Læknaneminn - 01.04.2002, Blaðsíða 19

Læknaneminn - 01.04.2002, Blaðsíða 19
Tafla II. Gagnleg heimilisföng: a) Skrifstofa Læknafélags Islands (www.icemed.is) Hlíðarsmára 8, 200 Kópavogur. b) Skrifstofa læknadeildar H.í. v/Suðurgötu, 101 Reykjavík. c) Félag íslenskra lækna í Svíþjóð (FÍLÍS) (www.filis.nu) d) Hagstofa Islands (www.hagstofa.is) Skuggasundi 3, 101 Reykjavík. e) Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið (www.htr.stjr.is) Laugavegi 116, 150 Reykjavík. f) Sænska sendiráðið í Reykjavík Lágmúla 7, 108 Reykjavík. Laun og skattar Á sjúkrahúsum eru byrjunarlaun aðstoðarlækna (underlákare) í kringum 210-250.000 ísl. (24-28000 skr) á mánuði fyrir dagvinnu. 1 sumum tilfellum er hægt að semja um laun, ef skortur er á læknum í við- komandi sérgrein. Heildarlaun ráðast svo af vakta- álagi en flestir eru á 4 til 5 vökturn á mánuði og geta þá bæst 40 - 50.000 ísl. kr. við dagvinnulaunin. Oft er þó greitt fyrir valctir í formi fría, a.m.k. að hluta (sjá betur síðar). Greiðslur fyrir vaktir eru því ekki jafn stór hluti af heildarlaununum eins og á Islandi. í þessu sambandi er rétt að árétta að samanburður á launum á milli landa er óviss nrælikvarði á afkomu. Sumarfrí er yfirleitt 5 vikur en að auki eru vakta- vinnufrí sem eru þá hluti af greiðslu fyrir vaktir. Víða er þess krafist að læknar taki helming til tvo þriðju fyrir vaktir út í friurn en afganginn í peningum. Á sumum deildum er þó hægt að taka allt út í peningum. Vaktavinnufrí eru betri en hér á landi. Sé gert ráð fyr- ir að u.þ.b. 2/3 hlutar af greiðslu fyrir vaktir séu tekn- ir út í fríi og vaktir séu 4 til 5 á mánuði þýðir þetta einnar viku frí á 5 til 6 vikna fresti. Þetta frí er t.d. hægt að nota til vísindarannsókna en oft er hægt að semja við yfirmenn um að safna upp vaktavinnufríum og vinna annars staðar um tíma. Skattar hafa síðustu ár lækkað umtalsvert í Svíþjóð og eru nú í kringum 30% af fyrstu 200 þús. skr en 55% eftir það. Hjón eru ekki samsköttuð, heldur hver og einn sér. Ef byrjað er að vinna þegar liðið er á árið er hægt að sækja um skattajöfnun (eyðublað hjá Skatte- myndigheten). Er þá reiknað út hversu mikinn skatt viðkomandi á að borga miðað við laun og þannig jafn- að út fyrir þá mánuði sem viðkomandi vinnur ekki. Eyðublaðinu er síðan skilað á launadeild spítalans. Vinnuvika sérfræðinga er 43-48 klst. á viku en læknar í sérnámi (underlákare) eiga yfirleitt að vinna 40-45 klst. á viku. Yfirleitt er ekki greitt sérstaklega fyrir yfirvinnu. Unnið er frá mánudegi til fostudags en sums staðar er hætt fyrr á fostudögum til þess að bæta upp fyrir vinnutíma sem er lengri en 8 klukkustundir fyrr í vikunni. Á flestum stöðum er frí a.m.k. síðari hluta dags eftir vakt en vaktir eru yfirleitt mjög anna- samar. Vinnutími er oftast frá kl. 07.30 lil 17 með 1/2- 1 klst. í mat sem ekki telst til vinnutímans. Laun heilsugæslulækna eru yfirleitt sambærileg launum sjúkrahússlækna. Ekki er greitt sérstaklega fyrir afköst eins og í Noregi. Sumarfrí eru einnig sam- bærileg en víða er greitt að fullu fyrir valctir í pening- um og vaktavinnufrí því styttri. Trygginga-, félags- og skólakerfi Svíar búa við mjög öflugt trygginga- og félagskerfi, sennilega það besta á Norðurlöndum. Almenna trygg- ingakerfið veitir íslendingum í Svíþjóð sömu réttindi og skyldur og Svíum á grundvelli gagnkvæmra milli- ríkjasamninga. Barnabætur hafa lælckað á síðasta ári og eru nú um 7.300 ísl. kr./mán. fyrir hvert barn og eru greiddar út mánaðarlega. Eftir að komið er út verður að snúa sér senr fyrst til sjúkrasamlagsins (Försakringskassa), skrá sig þar og sækja um barnabætur. Fæðingarorlof og aðrar félagslegar bætur er einnig hægt að sækja um hjá sjúkrasamlaginu. Rétt er að ítreka það að best er að skrá sig hjá sjúkrasamlaginu sem fyrst eftir að komið er út því annars er hætt við að bætur tapist eða rýrni. Feður eiga rétt á tveggja vikna fríi á fullum launum við fæðingu barna sinna. Leiti maki að vinnu getur hann leitað til atvinnu- miðlunar í viðkomandi bæjarfélagi (Arbetsförmed- lingen) og slcráð sig þar. Rétt er að kynna sér vel hvaða vottorð/gögn þarf að taka með sér áður en haldið er utan og þá sérstaklega m.t.t. gildandi milliríkjasamn- inga milli Islands og Svíþjóðar. I dag er hægt að fá fluttan rétt á atvinnuleysisbótum á milli Svíþjóðar og íslands en eingöngu ef viðkomandi gengur í sænskt fagfélag innan 4 vikna frá því hann flytur til Svíþjóð- ar og yfirfærir síðan réttindi sín. Þannig er skynsam- legt fyrir maka að verða sér úti um vottorð frá fagfé- lögum á Islandi og staðfestingu á tekjum síðastliðins árs áður en haldið er út. Yfirleitt er meira framboð á barnaheimilisplássum en á Islandi en það er þó mismunandi eftir stöðum. 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.