Læknaneminn - 01.04.1990, Page 100
Fræðabúrið var áður staðsett í Suðurgötu, húsi
læknanema, þar sem erfitt gat verið að nálgast þau
gögn sem þar voru geymd og nýttist það því ekki sem
skyldi. Því var í vetur brugðið á það ráð að flytja
fræðabúrið í Læknagarð, þar sem það er nú í
bráðabirgðahúsnæði á 3. hæð, sem enn er ekki útséð
um hvort við fáum að halda til frambúðar. Það er
mjög mikilvægt að læknanemar hafi einhverja að-
stöðu hér í Læknagarði fyrir fræðabúrið eða aðra
starfsemi. Er það nrikilvægt verkefni fyrir næstu
stjórn að beita sér fyrir því af megni.
Fjórir fræðslufundir voru haldnir s.l. vetur. Sá fyrsti
var um nálarstungur í lækningaskyni, og fræddi
Magnús Ólason læknir okkur um það efni. Annar
fundurinn fjallaði um glasafrjóvganir og var mjög
fróðlegur, sérstaklega með tilliti til þess að líklegt er
að þær verði teknar upp hér á landi innan skamms.
Þennan fyrirlestur héldu þeir Jón Hilmar Alfreðsson
kvensjúkdónralæknir og Leifur D. Þorsteinsson
frumulíffræðingur.
Tveir síðari fyrirlestrarnir voru með heldur nýstárlegu
sniði. Fyrst er að telja vínsmökkunarkvöld á vegum
hins þjóðkunna vínsmakkara Einars Thoroddsen.
Greinilegt var að læknanema þyrsti í fróðleik á þessu
sviði, því að á fundinn þyrptust fleiri en nokkurn tíma
hafa sótt slíka fundi fyrr !
Að lokum var lagt í langferð til Hveragerðis, þar sem
snæddur var hádegisverður í boði heilsuhælisins og
hlustað á fyrirlestur um endurhæfingar og starfsemi
hælisins. Enduðu síðan flestir í sundi, en aðrir fóru í
Eden og fengu sér ís.
F.h. fræðslunefndar þakka ég fyrir starfið í vetur og
óska næstu fræðslunefnd góðs gengis.
Hlíf Steingrímsdóttir
SKÝRSLA ÍÞRÓTTANEFNDAR
Starfsemi íþróttanefndar varð nú ekki eins blómleg
og til stóð. Helst er um að kenna stöðugum þrýstingi
landlæknis á undirritaðan að bæta úr brýnni þörf
landsbyggðarinnar fyrir hæfa lækna. Þegar þeirri þörf
landsbyggðarinnar hafði verið fullnægt og formaður
hugðist setja störf íþróttanefndar í fullan gang reyndust
flestir læknanemar orðnir afhuga íþróttaiðkun.
Eftirfarandi mót fóru (þó) fram.
Knattspyrnumót (utanhúss). Fór fram í okt. 1989 á
gervigrasvellinum í Laugardal. Fimm lið tóku þátt.(l.
árið tók ekki þátt í þetta sinn). Úrslit urðu mjög óvænt,
vægast sagt. 6. árið bar sigur úr býtunr eftir langa og
stranga úrslitaviðureign við 5. ár.
Knattspyrnumót (innanhússs). Fór fram í KR-sal 14.
mars. Fimm lið tóku þátt, aðeins vantaði 4. árið. Úrslit
urðu enn og aftur mjög óvænt og marði 6. árið
óverðskuldaðan sigur.
Skákmót. Fór fram í matsal Landspítalans að kvöldi
18. febrúar. Aðeins þrjú lið mættu til leiks, önnur
báru við miklum önnunr, m.a. aerobic æfingum. Úrslit
urðu þau að 2. ár sigraði örugglega báða andstæðinga
sína.
Bridgemót. Þrátt fyrir ákafar tilraunir formanns tókst
honum ekki að srnala læknanemum saman til
bridgemóts, og er það mjög miður.
Körfuholtamót. Var haldið í byrjun febrúar í
íþróttahúsi Háskólans. Þar fór svo að 2. ár vann
yfirburðasigur.
Handboltamót. Stóð til að halda það í vikunni 25.03 -
30.03 en sökum ónógrar þátttöku féll það niður og
skoðast því 5. árið sigurvegari.
Gunnar Þór Jónsson
STÚDENTASKIPTI
Starfsár stúdentaskiptanna að þessu sinni var nokkuð
óvenjulegt. Umsvif þessarar ágætu félagsstarfsemi
okkar aukast með ári hverju og í vetur þótti tími til
kominn að auka við mannafla þann sem gjörir gott
við jafnt erlenda sem innlenda ævintýraþyrsta
læknanema. Þótti hæfilegt að bæta við fjórum
dugnaðarforkum, tveimur af öðru ári og einum af
hvoru ári, þriðja og fjórða. Ekki vantaði áhuga á
þessum embættum og óformleg stúdentaskiptanefnd
leit dagsins ljós í byrjun marsmánaðar.
98
LÆKNANEMINN 1 1990 43. árg.