Læknaneminn - 01.04.1990, Side 38

Læknaneminn - 01.04.1990, Side 38
Mænuvökvi Sigurður Thorlacius læknir Á erlendum tungumálum nefnist mænuvökvinn heila- og mænuvökvi, sem er í sjálfu sér eðlilegri nafngift en mænuvökvi, þar sem hann myndast nær eingöngu í heilanum og mestur hluti hans fer aldrei niður í mænu, en orðið mænuvökvi hefur öðlast fastan sess í íslensku máli og mun ég því notaþað. Fyrstu heimildir um mænuvökva sem varðveist hafa eru skráðar í papírushandriti, sem menn telja frá 17. öld f. Kr. og á fjórðu öld f. Kr. skrifaði Hippo- crates (460-377 f. Kr.) um vökva í holrúmum í heil- anum, en taldi hann óeðlilegt fyrirbæri. Mynd 1. Skipting sálarinnar samkvæmt kenningunni um heilaholin (Gregor Reisch, 1504). Síðar kom frarn kenning um heilaholin til að útskýra leyndardóma sálarinnar. Kenningin átti rætur að rekja til hugmynda Aristoteles (384-322 f. Kr.) og Galenus (131-200 e. Kr.), en var þróuð nánar af kirkjunnar mönnum í Róm, Nemesius og Augustinus, á fjórðu öld e. Kr. Kenningin byggðist á því að sálin eða andinn hefði aðsetur í heilaholunum. Næringar- efni streymdu frá þörmunum með portæð til lifrar og urðu að náttúrulegum anda, sem blandaðist lífsanda lungnanna og blandan streymdi upp í heila. Þar myndaðist sálrænn andi eða sálarloft, sem lék um og vargeymt í heilaholunum. Þeim var skipt í þrjár sellur (Mynd I). Þá fremstu tengdu menn ímyndunaraflinu. Fremst í henni var sensus communis, en þangað komu skynboð Iyktar- og bragðskyns, sjónar og heyrnar. Næstu sellu tengdu menn skilningi og rökhugsun og þá þriðju og öftustu ininni (þriðja sellan samsvarar því sem við í dag köllum fjórða heilahol). Þessi kenning hélt velli allt fram á endurreisnartímabilið og jafnvel fram undir vora daga. Árið 1543 lýsti Vesalius vökva í heilaholunum og árið 1672 fann Valsalva vökva í mænunni, sem líktist liðvökva. Pacchioni taldi (árið 1705) að vökv- inn í heilanum myndaðist í skúmkörtunum (granulationes arachnoideales) sem gjarnan eru við hann kenndar. Það var ekki fyrr en árið 1764 að almennileg grein var gerð fyrir mænuvökvanum, er Contugno lýsti tilvist hans í heilaholunum og innanskúmsbilinu (cavum subarachnoideale). Lýsing hans vakti þó litla athygli og það var ekki fyrr en á fyrri hluta 19. aldar að Magendie lýsti þessum vökva nánar. Hann sýndi fram á að vökvinn gæti streymt um op milli fjórða heilaholsins og innanskúmsbils- ins og að bilið umlyki bæði heila og mænu, en af einhverjum ástæðum taldi hann reyndar að vökvinn myndaðist í innanskúmsbilinu og streymdi þaðan til heilaholanna. Síðar á öldinni gerðu menn sér grein fyrir að streymið væri í hina áttina. Alþjóðlegt nafn vökvans, liquide céphalo-rachidien (eða á ensku 36 LÆKNANEMINN 1 1990 43. árg.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.