Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1989, Qupperneq 61

Læknaneminn - 01.10.1989, Qupperneq 61
Staða kvenna í læknastétt á íslandi Helga Hannesdóttir, læknir Tildrög þessarar greinar eru einkum og sér í lagi fjölgun kvenna í læknanemastétt og jafnframt fjölgun kvenna meðal unglækna á undanfömum árum á Islandi. Þar sem sýn kvenna á mörgum málum er önnur en sýn karla, mun það óhjákvæmilega í framtíðinni leiða til breyttra starfshátta í kennslu læknanema í Háskóla Islands og innan stéttarinnarog á lækningum almennt í landinu. Frá því að læknanemakennsla hófst hér á landi árið 1760, að Nesi, fyrir tilstuðlan Bjarna Pálssonar þá- verandi landlæknis, er enginn vafi á því, að sjónarmið karla í læknastétt hafa mótað læknavísindi og lækningar á Islandi. Það er því afar eðlilegt, að mörgum konum í læknanemastétt og læknastétt finnist að þörf sé á breytingum, enda allt önnur þjóðfélagsleg viðhorf ríkjandi ísamfélaginu ídag. Einnighafa litlarbreytingar átt sér stað í læknavísindum undanfarna áratugi að undantekinni aukinni tæknivæðingu og örfáum nýjum sérgreinum eins og t.d. ónæmisfræði. Óhætt er því að segja, að það sé þörf á nýrri sýn, rödd og hugsun í fagið og kennslu læknanema til að stuðla að auknum framförum. Hin þjóðfélagslega umræða úr hinum vestræna heimi um málefni k venna og stöðu þeirra í þjóðfélaginu hefur haft víðtæk áhrif innan margra starfsgreina á síðustu árum. Innan læknisfræðinnar er að mörgu að hyggja til breytinga. Sýn og hugsun kvenna er því bráðnauðsynleg og álíta sumir, að konur í læknastétt einblíni á aðrar greiningaraðferðir og meðferð en karlar almennt í stéttinni. Einnig hafa konur í Iæknastétt haft sérstakan skilning á fyrirbyggjandi aðgerðum og lagt áherslu á rannsóknarvinnu og má t.d. hér á landi minnast á forvarnarstörf Katrínar Thoroddsen bamalæknissemmargirþakkahinnlágaungbamadauða á landinu. Katrín varfyrsti yfirlæknir ungbarnaverndar Heilsuvemdarstöðvarinnar og þar áður Líknar og skrifaði ýmis rit um meðferð ungbarna og Ieiðbeiningar handa foreldrum ungbarna og lagði drög að reglugerðum á landsvísu fyrir ung- og smábamaeftirlit og vemd. Á bak við allan heilsufarslegan vanda eru oftast ótal orsakaþættir og til þess að bati náist þarf hið læknisfræðilega inngrip að taka til sem flestra þessara þátta. Sumir álíta að vegna margbreytilegra hlutverka kvenna á lífsferli þeirra eigi konur mun auðveldar en karlar með að sjá fleiri en eina skýringu á vandanum og fleiri en ein orsök atburðar og jafnframt beita fleiri lækningaaðferðum. Einnig að konur eigi auðveldara en karlar með að líta til líkama og sálar samtímis og fá þannig heildarsýn á málum og almennt víðtækari skilning á orsökum sjúkdóma. Með fjölgun kvenna í læknanemastétt og læknastétt mun læknisfræðin e.t.v. íauknummæli hverfafráeinstökum líffæralækningum eins og tíðkast hefur innan læknisfærðinnar undanfama áratugi. Þess í stað verða sjúkdómar og vandamál skoðuð í tengslum við einstaklinginn í heild sinni og innan fjölskyldu hans. Á undanförnum árum hefur í nágrannalöndum okkar átt sér stað mikil umræða um þessi mál meðal Tafla 1. Hlutfallsleg skipting lækna og kandídata milli kynja 31. desember 1987 Samtals Kandídatar Læknar Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Samtals 1149 100 135 100 1014 100 Karlar 980 85 98 73 882 87 Konur 169 15 37 27 132 13 LÆKNANEMINN 1-2/1989-42. árg. 59
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.