Læknaneminn - 01.04.1990, Page 81
Mynd 2. Jón, Margaretta og Vasilios.
betur en hinn. Annars héldum við okkur mest með
útlendingunum og dútluðuð hitt og þetta með þeim.
Meðal annars áttum við ógleymanlegan 17. júní
með Grikkjunum og Margarettu pólsku. Að morgni
þessa merka dags, sem var Shabbatsdagur, tilkynntum
við að þetta væri "The anniversary of the Icelandic
Republic” og halda bæri upp á það. í tilefni dagsins
var því farið á ströndina og héldum við svo þaðan
til elsta hluta Tel Aviv sern heitir Yafo, en þaðan
koma einmitt Jaffa appelsínurnar, og horfðum á blátt
Miðjarðarhafið bylgjast fyrir utan. Um kvöldið var
okkur boðið til Vasilios í osta og rauðvín. Þegar við
lögðumst til svefns seint og um síðir vorum við sam-
mála um það að þetta hefði verið besti 17. júní sent
við hefðum upplifað, a.m.k. betri en að hanga í leku
tjaldi í rigningunni á Þingvöllum. Sum sé hinn besti
dagur fyrir utan að Hlynur breyttist í kolamola eina
ferðina enn, og var mjög áhugavert fyrir læknanema
að fylgjast með þessari metamorphosu.
Það er nú kominn tími til að fara að segja frá því hvað
þessi Shabbatsdagur eiginlega er. Þessi dagur, sem
er laugardagur, er hvíldardagur gyðinga, og er hann
tekinn mjög svo hátíðlega. Öllum búðum er lokað,
og allar samgöngur leggjast af, en það ku vera vegna
þess að Guð var ekki búinn að finna upp hjólið á
laugardegi sköpunarinnar, og því mega gyðingar ekki
ferðast á neinum ökutækjum. Eini samgöngumátinn
fyrirútlendingaeru leigubflarsemkristnirleigubílstjórar
aka.
23. júní fórum við okkareinu ferð út á land og
var að sjálfsögðu haldið til hinnar helgu borgar Jerú-
sal ent, eða Yerushalyim eins og hún heitir á máli inn-
fæddra. Þar sáum við margt athyglisvert. þ.á.m. Yad
Vaschem sem er safn til minnigar um helför gyðinga í
seinni heimsstyrjöldinni. Einnig sáum við grátmúrinn
sem er vesturhluti múrsins sem umlykur gömlu
Jerúsalem, en er jafnframt talinn vera síðustu leifar
musteris Salomons. A svæðinu í kringum múrinn
komumst við nær raunveruleika stríðsins en nokkurs
staðar annars staðar. Þetta var eini staðurinn í ferð-
inni þar sem við sáum hermennina ganga um með
byssurnar hlaðnar og greinilega við öllu búnir.
Lítill tími var annars til ferðalaga þar sem Hlynur
fékk þann óvænta glaðning að flytja
pathologiufyrirlestur um efni sem hann hafði ekki
hundsvit á þá. Honum var fyrst skapi næst að hætta
við allt saman. en ákvað svo að vera sómi Islands,
sverð þess og skjöldur. Á meðan á undirbúningnum
stóð hafði Jón það gott og stundaði bæjarlífið með
bestu Iyst. Það er skemmst frá því að segja að Hlynur
lifði fyrirlesturinn af á meðan Jón fylgdist glottandi
með. I santbandi við pathologiu má nefna að eitt
LÆKNANEMINN 1 1990 43. árg.
79