Læknaneminn - 01.04.1990, Síða 71

Læknaneminn - 01.04.1990, Síða 71
RODD AÐ HANDAN: Grindarholsskoðun frá hinni hliðinni. Höfundur: Joni Magee, M.D., Philadelphia, Pennsylvania. Snarað og staðfært hefir: Þórarinn Guðnason læknanemi. Þegar maður liggur á skoðunarbekk með fæturna uppi í stoðum, ogmætirskoðandanummeðleyndustu hluta líffærafræði sinnar í fararbroddi, gefst nægur tírni til að hugsa. Þar sem ég framkvæmi sjálf grindarholsskoðanir hugsaði ég um hvað hægt væri að gera til að mér liði betur. I áranna rás hafa ákveðnir þættir skoðunarinnar verið eftirminnileg- astir. Kögul (speculum) innsetningin er venjulega sársaukafyllsti hluti skoðunarinnar. Itarlegar skýringar á tilfinningum þessum og upplifunum ásamt ráðleggingum til að lina einhverjar þeirra eru kynntar hér. Litið er á samband læknis og sjúklings meðan skoðunin fer fram frá fleiri sjónarhornum og tillögur gerðar um hvernig bæta má upplifun þess sem er grindarholsskoðaður. Lítið ráð sem ég heyrði þegar ég var í læknanámi og mun aldrei gleyma kom frá yfirlækni á skurðdeild: “Allir skurðlæknar ættu að fara í kviðarholsskurð (laparotomy)einu sinni áári”. Alit hans var, aðekkert yki skilning milli læknis og sjúklings meira, en sameiginleg reynsla. I stað þess að horfa út í loftið meðan á þeim ótal grindarholsskoðunum stóð, sem ég hef gengið í gegn um, hugsaði ég mikið um hvers vegna mér mislíkuðu flestar þeirra. Eftir að ég varð aðstoðarlæknir á fæðinga- og kvensjúkdómadeild og var sjálf farin að gera slíkar skoðanir, öðlaðist ég fyrst skilning á hvað skoðandinn nákvæmlega var að gera og fór að velta fyrir mér hvað verða mætti til þess að gera framkvæmd þessa alla minna fráhrindandi. Það sem hér fer áeftir er þannig afsprengi þess sem byrjaði með nokkurs konar jórtri mínu liggjandi á bakinu á skoðunarbekk. Endur fyrir löngu var mér vísað á stofu til heimsfrægs sérfræðings til rannsókna vegna vandamáls sem hafði mikil tilfinningaleg áhrif á mig. Einn af minni spámönnunum tók sjúkrasögu mína, en grindarholsskoðunin skyldi framkvæmd af yfirmanninum sjálfum. Eg var færð til skoðunarherbergisins, mér komið fyrir í stoðum og tjaldað af á venjulegan hátt með laki yfir hnén svo að ég gat ekki séð fram fyrir þau. Skapasvæði mitt var berskjaldað fyrir hverjum andblæ í herberginu. Hinn mikli maður gekk inn og í kjölfar hans tveir samstarfsmenn. Hann gekkaðhöfðalaginu, tróndi þar yfir mér, rétti fram höndina og kynnti sig. IVIig langaði mest til að bölva honum, sparka í hann og hlæja móðursýkishlátri, en ég brosti sætt og sagði: “Sæll og blessaður”. Hvað er nú eiginlega brenglað við þessa mynd? Hvers vegna langaði mig að bregðast við með slíku offorsi? Það tók mig mörg ár að uppgötva að ástæðan er sú að kynning með handabandi vísar til þess að fólk sé jafningjar. Enþarnaláégí óvirðulegri og fárán- legri, en jafnframt nauðsynlegri stellingu, sem hindraði algerlega að við gætum mæst á nokkrum jafnréttisgrundvelli, heldur undirstrikaði hún einungis vanmátt minn. Allt þetta sjónarspil var svo fáránlegt og niðurlægjandi að það var einstaklega ógeðfelld lífsreynsla. Boðskapursögunnarer aðþegarþú kemur til að framkvæma grindarholsskoðun, þá kynntu þig meðan sjúklingurinn situr enn uppi, helst í fötum, en sé þess ekki kostur þá í það minnsta uppisitjandi. Það tekur lítinn tíma fyrir hana að Ieggjast niður og hún mun verða miklu ánægðari og finnast skoðunin manneskjulegri. Jæja, þarna eruð þið, þú á milli fóta hennar að undirbúa alskyns ókunnar pyntingar, en hún sér þig ekki. Hvað gerir þú? Raular: “Er ég kem heim í Búðardal bíður mín brúðaval. Og ég veit það verður svakapartí.....? Margir skoðendur gera ekkert. Það er að segja, þeir segja ekkert. í öllum bænum fyrir sjúklinginn talaðu !!! Segðu henni hvað þú ætlar að gera, rétt áður en þú gerir það. Afallið verður mikið minna með því móti. Eg segi venjulega : “Nú ætla ég að snerta skapabarmana og færa þá í sundur. Nú set ég fingurinn inn. Slakaðu nú á ! “ Réttara sagt þá sagði ég : “Slakaðu á ! “ áður fyrr, en er hætt því núorðið. A hverju á hún að slaka? Höndunum? Tánum? Öllum líkamanum? Það sem þú vilt að hún slaki sérstaklega á eru grindarbotnsvöðvarnir, einkum endaþarinslyftivöðvinn (m. levatorani). En þú græðir ekkertáaðsegjahenni þaðheldur. Þess vegnasegi ég henni að hún hafi vöðva sem hún klemmir saman þegar henni er mál að komast á klósett og bið hana að gera nú alveg öfugt við það og slaka á þessum vöðva. Góð aðferð er einnig að ýta fingri niðurog út rétt innan við innganginn og biðja hana að slaka á vöðvunum sem þú ýtir á. LÆKNANEMINN 1 1990 43. árg. 69
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.