Læknaneminn - 01.10.1989, Síða 70
boðið upp á stöðugleika í fulltrúavali undanfarin ár.
Þetta hefur gert að verkum að stúdentar í kennslunefnd
læknadeildar eru oft og tíðum þeir sem hafa mesta
reynslu af störfum nefndarinnar. Slíkur stöðugleiki
gerir óhjákvæmilega að verkum að á hverjum tíma eru
það ekki hvað síst stúdentar sem þekkja best til þeirra
mála sem rædd eru hverju sinni. Þessari stöðu vijum
við halda áfram til að tryggja sem best að hlutur
stúdenta í ákvarðanatöku nefndarinnar verið sem mestur
á hverjum tíma og að sjónarmið stúdenta komi sem best
fram í þeirri stefnu sem nefndin markar.
Að lokum viljum við þakka öllum þeim
stúdentum sem hafa aðstoðað okkur í vetur, sem og
öllum þeim sem tóku þátt í kennslumálaráðstefnunni
og tóku þátt í undirbúningi hennar. Eins viljum við
þakka kennslunefnd læknadeildar fyrir ánægjulegt
samstarf á liðnum vetri.
Olafur Þór Gunnarsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Ema Milunka Kojic
Ebba M. Magnúsdóttir
Helga Edwald
SKÝRSLA
ÍÞRÓTTANEFNDAR
1988-1989.
íþróttastarfið sl. vetur var í litlu frábrugðið því er
tíðkast hefur, enda eru nefndarmenn ílialdsmenn miklir
og fastheldnir á fomar hefðir. Mannaskiptangar eru
fátíðar því það telst mikill heiður að eiga sæti í þessari
göfugu og virtu nefnd. Þó gerðist sá einstæði atburður
að fyrri hluta vetrar átti 4. árið engan mann í nefndinni.
Úr rættist þó um síðir og fékkst loks hinn ágætasti
drengur í starfið.
I október var haldið knattspyrnumót á
gerfigrasvellinum í Laugardal og þar sigruðu 1. árs
menneftirharðvítugaviðureign við5. árið. I nóvember
kepptu menn í körfuknattleik og enn varð 5. árið í öðru
sæti eftir að hafa tapað úrslitaleik við 6. árið (ósanngjamt
að sumir sögðu).
Eitthvað virtist jóalfríið sitja í 5. árs mönnum er
þeir urðu einungis í þriðja sæti í skákmóti, sem haldið
var í febrúar. Sigurvegarar urðu 6. árs menn og lenti 1.
árið í öðru sæti. Síðasta mótið á vetrinum var í apríl og
var keppt í innanhúss knattspyrnu. Einungis þrjú lið
mættu til leiks og var þar 5. árið fremst í flokki. Úrslit
í þessu móti verða ekki tíunduð hér, en það var mál
manna að 5. árið hafi þama sýnt umtalsverða andlega
yfirburði.
Kvenþjóðin hefur lítið haft sig í frammi í
íþróttalífi deildarinnarog erumdeilanlegt hverjum um
er að kenna. Vonandi er bjartari tíð framundan hvað
varðar íþróttaþáttöku kvenna.
f.h. íþróttanefndar
Sigurjón Kristinsson.
ÁRSSKÝRSLA
STÚDENTASKIPSTJÓRA
1988-1989.
Með hverju ári virðist erlendum læknanemum
sem koma vilja til Islands alltaf vera að fjölga og eitt er
víst að færri komast að en vilja. I sumar komu hingað
alls 24 skiptinemar á vegum F.L. og skiptust þeir
þannigeftirlöndum: 5fráHollandi,3fráSvíþjóð, 1 frá
Þýskalandi,2fráTékkóslóvakíu, 1 fráGrikklandi, 1 frá
Austurríki, 3 frá Italíu, 4 frá Bretlandi og 4 frá Spáni.
Flest voru þau á Landspítalanum en 4 voru á
Borgarspítalanum, 2 á sjúkrahúsinu á Isafirði, 2 á
rannsóknarstofu Krabbameinsfélagsins og 1 á
rannsóknarstofu Háskólans.
Alls sóttu um 20 íslenskir læknenemar um að
fara út sem skiptinemar. Út fóru 15, hinir hættu við.
Islensku skiptinemamir fóru til Italíu (2), Spánar (1),
Egyptalands (2), Tékkóslóvakíu (2), fsrael (4),
Grikklands (2), Bretlands (1) og Þýskalands (1).
Vinna í tengslum við stúdentaskiptin einkenndust
dálítið af erfiðleikum við að útvega þeim skiptinemum
sem hingað komu húsnæði. Ekki reyndist unnt að fá
nema 1 herbergi á Landspítalanum, en auk þess fá allri
skiptinemar þar afnot af hreinlætisaðstöðu og fæði.
Reynt var að fá inni í Stýrimannaskólanum eins og í
fyrra en það gekk ekki. Því urðum við að leigja
herbergi fyrir skiptinemana auk þess sem notast var við
hús F.L. við Suðurgötu en ljóst er að ekki er grundvöllur
fyriraðnotaþaðtil frambúðar. Afþeim læknenemum
sem komu hingað voru 5 sem borguðu sína húsaleigu
að hluta sjálfir þar sem enginn íslenskur læknanemi fór
68
LÆKNANEMINN l-Vim-42. árg.