Læknaneminn - 01.10.1989, Page 54
hjartans og með stærðfræðilegri greiningu á þeim ntá
skilgreina eiginleika tveggja aðskildra hólfa (A og B)
sem geyma og losa kalsíumjóna. Þessi greining hefur
verið í þróun á undanförnum 2 árum og er þetta
verkefni liður í nánari skilgreiningu á eiginleikum
hólfanna A og B.
Rannsóknartækni: Unnið verður með ræmur úr
gáttum (atria) marsvína sem strax að lokinni einangrun
erkomið fyrirívöðvabaði. Notuð verðurTyrode-lausn
við 32° C. Könnuð verða áhrif á samdráttarkraft
(kraftur við 1 Hz samdráttartíðni, kraftaukning eftir
aukaslag, kraftaukning við paraða ertingu, mekanisk
resitution) og hrifspennur (lögun hrifspennu og e.t.v.
jónastraumar). Öll úrvinnsla gagna og tölfræðilegir
útreikningar eru unnir í tölvu.
Markmið: I þessum þætti verkefnisins erætlunin
að rannsaka áhrif nokkurra lyfja sem auka
samdráttarkrafthjartans (digitalis, adrenalín, dópamín)
og annarra sem minnka samdráttarkraftinn (verapamíl,
kínidín, karbakólín) á stærðir og hraðafasta sem lýsa
kalsíumhólfunum A og B. Með þessu móti er unnt að
afla mikilvægra upplýsinga um eiginleika
frumuhólfanna A og B. Þar að auki ættu að fást
gagnlegar upplýsingar um verkanir og verkunarhátt
lyfjanna sem notuð verða.
Ahrif nokkurra málma á samdrátt og
hrifspennur í hjarta.
Umsjónarkennari: Magnús Jóhannsson.
Rannsóknarstofa í lyfjafræði
Innganeur: Ýmsir málmar (málmjónir) hafa
kröftug áhrif á starfsemi hjartans, ýmist á raffyrirbæri
eða á samdrátt. Sem dæmi má nefna að Cs+ blokkar
suma kalíumstrauma, Sr2+ og Ba2+ geta í sumum
tilvikum komið í stað Ca2+ en ekki í öðrum, nokkrir
málmar blokka kalsíumstrauma (La3+, Ni2+, Mn2+,
Co2+) og ýmsir málmar hafa tilhneigingu til að valda
hjartsláttartruflunum.
Rannsóknartækni: Unnið verður með ræmur úr
gáttum (atria) marsvína sem strax að lokinni einangrun
erkomiðfyrirívöðvabaði. Notuð verðurTyrode-lausn
við 32° C. Könnuð verða áhrif á samdráttarkraft
(kraftur við 1 Hz samdráttartíðni, kraftaukning eftir
aukaslag, kraftaukning við paraða ertingu) og
hrifspennur (lögun hrifspennu og e.t.v. jónastraumar).
Öll úrvinnsla gagna og tölfræðilegir útreikningar eru
unnir í tölvu.
Markmið: Kannaðar verða verkanir nokkurra
málma sem vitað er að geta haft veruleg áhrif á hjartað
án þess að verkanir eða verkunarháttur sé nánar þekktur.
Þeir málmar sem einkum kæmi til greina að nota eru
Mg2+, Zn2+, A13+, Fe2+, Cr2+, Sr2+ og Pb2+. Sumir
þessara málma eru notaðir í lyfjum og sumir koma
iðulega fyrir við eitranir. Verkefnið miðar að því að
skilgreina nákvæmlega í h verju verkanir þessara málma
á hjartað eru fólgnar en slíkt er áhugavert út frá fræðilegu
sjónarmiði. Verkefnið ereinnig áhugavert út frá kl ínisku
sjónarmiði þar sem aukin þekking á þessu sviði getur
t.d. stuðlað að markvissari meðferð eitrana.
Uppbygging krafts eftir ertingu og
staðsetningu virkjunarkalsíums í hjarta.
Umsjónarkennari: Magnús Jóhannsson.
Rannsóknarstofa í lyfjafræði
Inngangurog markmið: Við bestun á ferlum sem
sýna uppbyggingu krafts eftir ertingu (mechanical
restitution) höfum við fundið að ferlarnir byrja yfirleitt
0,1 til 0,2 s eftir síðustu ertingu (táknað með tO). tO er
því af svipaðri stærð og lengd samdráttar eða lengd
hrifspennu. Stungið hefur verið upp á því að
virkjunarkalsíum losni við ertingu annað hvort frá
frymisneti (SR) eða innfleti frumuhimnu (SL). Færa
má augljós rök fyrir því að losni Ca++ einkum frá SL
þá sé tO háð lengd hrifspennu en ekki lengd samdráttar;
losni Ca++ einkum frá SR þá sé tO háð lengd samdráttar
en ekki lengd hrifspennu. Það er því augljóslega mjög
áhugavert að kanna samband tO og lengdar samdráttar
og hrifspennu við aðstæður sem breyta þessum stærðum.
Þarer af nógu að taka, svo sem hitastig, kalsíumþéttni,
koffein, pínasidíl og fl. Hér er um vel afmarkað
verkefni að ræða sem þó getur veitt svör við áleitnum
spurningum.
Rannsóknartækni: Unnið verður með
papillarvöðva og ræmur úr gáttum (atria) marsvína
sem strax að lokinni einangrun er komið fyrir í
vöðvabaði. Notuð verður Tyrode-lausn við 32° C.
Könnuð verða áhrif á samdráttarkraft og uppbygging
krafts eftir ertingu mæld þannig að ákvarða megi tO
með nægjanlegri nákvæmni. Einnig verða mældar
hrifspennur (lögun hrifspennu og e.t.v. jónastraumar).
ÖIl úrvinnsla gagna og tölfræðilegir útreikningar eru
unnir í tölvu.
52
LÆKNANEMINN l-+1»-42. árg.