast við oxun ómettaðra fitusýra, og er snefilefnið selen hluti ensímsins. Virkni GSH-Px í blóði búfjár er góður mælikvarði á selenbúskap, en selenskortur leiðir til búfjársjúkdóma. Virkni GSH-Px ímannablóði erekki 48 LÆKNANEMINN 1^989-42. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.