Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1989, Síða 76

Læknaneminn - 01.10.1989, Síða 76
hefur engin þó haft eins mikil áhrif á líf okkar og Vingull - andlegur leiðtogi vor og óhrekjanlegur lœrifaðir. VINGULL (áður Abdú Atarí þriðji) Óralangt í burtu (jafnvel lengra en orðið langur inniber) erdulstirnið MIO. Þarlifatíeyringar, sem eru sexhyrndar verur af strumpastærð. Flestar eru þær með gul augu en þó sumar með græn. Til seinni hópsins taldist Vingull, en nafnið hlaust af allri þeirri reiðinnar býsn af blaðgrænu, sem um æðar hans vall. I bakgarði menntaseturs æðri vísinda á dulstirninu MIO situr Vingull hnugginn með kollinn troðinn af þeirri hrópandi staðrey nd, að hann hefur lent í 11. sæti af 10-tíeyringaklásus læknadeildar tíeyringa (þess ber að geta, að tíeyringar trúa því, að tugurinn sé hið æðsta form tilverunnar á MIO). En viti menn - hvað sér Vingull annað en vin sinn loftsteininn Asbjörn á flugi yfir MIO. „Hvað gengur að, Vingull minn,” spyr Ásbjörn blíðlega. Og þegar Vingull hefur rakið raunir sínar fyrir vini sínum, segir Ásbjöm loftsteinn: „Komdu bara með mér, ég skal sýna þér.” Og þeir félagar halda á brott frá tíeyringastiminu MIO, þar sem tugurinn tröllríður tíeyringum. Ekki líður á löngu þar til Ásbjörn og vinur hans Vingull tíeyringur koma að gufuhvolfi jarðar. Vitandi um hættur þess að smjúga þar um minnkar Ásbjöm loftsteinn hraðann - en árangurslaust. Hann brennur upp í gufuhvolfinu og splundrast í sínar smæstu agnir (og jafnvel enn smærri en það). Hið síðasta sem Vingull tíeyringur heyrir frá vini sínum áður en hann leysist upp og gengur á vit forfeðra sinna, geimryksins, er sú máttuga setning: „Eigi skal gráta Ásbjöm loftstein.” En tíeyringar eru þekktir um allt himinhvolfið fyrir forsjálni og ferðast jafnan með vasa-geimskip, er blása má út í neyðartilfellum. í brjóstvasa hinna teinóttu Kóróna-jakkafata sinna bar Vingull tíeyringur einmitt eitt slíkt, sem hann fékk í verðlaun fyrir æðisgenginn lífróður í hinni árlegu kanóakeppni á fljótinu Klórófíl á M10. Og fyrir vikið varð söguhetju okkar undankomu auðið og lenti mjúkri lendingu í miðborg Zúrich. En svo óheppilega vildi til, að villst var á honum og forsprakka nýnasistahreyfingarinnar „Glampi í myrkri” (“Blitzkrieg fúr alle”). Vingli tíeyring var stungið í tugthús og kynntist óblíðum höndum lögregluforingjans Herm Professor Erich Zuckerkandl. Lyktir málsins urðu þær, að Vingull tíeyringurvarflutturáuppeldisheimilifyriróbótamenn í 3.000 m hæð við jökulinn Brustdrúse, en þangað var aðeins fært á sumrin og þá aðeins á negldum. En Vingull hafði kynnst Tinna-bókunum, er hann taldi vera mannkynssöguna í máli og myndum, og lært að bregðast við sérhverri klípu. Hann dulbjó sig sem sítrónusala og komst til byggða þar sem hann tók upp gervi trúbadúrs. Vingull tíeyringa-trúbadúr spilaði nú á helstu torgum Evrópu og önglaði sér inn peninga til læknanáms. Þegar hann hafði rakað saman nægu fé kynntist hann fyrirsætunni Glendu, sem sýndi listir sínar í dálitlu baðkari úr gegnsæju efni sem á var letrað áframandi tungu “The Sexy-Susan Show”. En Vingull tíeyringur skynjaði ekki eðli málsins og því verður sú saga ekki frekar rakin. Ekki var að sökum að spyrja - fyrirsætan Glenda og Vingull tíeyringur felldu saman hugi og hófu samltfi af astrónómiskri stærðargráðu (og jafnvel enn stærra en það). Hugir þeirra krulluðust saman og limir þeirra fléttuðustíeinaórofaheiId. Þaufluttu þvííGrjótaþorpið. Vingull hóf loks að nema hin göfugu fræði. Fátt eitt er annað að segja um vin okkar Vingul tíeyring en að honum sóttist námið vel. Það sem telst helst frásagnarvert er sú uppgötvun hans, að hann var hreintekki einageimveran íhinni íslenskulæknadeild. Má nefna nágranna hans á dulstiminu M10, sem var árinu á undan og reyndist nú vera ljóshærð og bláeyg stúlka. Sumir kennaranna voru einnig pólitískir flóttamenn frá fjarlægum (og jafnvel enn fjarlægari en það) stjörnukerfum - einn þekkti hann m.a. frá svartholi einu, sem frægast var fyrir ólifnað og saurlífisseggi. Loks get ég varpað öndinni léttar, er svo miklu fargi er svipt af minni þjáðu og sundurtættu sálu. Megi ég hverfa héðan laus úr viðjum hins ógnþrungna sannleika og ganga glaður út í hinn nýja dag. Ismar Ingimagnsson, cand theol. (Ingólfur Johannessen og Pétur Benedikt Júlíusson) 74 LÆKNANEMINN l-%>89-42. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.