Læknaneminn - 01.04.1990, Page 94

Læknaneminn - 01.04.1990, Page 94
samviskusamlega á alla fundina sem ég vissi um að undanskildu jólaglögginu en þá fór ritari í fjarveru formanns. A þessum fundum voru kallaðir saman formenn allra félaga stúdenta innan Háskólans, mál úr stúdentaráði og háskólaráði kynnt og sameiginleg mál stúdenta tekin til umræðu. Einna mestar umræður urðu um Gæðakönnun Háskólans, sem gerð var í fyrsta sinn í fyrra. Kynningarfundur með 1. ári. Hann var haldinn 20. september, en þá voru 1. árs nemar boðnir velkomnir, starfsemi félagsins kynnt, auglýst eftir mönnum í embætti og nemendur hvattir til að líta upp úr bókun- um og mæta á kynningarballið. Allt þetta gekk vel nema hvað formanni tókst ekki að tala í hljóðnemann. Ymis mál Numerus clausus. I febrúar síðastliðnum gekk stjórn Félags læknanema fyrir könnun á viðhorfi læknanema tilfjöldatakmörkunar í deildinni. Alls voru það 157 sem svöruðu könnuninni (68,3% læknanema) og þar af voru 5 andvígir fjöldatakmörkunum en 152 hlynntir þeim í einhverri mynd. Núverandi kerfi var vinsælast, en það völdu 79 (52%j). Þar á eftir kom hærri lágmarkseinkunn, en 50 (32,9%) voru hlynntir þeim kosti. Langflestir þeirra töldu að einkunnin ætti að vera á bilinu 6,5 til 7,0. Aðrir möguleikar hlutu litlar undirtektir, þó ber að nefna að einn vildi happdrætti. A félagsfundinum 23. mars 1990 var samþykkt á- lyktun þess efnis að Félag læknanema væri samþykkt núverandi kerfi á fjöldatakmörkunum og var þar stuðst við niðurstöður skoðanakönnunar. Þetta eru mikil tímamót því að frá því að clausus var tekinn upp hefur opinber stefna félagsins verið sú að læknanemar vildu hærri lágmarkseinkunn. Lesstofumál. Lesstofumál læknanema hafa verið í hinum mesta ólestri á síðustu árum. Stjórn Félags læknanema hefur undanfarin ár leitað til ýntissa aðila innan Læknadeildar Háskóla Islands án þess að viðunandi úrbætur hafi fengist. I vetur var ákveðið að Læknadeild beitti sér formlega fyrir bættri lesaðstöðu læknanema. Deildarforseti sagðist reiðubúinn að styðja viðleitni læknanema í baráttunni fyrir bættri lesaðstöðu og kennslustjóri gerði greinagóða skýrslu þar sem vel er tekið á lesstofumálum. Lestrarmiðstöð læknanema er í Læknagarði, en læknanemar dreifast á fyrstu 3 hæðirnar. Á 3. hæð- inni er lesstofa með 29 borðum og önnur minni með 9 borðum. Ekki er annað hægt en að minnast á kaffiaðstöðuna á sömu hæð sem er það nýjasta í dag, “back to the future”, grá hrá steinsteypa, stórbrotinn stfll og engu ofaukið. - En ég var víst að ræða um lesstofur. Á annarri hæð lesa fáeinir læknanemar, en þess má geta að tannlæknanemar hafa forgang að flestum borðum þar. Á fyrstu hæð (í kjallaranum) er splunkuný lesstofa sem gengið var frá í flýti til að 6. árs Iæknanemar kæmust einhvers staðar að og gætu hafið lestur þeirra fræðibóka sem þeir áttu að hafa lesið á 4. ári. Ber sérstaklega að þakka Þórarni Magnússyni húsverði en það var fyrir hans tilstilli að þetta lesherbergi varð að veruleika. Nýtingin á lesstofunum síðastliðið vor var fremur léleg og þurfa læknanemar að taka sig á í þessum málum áður en Læknadeild beitir sér fyrir bættri aðstöðu. I því sambandi verða nú stofnuð tvö lesstofustjóraembætti og komið með bráða- birgðareglugerðir til að reyna að greiða úr þessum málum. Það er næstu stjómar að fylgja þessum málum eftir og festa ákveðnar reglur í sessi. Húsvörður í læknagarði. Ekki er hægt að líta yfir farinn veg, án þess að minnast þess hve Þórarinn Magnússon húsvörður hefur reynst okkur læknanemum sérlega vel. Viljum við enn einu sinni þakka honum Iiðlegheitin. Matsalur Landsspítalans. Haustið 1987 voru þær reglur settar á, að einungis þeir stúdentar sem væru í verklegu námi á Landspítalanum fengju þar að borða. Fram til þessa höfðu 2., 3. og 4. árs nemar einnig mátt vera þar í fæði (og einstaka maður af 1. ári, en það var víst aldrei ætlunin). Þáverandi formanni FL var sagt að þessi ráðstöfun væri vegna manneklu í eldhúsinu, en þegar úr því rættist yrði aftur fært í fyrra horf. En svo fór ekki. (Miðað við að eldhúsið framreiði um 1400 máltíðir á dag, er nokkuð ljóst að útilokun hluta af nemum úr matsalnum leysti ekki vanda eldhússins). Þegar næsti 92 LÆKNANEMINN 1 1990 43. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.