Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.2002, Blaðsíða 20

Læknaneminn - 01.04.2002, Blaðsíða 20
Greiðslur fyrir barnaheimilispláss eru oftast tekju- bundnar og eru víða 5-7% af heildarlaunum. Best er að sækja um dagvistarpláss í tíma. Yfirleitt er nokkur bið í háskólabæjum. Valið stendur aðallega á milli tveggja kosta; barnaheimilis og dagmæðra. Dagmæð- ur starfa innan kerfisins þannig að dagmæður eins og á íslandi þekkjast varla, nema þá þær sem starfa „svart“. Skólar eru yfirleitt mjög góðir og uppbygging skólakerfisins svipuð og hér á landi. Börnin byrja þó einu ári síðar í skóla í Svíþjóð en skólaskylda er frá 7 til 16 ára aldurs. Nýverið var skólum veitt heimild til að taka börn inn í 6 ára bekk en ekki er alls staðar boð- ið upp á slíkt. Skólaárið er lengra, sumarfrí er 10 vik- ur og jólafrí 2 vikur, en síðan bætist við viku frí í febr- úar annars vegar (sportlov) og nóvember hins vegar (höstlov). Skóladagurinn er samfelldur frá klukkan átta á morgnana og fram yfir hádegi og öll börn fá heita máltíð í skólanum. Áður en haldið er utan er skynsamlegt að grennslast fyrir um skóla í hverfinu og sækja síðan um skóla tímanlega. Yfirleitt er auðvelt að fá skólapláss en ekki er skilyrði að sótt sé um þann skóla sem næstur er heimilinu því nú fylgir hverju barni ákveðin upphæð sem rennur til þess skóla sem barnið sækir. Boðið er upp á íslenskukennslu í mörgum skólum, en skilyrði fyrir því er að þrjú börn séu frá sama landi í sama bæjarfélagi (kommun). Vert er að hafa þetta í huga ef stefnt er á flutning til minni bæjarfélaga. Bifreiðakaup Verð á nýjum bifreiðum hefur verið nokkuð lægra í Svíþjóð en á íslandi og flestir eru þeirrar skoðunar að ekki borgi sig að taka bílinn með út frá peningalegu sjónarmiði. Þó má benda á að hafi maður átt bíl á Is- landi í eitt ár þarf ekki að greiða tolla af bílnum í Svi- þjóð. Bíllinn verður að vera búinn hvarfakút, annars þarf að greiða sérstakan mengunarskatt. Ef bíll er fluttur með til Svíþjóðar er betra að tolla hann strax úr skipinu en ekki taka hann inn í landið sem „túristabíl“. Þetta sparar mikla vinnu því ef tolla á bílinn seinna þarf að sækja um það sérstaklega. Þeg- ar bíllinn er tollaður strax eru allir nauðsynlegir papp- írar fylltir út. Eins og fram hefur komið þarf ekki að borga af bílnum hafi maður átt hann í eitt ár. Borguð er bráðabirgða trygging og númeraplötur. Eftir þetta er pantaður tínri í skoðun og þá fyrst er óhætt að nota bíl- inn. Ef kaupa á bíl í Svíþjóð er skynsamlegt að bera saman verð með því að fá sendar upplýsingar frá bif- reiðaumboðum, bílasölum og netsíðum þeirra í Sví- þjóð. Líkt og hér á landi hrapa bílar nokkuð hratt í verði fyrsta árið og því er yfirleitt hagstæðara að kaupa notaða bíla en nýja. Rétt er að benda á að í Sví- þjóð er oft hægt að „prútta“ niður verð á bílum ef greitt er út í hönd og eldri bíll er ekki tekinn upp í þann nýja (inbytesbil). Atvinnuhorfur að loknu námi Eins og áður kom fram hafa orðið miklar breytingar til hins betra á atvinnuhorfum lækna í Svíþjóð. I Svíþjóð eru í kringum 26.000 læknar (1/3 konur), þar af rúm- lega eitt þúsund Danir og rúmlega 200 íslendingar, en talið er að 20% Islendinga hafi sest að í Svíþjóð til frambúðar. Þegar þetta er ritað er skortur á læknum í mörgum sérgreinum í Svíþjóð. Enn frekari skortur er fyrirsjáanlegur á næstu tíu árum og atvinnuhorfur að námi loknu verða því að teljast mjög góðar. Lokaorð Leiðbeiningar sem þessar eru engan veginn tæmandi og alltaf er best að leita ráða hjá þeim sem búa úti eða eru nýkomnir heim úr sérnámi frá Svíþjóð. Einnig er rétt að taka fram að ýmsar þeirra upplýsinga sem fram koma í þessari grein eru háðar breytingum, s.s. varð- andi launakjör, verðlag og félagsleg réttindi. Þegar á- kveðið hefur verið hvert halda á í sérnám er um að gera að undirbúa flutninginn með góðum fyrirvara. Að lokum skorum við á lækna og læknanema að koma með tillögur um breytingar ef þeim þykir þurfa að fenginni reynslu. Hægt er að koma ábendingum á framfæri til skrifstofu Læknafélaganna. Tafla III. Gagnleg netföng: Skattayfirvöld: www.rsv.se Tollur: www.tullverket.se Tryggingastofnun/sjúkrasamlag: www.fk.se Fasteignir: www.hemnet.se Fasteignir: www.bovision.se Bílasala á netinu: www.bytbil.com Bifreiðaskoðun: www.bilprovningen.se Upplýsingasíða: www.sweden.com Upplýsingasíða: www.evreka.com Upplýsingasíða: www.gulasidorna.se Tómas G. 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.