Bændablaðið - 20.07.2023, Page 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
Nú 3. júlí síðastliðinn voru fimmtíu ár síðan fyrsta
gosi sem hafist hefur í byggð lauk.
Er um Heimaeyjargosið að ræða, en það þótti ótrúleg
gæfa hve vel tókst til við björgun á fólki og stórum
hluta eigna. Þó grófust í öskuna nær þriðjungur húsa,
þar á meðal rafveitan, en með ötulli vinnu og þolgæði
sjálfboðaliða, björgunarsveitarmanna og annarra tókst
að bjarga því sem bjargað varð.
Langflestir eyjabúa flýðu gosið sjóleiðina en nokkur
hundruð manns með flugvélum, þá aðallega eldriborgarar
og sjúklingar. Komu allir sem vettlingi gátu valdið til
aðstoðar, til að mynda bátar sem voru á veiðum í nágrenni
eyjanna og allur tiltækur floti flugvéla sem náðist í. Fór
svo að á morgni fyrsta gosdags höfðu allir eyjabúar stigið
fæti á öruggt land, að undanskildum þeim 2-300 sem
urðu eftir til að sinna því sem sinna þurfti. Voru kindur
fluttar með flugvél Fraktflugs yfir til meginlandsins, auk
kálfa. Hænsnfé hins vegar var sett í kassa og flutt með
skipi til lands.
Hófst þá ótrúlegt þrekvirki þeirra sem eftir stóðu.
Neglt var fyrir glugga húsa sem sneru að gosinu, húsþök
styrkt og gjalli sópað af þökum. Búslóðum var pakkað
saman og fluttar til geymslu auk þess sem þúsundum
bifreiða var komið upp á land. Talið er að komið hafi verið í veg fyrir milljarðatjón á eignum bæjarbúa.
Stuttu eftir upphaf gossins var stofnaður sjóður til þess að tryggja hag
Vestmannaeyinga, m.a. vegna tekjumissis og eignatjóns. Einnig til þess að
greiða kostnað vegna björgunarstarfs, tryggja hag Vestmannaeyinga og stuðla
að vernd og endurreisn byggðar. Var sá sjóður kallaður Viðlagasjóður. Það var
ekki vanþörf á þessu enda, eins og kemur fram í Gosannál Vestmannaeyinga,
að um tveimur mánuðum eftir að gos hófst, var lítið lát á ósköpunum.
26. mars: Hraun fer enn að renna og 30 hús fara undir hraun. Vatnsleiðslan
komin í sundur. Rafstöðvarhúsið farið undir hraun. Mörg gömul og merk hús
fara undir hraun, t.d. Brydeshús, sundlaugin, Godthåb, bankahúsið gamla
og verslun Haralds Eiríkssonar. Gaseitrun hættulega mikil.
Mánuði síðar er enn heitt í kolunum, en þó reyna sumir að halda dampi
og setja niður kartöflur.
25. apríl: Mikill hiti í húsum við Kirkjubæjarbraut, viður svíður og málning
flettist af. Einhverjir hafa sett niður kartöflur.
Flutningur fjölskyldna aftur til Vestmannaeyja til baka hófst fyrir alvöru
í ágúst og í nóvember sama ár höfðu rúmlega 2.000 manns snúið til baka af
rúmum 5.000. Þeirra beið mikil og erfið vinna, enda þótt gosi hefði lokið
stóð þykk askan eftir og talið er að eyðilegging hafi orðið á allt að 60%
húsa bæjarins.
Í dag búa rúmlega fjögur þúsund manns í Heimaey, 12. fjölmennustu
byggð á Íslandi, en Vestmannaeyjar samanstanda af alls 15 eyjum og um
30 skerjum og dröngum. /SP
HRINGINN Í KRINGUM LANDIÐ
Ærið verður um að vera á Hvann-
eyri aðra helgina í ágúst, en laugar-
daginn þann tólfta verður hin
sívinsæla Hvanneyrarhátíð haldin
á milli kl. 13–17.
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor
Landbúnaðarháskólans, mun setja
hátíðina kl. 13.30 á kirkjutröppunum
en í kirkjunni má hlýða á ljúfa tóna yfir
daginn. Þar munu Reynir del Norte,
einn helsti fulltrúi spænsks gítarleiks
á Íslandi, og Þórarinn Torfi, gítarleikari
og söngvaskáld , flytja nokkur lög hvor.
Landbúnaðarsafn Íslands býður
gestum að líta við án endurgjalds og
verða gamlar dráttarvélar og annað
áhugavert til sýnis fyrir utan. Einnig
verður boðið upp á andlitsmálun
og geta ungir sem aldnir tekið
þátt í leikjum og sprelli á vegum
Ungmennafélagsins Íslendings. Keppt
verður í dráttarvélaakstri eins og vani
er, merk saga Frúargarðsins verður
sögð auk þess sem gestir geta séð
sýninguna „Konur í landbúnaði í 100
ár“ á lofti Halldórsfjóss. Hægt verður
að gæða sér á veitingum í Skemmunni
kaffihúsi og Kvenfélagið 19. júní
verður einnig með veitingasölu. Þá
verður markaður í hlöðunni með
handverk og góðgæti beint frá býli
og opið fjós hjá Hvanneyrarbúinu
sem gaman er að heimsækja. Þá sýnir
Álfheiður Marinósdóttir, kennslustjóri
LbhÍ, býflugnabúin sín og hægt verður
að horfa á gömul myndbrot í sögu og
viðburðum frá Hvanneyri.
Dagskránni lýkur kl. 17 en kl. 20
verður brekkusöngur á kirkjuhólnum
ef veður leyfir, annars þenja gestir
og gangandi raddbönd sín í hlöðu
Halldórsfjóss. Fyrir sundglaða má
minna á að Hreppslaug er opin til
klukkan 22. /SP
Hvanneyrarhátíð
Hvanneyrarhátíðin er jafnan vel sótt.
Ungir sem aldnir koma saman og taka til hendinni í Frúargarðinum. Staðarbúar
komu saman í júní og lyftu grettistaki í garðinum og fögnuðu – í kjölfarið
–með götugrilli í Skemmunni kaffihúsi. Myndir / Aðsendar
Voru sjálfboðaliðar óþreytandi við þau verk er vinna mátti þó askan dreifðist um allt. Hér eru ötulir vinnumenn og
konur með gosið í baksýn. Mynd / Sigurjón Einarsson frá Oddsstöðum - Wikipedia
Skemmuvegur 4, Blá gata. hafsport.is
KONTRA 400
Sterkir, stöðugir og ósökkvandi
bátar fyrir íslenskar aðstæður.
PLASTBÁTAR
895.000 kr. (án stýris)
1.495.000 kr. (með stýri og kerru)
Vestmannaeyjar fyrir hálfri öld:
Heimaeyjargosið
Morgunblaðið laugardaginn 27. janúar, skömmu eftir að
gos hófst. Myndatextinn segir: „Vikurinn kaffærir húsin
smátt og smátt. Í baksýn er ógnvaldurinn spúandi eldi og
eimyrju.“ Ljósmyndari er Sigurgeir Jónasson.
(www.timarit.is)
Í Morgunblaðinu miðvikudaginn 24. janúar má sjá brot af upplifunum þeirra
Eyjamanna sem flúðu heimili sín – við komuna til Þorlákshafnar. Til vinstri
eru þau Pétur Guðjónsson og Lilja í Kirkjubæ og segir Lilja að í raun hafi
eldhafið verið við bæjardyrnar hjá þeim. Á myndinni til hægri hefur ungi
maðurinn í hægra horninu orðið og segir: „Nei, maður varð ekki hræddur
heldur aðallega ruglaður, já, alveg ringlaður.“ (www.timarit.is)