Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.2002, Page 18

Læknaneminn - 01.04.2002, Page 18
lagi. íslenskar konur hafa t.d. fengið greidd mæðra- laun í samræmi við fyrri tekjur á Islandi. Fæðingaror- lof í Sviþjóð er eitt ár og eiga foreldrar rétt á að taka það út smám saman þar til barnið er 8 ára. Það reikn- ast út frá tekjum í Svíþjóð si. 6 mánuði eða sem „dag- peningar" sem þá er mun lægri upphæð. íslendingar ganga inn í almannatryggingakerfið um leið og þeir hafa skráð sig inn í Svíþjóð. Því gerist elcki þörf á sér- stökum tryggingum fyrst eftir að komið er til Svíþjóð- ar. Heimilis- og bílatryggingar eru ódýrari í Svíþjóð en heima og oft fæst afsláttur ef allt er tryggt hjá sama tryggingar- félagi. Hægt er að fá bónus af bíla- tryggingum yfirfærðan og þarf vottorð frá viðkomandi tryggingarfélagi hér heima. Mikilvægt er að maka sé einnig getið á vottorðinu. Töluverðu getur munað á ið- gjöldum ef bónus fæst yfirfærður en annars eru bif- reiðatryggingar ódýrari í Svíþjóð en á Islandi. I flest- um tilvikum dugar íslenskt ökuskírteini en þó eru dæmi þess að íslendingar hafi þurft að verða sér úti um sænskt ökuleyfi. Hægt er að sækja um sænskt öku- leyfi á grundvelli þess íslenska ef það er gert innan árs frá því að kornið er til landsins. í sumum tilvikum er krafist vottorðs frá sjúkrahúsi um framhaldsnám. Slík vottorð fást á skrifstofum spít- alanna en þar kemur fram hversu lengi viðkomandi hefur unnið á stofnuninni og frá hvaða deild laun voru greidd. A sömu skrifstofum er hægt að fá vottorð sem sýnir tekjur síðastliðins árs en slíkt vottorð getur kom- ið að góðum notum ef sótt er um bætur úr félagslega kerfinu, t.d. fæðingarorlof. Ekki er lengur krafist sænsku- vottorðs nema í algjörum undan- tekningartilvikum. Þá er staðfest af viðurkenndum sænskukennara að viðkomandi skilji bæði ritað og mælt mál og geti gert sig skiljanleg- an á sænsku. Þó má benda á að tali fólk reiprennandi sænsku getur ver- ið ávinningur í því að fá það stað- fest, t.d. af sænskukennar'a. Einnig er sjálfsagt að geta þess þegar sótt er um stöðu að umsækjandi tali góða sænsku. Húsnæði Yfirleitt er talið ráðiegt að byrja í leiguhúsnæði. Húsa- leiga á almennum markaði er mismunandi eftir stöð- um og oft dýrari í stórborg en á minni stöðum á lands- byggðinni. í borgum er húsaleiga fyrir 3ja - 4 her- bergja íbúð oftast á bilinu 30-50 þús. ísl. kr. á mánuði og er þá innifalið bæði hiti og vatn. Kallast það „varm hyra“ þegar hiti er innifalinn en ef það er ekki er talað um „kall hyra“ en mikilvægt er að hafa þessi hugtök á hreinu þegar samið er um verð á leiguhúsnæði. Fyrir raðhús hækkar leigan í 55-80 þús. á mánuði. Leigusal- ar eru oftast sérstök leigufyrirtæki eða einkaaðilar. í flestum tilvikum fylgja íbúðunum raftæki, s.s. ísskáp- ur, eldavél, þvottavél og þurrkari. Ef svo er ekki má benda á að verð á rafmagnstækjum er umtalsvert lægra en hér á landi. Oftast er ekki miklum vandkvæðum bundið að verða sér úti um húsnæði en best er að ganga frá þess- um málum með nokkurra mánaða fyrirvara. Hægt er að leita til íslendinga í nágrenninu og þeir geta síðan grennslast fyrir um húsnæði eða sent inn auglýsingu í dagblöð. Oft er árangursríkt að hengja upp húsnæðis- auglýsingu á þeim spítala þar sem fyrirhugað er að stunda nám. Þegar fólk hefur áttað sig betur á hlutunum kemur til greina að kaupa húsnæði. Verð á húsnæði er mjög breytilegt eftir stöðum. Hafa þarf í huga að erfitt get- ur verið að losna við húsnæði hafi fólk t.d. í huga að færa sig um set innan Svíþjóðar eða til annarra landa. Ef kaupa á húsnæði er gott að fá vottorð frá stofnun- inni sem maður er ráðinn á þess efnis að maður hafi ráðningu og þannig tekjur. Þetta hjálpar til ef farið er í banka og beðið um loforð til láns. Ekki er hægt að sækja formlega um lán fyrr en komið er með sænska kennitölu. > 16

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.