Læknaneminn - 01.04.2002, Blaðsíða 20
Greiðslur fyrir barnaheimilispláss eru oftast tekju-
bundnar og eru víða 5-7% af heildarlaunum. Best er
að sækja um dagvistarpláss í tíma. Yfirleitt er nokkur
bið í háskólabæjum. Valið stendur aðallega á milli
tveggja kosta; barnaheimilis og dagmæðra. Dagmæð-
ur starfa innan kerfisins þannig að dagmæður eins og
á íslandi þekkjast varla, nema þá þær sem starfa
„svart“.
Skólar eru yfirleitt mjög góðir og uppbygging
skólakerfisins svipuð og hér á landi. Börnin byrja þó
einu ári síðar í skóla í Svíþjóð en skólaskylda er frá 7
til 16 ára aldurs. Nýverið var skólum veitt heimild til
að taka börn inn í 6 ára bekk en ekki er alls staðar boð-
ið upp á slíkt. Skólaárið er lengra, sumarfrí er 10 vik-
ur og jólafrí 2 vikur, en síðan bætist við viku frí í febr-
úar annars vegar (sportlov) og nóvember hins vegar
(höstlov). Skóladagurinn er samfelldur frá klukkan
átta á morgnana og fram yfir hádegi og öll börn fá
heita máltíð í skólanum. Áður en haldið er utan er
skynsamlegt að grennslast fyrir um skóla í hverfinu og
sækja síðan um skóla tímanlega. Yfirleitt er auðvelt að
fá skólapláss en ekki er skilyrði að sótt sé um þann
skóla sem næstur er heimilinu því nú fylgir hverju
barni ákveðin upphæð sem rennur til þess skóla sem
barnið sækir.
Boðið er upp á íslenskukennslu í mörgum skólum,
en skilyrði fyrir því er að þrjú börn séu frá sama landi
í sama bæjarfélagi (kommun). Vert er að hafa þetta í
huga ef stefnt er á flutning til minni bæjarfélaga.
Bifreiðakaup
Verð á nýjum bifreiðum hefur verið nokkuð lægra í
Svíþjóð en á íslandi og flestir eru þeirrar skoðunar að
ekki borgi sig að taka bílinn með út frá peningalegu
sjónarmiði. Þó má benda á að hafi maður átt bíl á Is-
landi í eitt ár þarf ekki að greiða tolla af bílnum í Svi-
þjóð. Bíllinn verður að vera búinn hvarfakút, annars
þarf að greiða sérstakan mengunarskatt.
Ef bíll er fluttur með til Svíþjóðar er betra að tolla
hann strax úr skipinu en ekki taka hann inn í landið
sem „túristabíl“. Þetta sparar mikla vinnu því ef tolla
á bílinn seinna þarf að sækja um það sérstaklega. Þeg-
ar bíllinn er tollaður strax eru allir nauðsynlegir papp-
írar fylltir út. Eins og fram hefur komið þarf ekki að
borga af bílnum hafi maður átt hann í eitt ár. Borguð
er bráðabirgða trygging og númeraplötur. Eftir þetta er
pantaður tínri í skoðun og þá fyrst er óhætt að nota bíl-
inn.
Ef kaupa á bíl í Svíþjóð er skynsamlegt að bera
saman verð með því að fá sendar upplýsingar frá bif-
reiðaumboðum, bílasölum og netsíðum þeirra í Sví-
þjóð. Líkt og hér á landi hrapa bílar nokkuð hratt í
verði fyrsta árið og því er yfirleitt hagstæðara að
kaupa notaða bíla en nýja. Rétt er að benda á að í Sví-
þjóð er oft hægt að „prútta“ niður verð á bílum ef
greitt er út í hönd og eldri bíll er ekki tekinn upp í
þann nýja (inbytesbil).
Atvinnuhorfur að loknu námi
Eins og áður kom fram hafa orðið miklar breytingar til
hins betra á atvinnuhorfum lækna í Svíþjóð. I Svíþjóð
eru í kringum 26.000 læknar (1/3 konur), þar af rúm-
lega eitt þúsund Danir og rúmlega 200 íslendingar, en
talið er að 20% Islendinga hafi sest að í Svíþjóð til
frambúðar. Þegar þetta er ritað er skortur á læknum í
mörgum sérgreinum í Svíþjóð. Enn frekari skortur er
fyrirsjáanlegur á næstu tíu árum og atvinnuhorfur að
námi loknu verða því að teljast mjög góðar.
Lokaorð
Leiðbeiningar sem þessar eru engan veginn tæmandi
og alltaf er best að leita ráða hjá þeim sem búa úti eða
eru nýkomnir heim úr sérnámi frá Svíþjóð. Einnig er
rétt að taka fram að ýmsar þeirra upplýsinga sem fram
koma í þessari grein eru háðar breytingum, s.s. varð-
andi launakjör, verðlag og félagsleg réttindi. Þegar á-
kveðið hefur verið hvert halda á í sérnám er um að
gera að undirbúa flutninginn með góðum fyrirvara. Að
lokum skorum við á lækna og læknanema að koma
með tillögur um breytingar ef þeim þykir þurfa að
fenginni reynslu. Hægt er að koma ábendingum á
framfæri til skrifstofu Læknafélaganna.
Tafla III.
Gagnleg netföng:
Skattayfirvöld: www.rsv.se
Tollur: www.tullverket.se
Tryggingastofnun/sjúkrasamlag: www.fk.se
Fasteignir: www.hemnet.se
Fasteignir: www.bovision.se
Bílasala á netinu: www.bytbil.com
Bifreiðaskoðun: www.bilprovningen.se
Upplýsingasíða: www.sweden.com
Upplýsingasíða: www.evreka.com
Upplýsingasíða: www.gulasidorna.se
Tómas G.
18