Læknaneminn - 01.04.1990, Síða 72
Nú spyrð þú: “Hvað ert þú að gera með fingurna í
leggöngum konunnar þegar kögunin (speculum
examinarion) er venjulega gerð fyrst? “ Fyrst nokkur
orð um kögla (speculum). Margir sjúklingar kalla þá
“tangir”. Það vekur upp skelfilega ímynd. Stuttar
útskýringar á því hvernig verkfærið vinnur, róar flestar
spenntar taugar. Að minnsta kosti ættirðu að segja
konnunni að þú ætlir ekki að klemnta neitt eða klípa,
jafnvel þó þú hafir sjálfur lítið gaman af að spjalla.
Næsta atriði er að þau eru köld, að minnsta kosti þau
sem eru úr málmi. Þau sem eru úr plasti hafa aðra
ókosti. Krem skemmir Papanicolaous strok og
gonokokkaræktanir, svo að oft getur þú ekki notað
krem ákögulinn (speculum). Vatn skemmirhins vegar
ekkert og ef fyrir kraftaverk heitt vatn er við hendina
leysir þú tvö vandamál í einu með því að nota það á
kögulinn (speculum). Til að setja verkfærið inn eru
tværaðferðir. Þarseminngangurinnerlóðrétturvirðist
eðlilegt að setja kögulinn (speculum) inn með
hliðarbrúnir sínar framlægt (anteriort) og afturlægt
(posteriort) og snúa því svo fjórðung úr hring er inn er
komið. Aðuren þú gerirþað, ímyndaðu þéraðeinhver
skrapi með stálbita yfir þvagrásina á þér. Það er
kvalafullt!
Hugum aftur að fingrum þínum. Þeir gera fyrstu
innferðina miklu mýkri og þægilegri en kalt og hart
verkfærið. Auk þess getur þú meðan þeir eru í
leggöngunum fengið hugmynd um legu leghálsins og
þar með hvernig heppilegast er að beina köglinum
(speculum) þegar hans tími kemur og hve langt inn
hann þarf að fara. Að þessu loknu setur þú kögulinn
(speculum) inn rétt ofan við fingur þína og gætir þess
að koma ekki við þak legganganna. Gerðu þetta hægt
ogrólega! Mjöghægtogrólega! Fimm aukasekúndur
geta komið í veg fyrir að sjúklingnum þínum líði eins
og fórnarlambi nauðgara. Að þessu loknu opnarðu
kögulinn (speculum). Þá er vert að gefa viðvörun eins
og til dæmis: “ Nú gætir þú fundið fyrir bæði hægða-
ogþvaglátaþörf". Sumirplastköglar(plasticspeculum)
læsast opnir með háum smelli, sem veldur minni
hræðslu, ef sjúklingurinn er varaður við áður. Hljóð
þetta heyrist einnig þegar þeir eru losaðir aftur.
Þegar þú setur fingurna inn aftur til að gera
þreifinguna, þá skiptir enn sem fyrr öllu máli að fara
rólega til að valda sem minnstum óþægindum. Horfðu
á andlit sjúklingsins. Ekki spyrja hana hvort þetta sé
sárt, því hún mun tjá þér það með viðbrögðum sínum.
Með þessu móti munt þú oft sleppa við að taka
ákvörðun um hvort sársaukinn sé það mikill að taka
eigi tillit til hans eður ei. Því að grindarholsskoðun er
sársaukafull. Aðminnstakostierhún fjandi óþægileg.
Og ef þú spyrðir mig hvort ég fyndi til þegar þú værir
að sveifla móðurlífinu mínu til myndi ég segja: “já”.
Reyndar er tilfinningin fremur annarleg en sár. Ef
að sjúklingur spennist upp meðan á þreifingu stendur
eru fyrstu viðbrögð skoðandans að segja: “Slakaðu
á!". En eins og fyrri daginn segir þetta sjúklingnum
ekki hvað þú nákvæmlega vilt að hann geri. Segðu
heldur eitthvað á þessa leið: “Gerðu magann (eða
kviðinn) mjúkan svo að ég geti ýtt á hann og fundið
70
LÆKNANEMINN 1 1990 43. árg.