Læknaneminn - 01.10.1989, Page 55
Tóbaksnautn í læknadeild
- venjur og viðhorf -
Sigrún Reykdal og Þorsteinn Blöndal
Lyflækningadeild Landspítalans
INNGANGUR
Reykingavenjur eru furðu breytilegar m. a. eftir
lengd skólagöngu og starfsstétt (1). Viðhorf íslenskra
læknanema til tóbaks hafa lítt eða ekki verið könnuð né
heldur hve oft eða mikið þeir reykja. Ekki er heldur
vitað hvort þeir breyta venjum sínum eða viðhorfum að
þessu leyti meðan á námi stendur. Það þótti því ástæða
til að huga nánar að þessu efni.
EFNIVIÐUR OG
AÐFERÐIR
Athugun áreykingavenjum íslenskra læknanema
var hluti af alþjóðlegri könnun, sem gerð var í 14
Evrópulöndum, á vegum Alþjóðlega Berkla- og
lungnasjúkdómafélagsins (Intemational Union Against
Tuberculosis and Lung Disease) (2). Könnunin var
gerð í Austurríki, Belgíu, Bretlandi, Danmörk,
Finnlandi, Frakklandi, íslandi, Póllandi, Portúgal,
Rúmeníu, Tékkoslóvakíu, Tyrklandi, Ungverjalandi
og Þýskalandi. Staðlaðir spumingalistar, samdir af
Tóbaksvamanefnd Alþjóðlega Berklafélagsins, voru
lagðir fyrir læknanemana (mynd 1). Spurt var um
reykingavenjur, þekkingu á skaðsemi reykinga og
viðhorftil reykingaog reykingavama. Til að auðvelda
samanburð við kannanir Hagvangs fyrir
tóbaksvamarráð voru einnig spumingar Hagvangs um
reykingar lagðar fyrir læknanema (mynd 1). Hér á
landi voru spurningalistarnir lagðir fyrir þrjá árganga
læknanema á 1. og 6. árin. Um er að ræða árin 1985-
’86,1987-’88og 1988-’89. íöllum tilvikum, nema hjá
læknanemum á 1. ári 1988-’89, var könnunin gerð á
haustmisseri. Alls voru 305 læknanemar á 1. og 6. ári
spurðir. Að meðaltali náðist til 84% skráðra læknanema
en nemendur vissu ekki fyrirfram um könnunina.
Úrvinnsla var gerð með SPSS/PC forritinu (3).
NIÐURSTÖÐUR
Á tímabilinu frá 1985-1989 mældist næstum
fjórfalt fall ítíðni daglegrareykingameðal læknanema
(tafla I). Ef nemendur 1. árs eru bornir saman á þessu
TAFLA I: Reykingarvenjur íslenskra læknanema eftir árum.
Ár Hafa ekki revkt Hætt Revkia minna en daglega Revkia daelega* Alls
No. % No. % No. % No. % No.
1985 75 60,0 13 10,4 17 13,6 20 16,0 125
1987 77 69,4 16 14,4 10 9,0 8 7,2 111
1988 45 65,2 11 15,9 10 14,5 3 4,3 69
(* kí kvaðrat 7,67, p 0,05)
LÆKNANEMINN l-Vim-42. árg.
53