Bændablaðið - 20.07.2023, Side 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
Strandveiðifélag Íslands boðaði til
mótmælaaðgerða laugardaginn
15. júlí síðastliðinn. Tilefnið var
ótímabær stöðvun strandveiða
fjórða árið í röð.
Hundruð trillukarla og -kvenna
söfnuðust saman við Hörpu og gengu
fylktu liði niður á Austurvöll. Þar tók
KK lagið og stappaði í okkur stálinu;
Kristján Torfi og Trillukarlakórinn
sungu um vélarvana bát og fiskifræði;
Valdimar Jóhannesson, kvótabani og
reynslubolti, hvatti okkur til frekari
aðgerða; Arthur Bogason minnti
hópinn á mikilvægi samstöðu; og
Kári Stefánsson kjarnaði boðskap
mótmælanna með þrumuræðu.
Hann benti á að það væri á ábyrgð
stjórnvalda að sjá til þess að
aflaheimildum væri skipt með
sanngjörnum hætti: „Þegar ráðherra
sem hefur látið hafa það eftir sér að
hún sé hlynnt strandveiðum segir nú
að ekki sé lagaheimild fyrir að auka
aflaheimildir strandveiða, er hún að
benda okkur á, svo ekki verður um
villst, að Alþingi Íslendinga sé ekki
að vinna vinnuna sína.“
Þess vegna mótmæltum við
Hverju vorum við þá að mótmæla?
Við vorum að mótmæla þeirri
vanvirðingu og því skeytingarleysi
sem okkur hefur verið sýnt. Við erum
vön óvissu, enda háð duttlungum
veðurfars, vélabilana og fiskgengdar.
En stærsti óvissuþátturinn eru
þó stjórnvöld og í ár náði þessi
sveiflukenndi ruglingur sem
einkennir ákvarðanatöku stjórnvalda
hæstu hæðum. Fyrirkomulag
vertíðarinnar var óráðið í báða
enda. Hún hófst á frumvarpi um
svæðaskiptingu aflaheimilda sem
kom inn á borð atvinnuveganefndar
örfáum dögum fyrir vertíðarbyrjun.
Þegar ljóst var að frumvarpið myndi
ekki ná í gegnum Alþingi í tæka tíð
fórum við í fyrsta róður sumarsins
með það hangandi yfir okkur að
fyrirkomulagið gæti breyst í miðri
vertíð. Halla Signý Kristjánsdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins,
orðaði það svo: „Að vori er sumarið
fram undan í strandveiðinni í óvissu“,
og bætti svo við: „Það er verið að taka
áhættu með markmið kerfisins og því
er stefnt í hættu.“
Vertíðin byrjaði með óvissu og
endaði með sama hætti. Svo fór að
lokum að þessi vertíð varð sú stysta
frá upphafi og strandveiðiflotanum
var tilkynnt það 11. júlí kl. 14.00 að
hann væri allur eins og hann leggur
sig atvinnulaus frá og með miðnætti.
Nú segir ráðherra að ráðuneyti
hennar hafi „ekki lagaheimild“ til
þess að bæta við pottinn þó svo að
Strandveiðifélag Íslands hafi síðasta
sumar bent henni á hvar aflaheimildir
væru að finna. Hvers vegna hefur
verið hægt að auka heimildir öll
undanfarin ár en ekki þetta árið?
Svandís hafði allan veturinn til þess
að hugsa þetta og finna lausn en
ákvað að gera það ekki. Hún getur
ekki falið sig á bak við lagaheimildir.
Þetta var pólitískt val.
Það sem er þó sárast eru þau sviknu
loforð sem einkenna framkomu
ráðherra og Vinstri grænna í
okkar garð. Þegar Svandís settist í
ráðherrastól sjávarútvegsmála fór
strandveiðiflotinn að þora að vona
að kannski væri kominn ráðherra
sem myndi mjaka kerfinu í rétta átt.
Hennar flokkur var þá nýbúinn að
heyja kosningabaráttu þar sem lofað
var að „aflaheimildir í 5,3% kerfinu
verði auknar í hóflegum áföngum
með það sem endamarkmið að 8-10%
veiðiheimilda verði til ráðstöfunar
í slíkum tilgangi“ og að festa „þarf
strandveiðar enn betur í sessi“. Þegar
hennar fyrsta strandveiðivertíð, 2022,
endaði með ótímabærri stöðvun 21.
júlí, óskaði Strandveiðifélagið eftir
fundi. Við áttum í kjölfarið góðan
fund með ráðherra (þó hún hafi séð
til þess að draga hann svo langt fram
eftir ágústmánuði að ljóst var að þeirri
vertíð yrði ekki bjargað) og gengum
við hæfilega bjartsýn af þeim fundi.
Svandís sýndi okkur mikinn skilning
og virtist bæði skilja sjónarhorn
okkar og hafa samúð með því.
Fundinum síðasta sumar lauk með
loforði um samvinnu, að ráðuneytið
og strandveiðiflotinn myndi vinna
að bættu kerfi í sameiningu. En svo
heyrist ekki múkk frá ráðuneytinu og
nú virðist ráðherra ekki kannast við
nein þessara loforða.
Óhreinu börnin
Það er ómögulegt að segja hvað vakir
fyrir Svandísi með þessari ótímabæru
stöðvun og skeytingarleysi í okkar
garð. Henni hefur verið tíðrætt um
það að trillukarlar og -konur mættu
kalla sig ráðherra strandveiða.
Ég hef enga ástæðu til að trúa öðru
en að hún vilji, innst inni, gera okkur
hærra undir höfði. Það er þó í hæsta
lagi furðulegt að ráðherra Vinstri
grænna skuli taka grjótharða afstöðu
gegn lítilmagnanum sem stundar
umhverfisvænar fiskveiðar. Eitthvað
er það sem hræddi hana svo mjög
að úr varð stysta strandveiðivertíð í
sögu kerfisins. Það kæmi mér ekki
á óvart að sá orðrómur sé á rökum
reistur að handhafar kvóta hafi herjað
bæði á matvælaráðuneytið og aðra
stjórnarflokka og hótað öllu illu ef
bætt yrði í pottinn.
Hvað sem því líður þá hefur
ráðherra enn sem komið er
ekki sýnt það í verki að hún sé
strandveiðiráðherra, enda erum
við hætt að líta á hana sem slíka.
Okkur trillukörlum og -konum líður
eins og óhreinu börnunum hennar
Evu. Atvinnugrein sem ætti að
vera í algjörum forgangi er alltaf
látin mæta afgangi og fær í besta
falli nokkrar mylsnur sem detta
af gnægtarborðum sægreifanna.
Við erum bæði sár og reið yfir því
að komið sé fram við okkur sem
annars flokks útgerðarform, þegar
sannleikurinn er sá að við stöndum
fremst meðal jafningja hvað varðar
umhverfisvernd, byggðasjónarmið,
gæði og verðmæti afla, og rétt
almennings til atvinnufrelsis og rétt
til að velja sér búsetu. Samt er þessu
málefni iðulega stillt þannig upp að
umhverfisvænar veiðar sem skapa
sjálfbær störf í brothættum byggðum
séu eitthvert sérstakt vandamál.
Frumvarpaveturinn mikli
Það þýðir lítið að gráta orðinn hlut.
Nú verðum við að horfa til framtíðar
og styrkja strandveiðikerfið þannig
að sátt ríki um það hringinn í
kringum landið. Svandís hefur sagt
að „væntanlega verður næsti vetur
tileinkaður nýjum frumvörpum til
heildarlaga“ og því til mikils að vinna.
Ég tel að mótmæli síðustu helgar hafi
sýnt að strandveiðiflotinn ætli ekki
lengur að líða sinnuleysi stjórnvalda.
Eins er ljóst að ráðherra verður að
taka til greina vilja þjóðarinnar,
en samkvæmt skoðanakönnun
Félagsvísindastofnunar Háskóla
Íslands vilja 72,3% Íslendinga að
hærra hlutfall heildarkvóta renni til
strandveiða. Við köllum því á ný
eftir samstarfi við ráðherra og hennar
ráðuneyti í því að finna farsæla
lausn á vanda strandveiðiflotans
til frambúðar. Hún getur fallið í
gleymskunnar dá sem enn einn
ráðherrann sem lúffaði fyrir ofríki
stórútgerðarinnar. Eins gæti hennar
verið minnst í sögubókum sem þeim
ráðherra sem vann samkvæmt vilja
þjóðarinnar og hafði mannréttindi og
náttúruvernd að leiðarljósi. Hennar
er valið.
NYTJAR HAFSINS
Í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst
tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Breyting á stefnu fyrir landbúnaðarsvæði
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 11. maí 2023 að
auglýsa tillögu að breytingu á stefnu fyrir landbúnaðarsvæði í
aðalskipulagi Borgarbyggðar.
Ofangreind tillaga er aðgengileg á Skipulagsgátt Skipulags-
stofnunar www.skipulagsgatt.is og á heimasíðu Borgarbyggðar
www.borgarbyggd.is frá 20. júlí til og með 4. september 2023.
Ef óskað er eftir nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá
skipulagsfulltrúa.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er
gefinn kostur á að gera athugasemd við auglýsta skipulagstillögu
og er frestur til að skila inn athugasemdum til 4. september
2023. Athugasemdum skal skila inn í Skipulagsgátt eða skriflega
í þjónustuver Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borgarnesi,
b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is.
Borgarbyggð, 20. júlí 2023
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar.
SKIPULAGSAUGLÝSING
Óhreinu börnin hennar Svandísar
Kjartan Páll Sveinsson
kjartan.sveinsson@gmail.com
Hundruð trillukarla og -kvenna gengu fylktu liði niður á Austurvöll laugardaginn 15. júlí til að mótmæla stöðvun strandveiða. Greinarhöfundur er fyrir miðju.
Mynd / Gísli Páll Guðjónsson
„Við erum bæði sár og reið yfir því að komið sé fram við okkur sem annars flokks útgerðarform,“ segir Kjartan í grein sinni.
Mynd / Ragna Gestsdóttir