Læknaneminn - 01.10.1989, Blaðsíða 50
ELISA tækni sem þróuð hefur verið á Rannsóknastofu
í ónæmisfræði til þessara mælinga. Finnist hækkuð
IgA mótefni gegn glúteníni í DH sjúklingum verður
kannað hvort þau krosstengjast við elastínþætti í húð
heilbrigðraeinstaklingaog DH sjúklinga. Seinni þáttur
verkefnisins yrði e.t.v. að einhverju leyti unninn á
Rannsóknastofu í húðsjúkdómum í London, sem er
samstarfsaðili íþessu verkefni.
Skrá yfir rit er geyma nánari upplýsingar er varða
verkefnið:
1. Isotypeandsubclasspattemofantigliadin antibodies
in patients with dermatitis herpetiformis and coeliac disease
and healthy controls. Ingileif Jónsdóttir, Jóna Freysdóttir,
Cristopher Griffiths, Jonathan Leonard, Lionel Fry, Helgi
Valdimarsson. Scand. J. Immunol. 1987, 26, 316.
2. Longitudinal studies ofgliadin antibodies in patients
with dermatitis hepetiformis and coeliac disease. Jóna
Freysdóttir, Ingileif Jónsdóttir, Jonathan Leonard, Lionel
Fry, Helgi Valdimarsson. Handrit til prentunar.
Eftirhrif sýklalyfja (post-antibiotic effect).
Umsjónarkennari: Sigurður Guðmundsson.
Borgarspítalinn
Eftirhrif sýklalyfja eru skilgreind sem framhald
lyfjaáhrifa eftir að lyf er horfið frá sýkingarstað.
Eftirhrifum hefur verið lýst eftir flest sýklalyf, sem
könnuð hafa verið, en tilvist þeirra ræðst mjög af hvaða
bakteríutegund á í hlut hverju sinni. Þannig valda lyf
sem verka á frumuvegg (b-lactam, vancomycin o. fl.)
einungis eftirhrifum á gram-jákvæða kokka
(staphylokokka, streptokokka) en ekki á gram-
neikvæðar stafbakteríur (Enterobacteriae,
Pseudomonas). Hins vegar valda lyf er verka á prótein-
og kjarnasýruframleiðslu (aminoglycosið, quinolon,
erythromycin, tetracyclin o. fl.) eftirhrifum bæði á
gram-jákvæðar og -neikvæðar bakteríur. Hefur bæði
verið sýnt fram á þetta in vitro og in vivo í
tilraunasýkingum í dýrum.
Klíniskt gildi eftirhrifa tengist skömmtun
sýklalyfja þar sem gefa má lyf sem löng eftirhrif hafa
sjaldnar en áður og draga úr aukaverkunum. Tilraunir
á dýrasýkingum hafa staðfest þetta og fyrstu rannsóknir
í mönnum benda til að unnt sé að gefa amininóglýcósíð
einu sinni á dag án þess að virkni sé skert.
Undanfarin tvö ár hafa Helga Erlendsdóttir,
meinatæknir, Aðalsteinn Guðmundsson, læknir og
Magnús Gottfreðsson, BS læknanemi, ásamt
ofanrituðum, unnið að in vitro rannsóknum á eftirhrifum
sýklalufja og hafa rannsóknirnar farið fram á
Borgarspítala.
Eftirtalin meginatriði hafa verið eða eru í athugun:
1. Ahrif samsetninga lyfja (synergism, addition)
á eftirhrif.
2. Ahrif sýrustigs (pH) sem er lægra á
sýkingarstað en í slagæðablóði á eftirhrif, vöxt baktería
og verkun sýklalyfja (drápshraða, MIC).
3. Breytingar á DNA framleiðslu (metinni með
upptöku’H-thymidins) og útlitsbreytingar á “líffærum”
baktería (metnum með rafeindasmásjá) á meðan á
eftirhrifum stendur.
4. Nýjar og fljótlegri aðferðir við mælingu á
eftirhrifum sem nota mætti við venjulega klíniska
vinnu á sýkladeild.
Ætla má að þessum atriðum verði að mestu lokið
haustið 1989.
Neðal annarra atriða sem könnuð verða á næstu
messerum má nefna:
1. Eftirhriflyfja(bæðieinnaogísamsetningum)
á enterokokka og loftfælnar bakteríur.
2. Frekari könnun á kjamsýru (RNA)-,
peptidoglycan- og próteinframleiðslu baktería m.t.t.
orsaka (mechanism) eftirhrifa.
3. Athugun á innfrumuþéttni (intracellular
concentration) lyfja.
4. Áhrifhita(35-40°C)áeftirhrifog virkni (dráp,
MIC).
5. Könnun á möguleikim á in vivo tilraunum í
dýrum (músum, kanínum), einkanlega með
lungnabólgu, ígerðir (subcutan abscess) eða
vöðvasýkingu í huga.
Peroxídasavirkni hemóglóbíns.
Umsjónarkennari: Baldur Símonarson.
Lífefnafræðistofa
Verkefni þetta er hluti rannsókna sem hafa það
að markmiði að greina á milli ensímvirkni glútaþíón
peroxídasa (GSH-Px) og ósérhæfðrar peroxídasavirkni
hemóglóbíns í rauðum blóðkornum með einfaldri og
áreiðanlegri aðferð. Niðurstöður rannsókna þessa
verkefnis og heildarverkefnisins eiga að geta leitt til
sértækari mælingaraðferðar fyrir ensímið.
GSH-Px hvetur niðurbrot vetnisperoxíðs og
lífrænna peroxíða, sem m.a. myndast við oxun
ómettaðra fitusýra, og er snefilefnið selen hluti
ensímsins. Virkni GSH-Px í blóði búfjár er góður
mælikvarði á selenbúskap, en selenskortur leiðir til
búfjársjúkdóma. Virkni GSH-Px ímannablóði erekki
48
LÆKNANEMINN 1^989-42. árg.