Læknaneminn - 01.04.2002, Page 19
Tafla II.
Gagnleg heimilisföng:
a) Skrifstofa Læknafélags Islands
(www.icemed.is)
Hlíðarsmára 8, 200 Kópavogur.
b) Skrifstofa læknadeildar H.í.
v/Suðurgötu, 101 Reykjavík.
c) Félag íslenskra lækna í Svíþjóð (FÍLÍS)
(www.filis.nu)
d) Hagstofa Islands (www.hagstofa.is)
Skuggasundi 3, 101 Reykjavík.
e) Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
(www.htr.stjr.is)
Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
f) Sænska sendiráðið í Reykjavík
Lágmúla 7, 108 Reykjavík.
Laun og skattar
Á sjúkrahúsum eru byrjunarlaun aðstoðarlækna
(underlákare) í kringum 210-250.000 ísl. (24-28000
skr) á mánuði fyrir dagvinnu. 1 sumum tilfellum er
hægt að semja um laun, ef skortur er á læknum í við-
komandi sérgrein. Heildarlaun ráðast svo af vakta-
álagi en flestir eru á 4 til 5 vökturn á mánuði og geta
þá bæst 40 - 50.000 ísl. kr. við dagvinnulaunin. Oft er
þó greitt fyrir valctir í formi fría, a.m.k. að hluta (sjá
betur síðar). Greiðslur fyrir vaktir eru því ekki jafn
stór hluti af heildarlaununum eins og á Islandi. í þessu
sambandi er rétt að árétta að samanburður á launum á
milli landa er óviss nrælikvarði á afkomu.
Sumarfrí er yfirleitt 5 vikur en að auki eru vakta-
vinnufrí sem eru þá hluti af greiðslu fyrir vaktir. Víða
er þess krafist að læknar taki helming til tvo þriðju
fyrir vaktir út í friurn en afganginn í peningum. Á
sumum deildum er þó hægt að taka allt út í peningum.
Vaktavinnufrí eru betri en hér á landi. Sé gert ráð fyr-
ir að u.þ.b. 2/3 hlutar af greiðslu fyrir vaktir séu tekn-
ir út í fríi og vaktir séu 4 til 5 á mánuði þýðir þetta
einnar viku frí á 5 til 6 vikna fresti. Þetta frí er t.d.
hægt að nota til vísindarannsókna en oft er hægt að
semja við yfirmenn um að safna upp vaktavinnufríum
og vinna annars staðar um tíma.
Skattar hafa síðustu ár lækkað umtalsvert í Svíþjóð
og eru nú í kringum 30% af fyrstu 200 þús. skr en 55%
eftir það. Hjón eru ekki samsköttuð, heldur hver og
einn sér. Ef byrjað er að vinna þegar liðið er á árið er
hægt að sækja um skattajöfnun (eyðublað hjá Skatte-
myndigheten). Er þá reiknað út hversu mikinn skatt
viðkomandi á að borga miðað við laun og þannig jafn-
að út fyrir þá mánuði sem viðkomandi vinnur ekki.
Eyðublaðinu er síðan skilað á launadeild spítalans.
Vinnuvika sérfræðinga er 43-48 klst. á viku en
læknar í sérnámi (underlákare) eiga yfirleitt að vinna
40-45 klst. á viku. Yfirleitt er ekki greitt sérstaklega
fyrir yfirvinnu. Unnið er frá mánudegi til fostudags en
sums staðar er hætt fyrr á fostudögum til þess að bæta
upp fyrir vinnutíma sem er lengri en 8 klukkustundir
fyrr í vikunni. Á flestum stöðum er frí a.m.k. síðari
hluta dags eftir vakt en vaktir eru yfirleitt mjög anna-
samar. Vinnutími er oftast frá kl. 07.30 lil 17 með 1/2-
1 klst. í mat sem ekki telst til vinnutímans.
Laun heilsugæslulækna eru yfirleitt sambærileg
launum sjúkrahússlækna. Ekki er greitt sérstaklega
fyrir afköst eins og í Noregi. Sumarfrí eru einnig sam-
bærileg en víða er greitt að fullu fyrir valctir í pening-
um og vaktavinnufrí því styttri.
Trygginga-, félags- og skólakerfi
Svíar búa við mjög öflugt trygginga- og félagskerfi,
sennilega það besta á Norðurlöndum. Almenna trygg-
ingakerfið veitir íslendingum í Svíþjóð sömu réttindi
og skyldur og Svíum á grundvelli gagnkvæmra milli-
ríkjasamninga.
Barnabætur hafa lælckað á síðasta ári og eru nú um
7.300 ísl. kr./mán. fyrir hvert barn og eru greiddar út
mánaðarlega. Eftir að komið er út verður að snúa sér
senr fyrst til sjúkrasamlagsins (Försakringskassa),
skrá sig þar og sækja um barnabætur. Fæðingarorlof
og aðrar félagslegar bætur er einnig hægt að sækja um
hjá sjúkrasamlaginu. Rétt er að ítreka það að best er að
skrá sig hjá sjúkrasamlaginu sem fyrst eftir að komið
er út því annars er hætt við að bætur tapist eða rýrni.
Feður eiga rétt á tveggja vikna fríi á fullum launum
við fæðingu barna sinna.
Leiti maki að vinnu getur hann leitað til atvinnu-
miðlunar í viðkomandi bæjarfélagi (Arbetsförmed-
lingen) og slcráð sig þar. Rétt er að kynna sér vel hvaða
vottorð/gögn þarf að taka með sér áður en haldið er
utan og þá sérstaklega m.t.t. gildandi milliríkjasamn-
inga milli Islands og Svíþjóðar. I dag er hægt að fá
fluttan rétt á atvinnuleysisbótum á milli Svíþjóðar og
íslands en eingöngu ef viðkomandi gengur í sænskt
fagfélag innan 4 vikna frá því hann flytur til Svíþjóð-
ar og yfirfærir síðan réttindi sín. Þannig er skynsam-
legt fyrir maka að verða sér úti um vottorð frá fagfé-
lögum á Islandi og staðfestingu á tekjum síðastliðins
árs áður en haldið er út.
Yfirleitt er meira framboð á barnaheimilisplássum
en á Islandi en það er þó mismunandi eftir stöðum.
17