Læknaneminn - 01.04.1990, Blaðsíða 9
Mynd3. “Hulinn RF". Halahluti IgG mótefna tengist
bindisetum RF og lokar þeim, þannig að RF verða
ógreinanlegir með hefðbundnum aðferðum.
magnið sé minna en hjá þeim sem greinast jákvæðir
með hefðbundnum aðferðum.
I sermi sumra sjúklinga með RF hafa fundist
mótefni senr beinast gegn bindisetum RF (RF anti-
idiotypic antibodies) (11,12). í nægilegu magni gætu
slík mótefni bundist á RF og lokað eða aflagað
bindiset þeirra, þannig að þeir yrðu ómælanlegir, líkt
og “huldir RF”.
Eins og fyrr sagði eru RF gagnlegir til greiningar á
liðagigt, en RF hækkanireru þó alls ekki einskorðaðar
við gigtarsjúkdóma eins og sjá má á töflu I. RF
hækkanir finnast með kekkjunarprófum í allt að 80%
sjúklinga með liðagigt, sérstaklega ef um er að ræða
slæman sjúkdóm með gigtarhnútum og beinúrátum.
Nærri allir sjúklingar með Sjögren’s syndrome hafa
RF og allt að 40% sjúklinga með lupus erythematosus
og scleroderma (13).
I sýkingum og öðrum sjúkdómum, þar sem RF eru
hækkaðir er um sífellt vækisáreiti að ræða og/eða
rnyndun á ónæmisfléttum (immune complexes). Það
er talið geta stuðlað að myndun á RF. Þetta er
sérstaklega vel þekkt í hjartaþelsbólgu (subacute
bacterial endocarditis). Þegar búið er að útrýma
orsakavaldinum með sýklalyfjagjöf hverfur RF smám
saman.
Vitað er um ýmislegt, sein getur komið af stað RF
myndun, jafnvel hjá heilbrigðum einstaklingum.
Má þar nefna :
1) Oeðlilega mikil myndun eða uppsöfnun á
ónæmisfléttum veldur ræsingu á B-frumum og/eða T-
frumum, sem hvetur RF og aðra mótefnaframleiðslu.
2) Osértæk ræsing á B-frumum t.d. með Epstein-Barr
veiru (polyclonal B-cell activators).
Tafla 1. Sjúkdómar með hækkun á RF.
GIGTARSJÚKDÓMAR :
Rheumatoid arthritis, Sjögren’s syndrome, systemic lupus erythematosus,
mixed connective tissue disease, scleroderma.
SÝKINGAR (bakteríur - veirur - parasítar) :
Subacute bacterial endocarditis, tuberculosis, lepra, syphilis, mononucleosis,
hepatitis, influenza, AIDS, trypanosomiasis, leishmaniasis, schistosomiasis.
KRABBAMEIN :
RF finnst í mörgum gerðum krabbameins. Magn getur aukist við geisla-eða
lyfjameðferð.
ÝMISLEGT:
Hypergammaglobulinaemia, þrálátir lungnasjúkdómar, lifrarsjúkdómar,
geðsjúkdómar, i.v. eiturlyfjaneysla, bólusetningar, blóðgjafir og fleira.
LÆKNANEMINN 1 1990 43. árg.
7