Læknaneminn - 01.04.1990, Side 34
Liðáverkar á höndum.
Liðhlaup í carpometacarpalliðum.
Metacarpalbeinin 4 eru tengd carpalbeinum með
sterkum liðböndum baklægt en nokkru veikari
lófamegin. Stutt en kröftug liðbönd tengja basalhluta
miðhandarbeina innbyrðis. Loks eru intermeta-
carpalliðböndin (transversal metacarpal ligament)
sem tengja saman liðhausa miðhandarbeina.
Liðhlaup í carpometacarpalliðum eru fremur
sjaldgæf, og oftast samfara meiri háttar áverkum,
eins og t.d. mótorhjólaslysum. Þau hafa einnig
komið fyrir í vaxandi mæli við karate æfingar og
handarhögg.
Milli carpalbeina og miðhandarbeina II og III er
engin hreyfing, aftur á móti er IV. og V. miðhandar-
bein vel hreyfanlegt í basalhlutanum og getur færst
til ca. 15 gráður í sagittal plani.
Liðhlaup í baklæga stefnu á miðhandarbeinum er
mun algengara en í lófalæga. Mikil bólga og
blæðing er samfara þessum meiðslum og er
þýðingarmikið að geta leiðrétt þessi liðhlaup sem
fyrst. Nauðsynlegt er að fá góða rtg.myndir og er
heppilegast að fá mynd af hverju einstöku beini
fyrir sig. Alltaf þarf að nota innri festingu eftir að
liðhlaupið hefur verið lagfært og er þá oft notaðir
K-vírar. Þó hugsanlegt sé að lagfæra þessi liðhlaup
óblóðugt og festa þau með transcutan vírum, þykir
hitt öruggara að fríleggja liðina, bæði til að komast
hjá interposition og hugsanlega að sauma liðbönd.
Liðhlaup í CMC-lið þumalfingurs eru sjaldgæf,
komi þau á hinn bóginn fyrir eru þau leiðrétt á sama
hátt og Bennets brot og fest með K-vírum percutant.
Liðbandaslit í grunnlið þumalfíngurs.
Liðbandsslit á MCP-iið þumalfingurs koma oft
fyrir í sambandi við fráfærandi átak á fingurinn og
slitnar þá liðbandið ulnart á liðnum, (lig.collat.uln.).
Algeng orsök eru áverkar á liðinn við skíðameiðsli,
svo og við áflög og handalögmál. Nær alltaf rifnar
liðbandið frá kjúkufestunni og getur þá rifið með sér
beinbita frá liðbrúninni. Þegar um algjört slit er að
ræða, dregst liðbandið upp fyrir festuna á adductor
vöðvanum og grær ekki á sinn stað án skurðaðgerðar.
Fingurinn hefur þá tilhneigingu að liðskekkjast á radial
stefnu og gripið í þumalfingursgreipinni verður
kraftlaust. Þetta liðbandaslit þarf alltaf að lagfæra
með skurðaðgerð. Áverkar á collat. liðbandið radialt
á fingrinum er mun sjaldgæfara en ef það slitnar þarf
venjulega að sauma það.
Liðhlaup í MCP-liðum
Við liðhlaup í MCP-liðum slitnar volarplatan
óhjákvæmilega þar sem um baklægt liðhlaup er að
ræða.
Volar platan er úr þykku trefjaplasti og er fest
kröftuglega við frambrún á basalliðflöt nærkjúku
annars vegar, en hins vegar fremur Iauslega fest
lófamegin ofan við liðhausinn. Til hliðanna er
volarplatan tengd djúpa transversal MC-liðbandinu.
Við átak á fingurna í radial- eða ulnarstefnu
getur collat. ligamentið slitnað og verður þá
subluxation í MCP-Iiðum sem auðvelt er að Iaga en
oft þarf að sauma collat. ligamentið. Stundum rífur
ligamentið með sér brot úr liðfleti nærkjúku.
Liðhlaup í MCP-liðum verða til við ofréttingar á
þessum liðum. Þau eru sjaldgæf nema í þumalfingri
og vísifingri og eru kölluð compliceruð þegar ekki er
hægt að lagfæra þau án skurðaðgerðar.
Liðhlaup í MCP-lið þumalfíngurs.
Liðhlaupið er oftast baklægt og afleiðing af
ofréttingaráverka. Nærkjúkan færist yfir liðhausinn
baklægt á miðhandarbeini og dregur með sér
sesambeinin og volar plötuna. Það er því nærkjúkan
og volarplatan með sesambeinum sem rennur aftur
fyrir liðhaus miðhandarbeinsins. Metacarpalliðhaus-
inn þrýstist út um liðpokann þar sem volarplatan hefur
rifnað frá, og lendir á milli sinafestanna á adductor
pollicis á medial sesambeininu annars vegar og
32
LÆKNANEMINN 1 1990 43. árg.