Læknaneminn - 01.04.1990, Side 62
Líklegast var um meðfædda hengisglufu að ræða
hjá okkar sjúklingi þar sem hann hafði verið hraustur
áður og ósennilegt í hæsta máta að fá glufu svo ofarlega
í garnahengið eftir botnlangabólgu og aðgerð hennar
vegna, sem var fylgikvillalaus.
5. MEÐFERÐ
Gamalt málstæki - sem á margan hátt gildir enn
þann dag í dag, segir: “Never let the sun set or rise
on a bowel obstruction”. Hinn gullni meðalvegur
milli aðgerðar og biðmeðferðar er þó iðulega
vandfarinn og ekki ljós. Aðalmarkmið skurðaðgerðar
er að finna orsök sjúkdómsins, uppræta hann eða
leiðrétta og nieta lífvænleika þarmsins.
Rétt er að benda á sérstöðu sjúklinga, sem (teljast)
hafa smáþarmsstíflu af völdum samvaxta eftir fyrri
skurðaðgerðir. Ef ekki eru til staðar einkenni um
drep og ástand sjúklings er viðunandi, kemur
biðmeðferð þar iðulega að góðu gagni eða í um og
yfir helmingi tilfella (14-17). Hversu lengi halda skal
biðmeðferð til streitu eru skiptar skoðanir um (8,9,14-
17), en almenna reglan er sú, að farið er f.o.f. eftir
svörun sjúklings við henni, breytingum á
sjúkdómsmyndinni og klínískum einkennum.
Endurteknar röntgenmyndir af kviðarholi eru iðulega
lil hjálpar við biðmeðferð.
Þar sem flestir sjúklingar með innhaula hafa
einkenni um garnastíflu, sem lagast ekki með
biðmeðferð er skurðaðgerð eina haldreipið. Ætíð er
mikilvægt að undirbúa sjúklinginn gaumgæfilega fyrir
aðgerð með nákvæmri vökvagjöf í æð, magaslöngu,
þvaglegg og þar sem við á sýklalyfjum. Ef um innhaul
er að ræða, þá er hinn sjálfheldi þarmur dreginn til
baka og glufunni lokað með þræði. Ekki skal klippa
glufuna upp eða stækka með eggjárni þar sem algengt
er að mikilvægar æðar liggi nærri glufunni og blóðrás
til viðkomandi þarmshluta því minnkað enn frekar (2)
(sbr. sjúkratilfellið). Drep í þarminum er numið brott
og gerð samgötun enda í enda. Almennt séð er
mikilvægt að loka glufum (sérstaklega litlum), sem
finnast fyrir tilviljun við aðrar kviðarholsaðgerðir og
koma þannig í veg fyrir afleiðingar innhaula í
sjálfheldu. Mjög stórum glufum er sjaldnar lokað.
Arangur meðferðar innhaula er háður tímabærri
60
LÆKNANEMINN I 1990 43. árg.