Læknaneminn - 01.10.1989, Blaðsíða 71
út í þeirra stað og ekki reyndist unnt að útvvega þeim
frítt húsnæði. Hjá flestum læknanemafélögum erlendis
er fyrirkomulagið þannig að þeir læknanemar sem fara
út sem skiptinemar þurfa að borga félagi sínu ákveðan
upphæð. Það er stór spurning hvort F.L. ætti ekki að
taka upp eitthvað svipað kerfi, t.d. að hver sá sem fer út
héðan útvegi eins og einum erlendum læknanema
húsnæði. Kemur það væntanlega í hlutverk næstu
stjómar að ræða þau mál.
Stúdentaskiptin fara að mestu fram í gegnum
alþjóðasamtök læknanema IFMSA. Svipuð starfsemi
er á vegum alþjóðasamtaka viðskiptafræðimenga,
AIESEC, og verkfræðinema, IAESTA. Viðskipta- og
verkfræðinemarnir skipuleggja mikið og gott sumarstarf
og nutu skiptinemamir okkar góðs af. Skipulagðar
voru ferðir víða um land svo til hverja helgi í sumar og
svo var hist í Stúdentakjallaranum á hverju
þriðudagskvöldi.
Tvær ráðstefnur voru á árinu á vegum IFMSA,
sú fyrri var í Hollandi í mars og hana sótti ég undirrituð.
A henni voru m.a. stúdentaskiptin milli landa ákveðin
fyrirsumarið. Sú seinni var íPortúgal íágústog varþað
aðalráðstefna samtakanna. Fulltrúar íslenskra
læknanema á henni voru Nanna S. Kristinsdóttir aðst.
stúdentaskiptastjóri og Auður Smith meðstj.
í heildina gengu stúdentaskiptin ágætlega utan
þess sem fyrr er sagt um húsnæðismálin. Flestir
erlendu Iæknanemanna voru ánægðir með dvölina hér
og vonandi einnig þeir sem fóru út héðan.
Að lokum vil ég þakka fráfarandi stjórn F.L. og
Nönnu fyrir samtarfið og óska nýrri stjórn góðs gengis.
Guðrún Karlsdóttir, stúdentaskiptastjóri.
ÁRSSKÝRSLA
FRÆÐSLUNEFNDAR
1988-1989.
Fræðslunefnd hélt þrjá fræðslufundi síðasta vetur.
Fyrsti fundurinn var í nóvember og kynntu þar þrír
læknemar B.S. verkefni sín. Næsti fundur var í janúar
og fjallaði um illa meðferð á börnum. Það var Gestur
Pálsson, barnalæknir, sem gerði þessu efni mjög góð
skil. Síðasti fundurinn var svo í febrúar og voru
frummælendur Kristbjörg Þórhallsdóttir, frá samhjálp
kvenna, og Þórarinn Sveinsson yfirlæknir, og ræddu
þau um brjóstkrabbamein og þá reynslu að missa
brjóst. Mæting var allgóð á fyrstu tvo fundina en
sorglega fáir mættu á þann síðasta sem þó var mjög
góður. Vil ég nota tækifærið og hvetja fólk til að sýna
fræðslufundum F.L. meiri áhuga, sem aftur myndi
margefla fræðslunefnd til frekari dáða.
Annað verkefni fræðslunefndar er að sjá um
fræðabúr F.L. Af ýmsum ástæðum vantar orðið nýrri
gögn í sumum fögum en í öðrum stendur það fyrir sínu.
Endurskipulagning kennslu í læknadeild getur m.a.
þýtt að fræðabúrið úreldist enn frekar. Við því er hægt
að bregðast með tvennu móti. Annars vegar mætti
vinna upp nýtt fræðabúr á því formi sem það er nú.
Hins vegar mætti hugsa sér breytt fræðabúr sem
samanstæði af því sem fáanlegt er af eldri prófum en
fyrst og fremst tímaritum og greinum. Einnig eru ef til
vill möguleikar í framtíðinni á að fræðslunefnd eignist
kennsluforrit sem félagsmenn hefðu aðgang að. Til að
fræðabúr o.fl. nýtist félagsmönnum sem best tel ég
brýnt að F.L. fái sem fyrst aðstöðu að Hrafnseyri og
flytji a.m.k. þennan hluta starfssemi sinnar þangað.
f.h. Fræðslunefndar F.L.
Anna Stefánsdóttir.
ÁRSSKÝRSLA
RÁÐNINGASTJÓRA F.L.
1988-1989.
Vinna: Nokkru færri afleysingastöður voru í
boði fyrir læknanema veturinn 1988-1989 en '87-'88.
Framboð á vinnu var þó mun meira en eftirspurn skv.
eftirfarandi samantekt. (Vinnudagar sem ekki tókst að
manna eru í sviga):
Okt: 79(79) Nóv: 58(7) Des: 77(11) Jan: 60
(39) Feb: 45 (30) Mars: 60 (65) Apríl: 50 (22) Maí:
135 (4)
Sumarið 1989 voru færri stöður í boði en sumarið
'88 enda var framboð á vinnu þá sérlega mikið.
Síðastliðið sumar skiptust vinnudagar þannig: (I sviga
það sem ekki tókst að manna):
Júní: 790(150) Júlí: 1229(201) Ágúst: 1073
(198)
Sept: 245 (22).
LÆKNANEMINN 1—^989-42. árg.
69