Læknaneminn - 01.04.2002, Side 53
hafa ekki verið könnuð í æðaþelsfrumum (HUVEC)
en þekkt er að þau valdi MAPK örvun.
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna áhrif
histamíns, thrombíns og EGF á PKB/Akt örvun í æða-
þelsfrumum og hugsanleg tengsl við MAPK örvun.
Efni og aðferðir:
Ræktaðar voru æðaþelsfrumur úr bláæðum nafla-
strengja og frumurnar örvaðar með ýmsum áverkunar-
efnum og fosfórun á Akt athuguð með SDS rafdrætti
og immunoblotti gegn fosfóruðum Akt.
Niðurstöður:
EGF örvar PKB/Akt í æðaþelsfrumum. Histamin og
thrombín örva ekki PKB/Akt en draga úr grunnvirkni
hans og hindra EGF örvun. Wortmannin hindrar ekki
MAPK örvun af völdum histamíns eða thrombíns.
Meðferð með cPLA2 hindranum MAFP dregur úr
PKB/Akt örvun af völdum EGF.
Ályktun:
Niðurstöðurnar sýna að örvun G-próteintengdra við-
taka með histamini eða thrombíni dregur úr grunn-
virkni PKB/Akt og virkjun af völdum EGF. Einnig að
virkni cPLA2 er forsenda örvunar á PKB/Akt með
EGF. Nánar þarf að rannsaka hvernig þessi tengsl eru
og hvaða áhrif hindrun á PKB/Akt hefur á starfsemi
æðaþelsins.
Stökkbreytingar í stuttum endurteknum röðum í
MED1 geni í MSI æxlum.
Hafsteinn Ingi Pétursson
Inngangur:
MEDl (MBD4) genið hefur fundist stökkbreytt í
æxlisvef með MSI arfgerð (sérstaklega í ristilæxlum).
Áður hefur verið tilkynnt um 25% og 43% tíðni stökk-
breytinga í AIO röð í útröð (e. exon) gensins og nú ný-
lega hefur verið tilkynnt um 89% tíðni. Ekki hefur
verið tilkynnt um stökkbreytingu í kímlínu. Tilgangur
rannsóknarinnar var að athuga tíðni stökkbreytinga í
AIO röð og einni A6 röð í MBD4 geninu og hvort
stökkbreyting væri til staðar í kímlínu. Einnig var at-
hugað hvort brotfall á litningi væri til staðar.
Efniviður og aðferðir:
Fengin voru DNA sýni, frá Rannsólcnastofu Háskól-
ans í meinafræði, úr þremur æxlistegundum:
ristilæxli, magaæxli og legbolsæxli, aulc samsvarandi
eðlilegra sýna frá sömu einstaklingum. DNA raðir
voru magnaðar með fjölliðunarensímkeðjuhvarfi
(PCR), PCR afurðirnar voru rafdregnar, blottaðar
(Southern), Ijómaðar og merkið flutt yfir á ljósnæma
filmu þar sem hægt var að lesa niðurstöðurnar beint af
filmunni. Nokkur sýni voru raðgreind til að fá skýrari
niðurstöður.
Niðurstöður:
Tíðni stökkbreytinga í AIO röð MBD4 gensins er 28%
í íslenskum efnivið, þar af flestar úrfellingar á einu A
núkleótíði eða 22%, innskot á einu A núkleótíði sáust
í 6% sýna. Ekki fannst stökkbreyting í A6 röðinni og
ekki fannst heldur stökkbreyting í kímlínu. Fjögur
erfðamörk sýndu brotfall á litningum í hæst 10% og
lægst 27% sýna. Niðurstöður úr raðgreiningu studdu
fyrri niðurstöður.
Umræöa:
Rannsóknin sýndi svipaða tíðni stökkbreytinga á A10
röðinni í MSI æxlum og áður hefur verið tilkynnt um
burtséð frá nýlegri rannsókn (89% sýna með stökk-
breytingu) en þar var notuð önnur aðferð við undir-
búning sýna eða örsneiðun (e. microdissection). Talið
hefur verið líklegt að Mbd4 próteinið sé hluti af MMR
kerfinu þar sem galli í því kerfi veldur óstöðugleika í
microsatellie röðum en nýlegar niðurstöður styrkja
ekki þá tilgátu. Líklegra þykir að stökkbreyting í A10
röðinni sé afleiðing microsatellite óstöðugleika (MSI)
vegna galla í MMR frekar en orsök MSI.
Viöhorf til þjónustu einkarekinnar læknastöðvar
Haukur Björnsson’, Magnús Páll Albertsson2,
Björn Tryggvason2
Læknadeild HÍ', Læknastöðin Álftamýri 52
Inngangur:
Á undanförnum árum hafa orðið töluverðar breyting-
ar á heilbrigðisþjónustu hér á landi í átt til einkavæð-
ingar og hefur meðal annars fjöldi einkarekinna
læknastöðva farið vaxandi. Mjög skiptar skoðanir eru
um ágæti þessarar þróunar og spurning hvort ýta eigi
undir hana eða sporna við henni. Margar hliðar eru á
þessu máli en hins vegar er eitt atriði sem er hvað mik-
ilvægast að hafa í huga við mat á ágæti þessarar þró-
unar og er það viðhorf sjúklinganna á þjónustu lækna-
stöðvanna sem þangað hafa leitað til úrlausnar á
vandamálum sínum.
Efniviður og aöferöir:
Úrtak 289 einstaklinga sem mættu í viðtal á lækna-
stöðina, frá septemberbyrjun til nóvemberloka árið
2000, fékk sendan spurningalista til könnunar á við-
horfi til móttökunnar og viðtalsins við lækninn. Ann-
að úrtak upp á 368 manns, sem fór í aðgerð á lælcna-
51