Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023 Nú 3. júlí síðastliðinn voru fimmtíu ár síðan fyrsta gosi sem hafist hefur í byggð lauk. Er um Heimaeyjargosið að ræða, en það þótti ótrúleg gæfa hve vel tókst til við björgun á fólki og stórum hluta eigna. Þó grófust í öskuna nær þriðjungur húsa, þar á meðal rafveitan, en með ötulli vinnu og þolgæði sjálfboðaliða, björgunarsveitarmanna og annarra tókst að bjarga því sem bjargað varð. Langflestir eyjabúa flýðu gosið sjóleiðina en nokkur hundruð manns með flugvélum, þá aðallega eldriborgarar og sjúklingar. Komu allir sem vettlingi gátu valdið til aðstoðar, til að mynda bátar sem voru á veiðum í nágrenni eyjanna og allur tiltækur floti flugvéla sem náðist í. Fór svo að á morgni fyrsta gosdags höfðu allir eyjabúar stigið fæti á öruggt land, að undanskildum þeim 2-300 sem urðu eftir til að sinna því sem sinna þurfti. Voru kindur fluttar með flugvél Fraktflugs yfir til meginlandsins, auk kálfa. Hænsnfé hins vegar var sett í kassa og flutt með skipi til lands. Hófst þá ótrúlegt þrekvirki þeirra sem eftir stóðu. Neglt var fyrir glugga húsa sem sneru að gosinu, húsþök styrkt og gjalli sópað af þökum. Búslóðum var pakkað saman og fluttar til geymslu auk þess sem þúsundum bifreiða var komið upp á land. Talið er að komið hafi verið í veg fyrir milljarðatjón á eignum bæjarbúa. Stuttu eftir upphaf gossins var stofnaður sjóður til þess að tryggja hag Vestmannaeyinga, m.a. vegna tekjumissis og eignatjóns. Einnig til þess að greiða kostnað vegna björgunarstarfs, tryggja hag Vestmannaeyinga og stuðla að vernd og endurreisn byggðar. Var sá sjóður kallaður Viðlagasjóður. Það var ekki vanþörf á þessu enda, eins og kemur fram í Gosannál Vestmannaeyinga, að um tveimur mánuðum eftir að gos hófst, var lítið lát á ósköpunum. 26. mars: Hraun fer enn að renna og 30 hús fara undir hraun. Vatnsleiðslan komin í sundur. Rafstöðvarhúsið farið undir hraun. Mörg gömul og merk hús fara undir hraun, t.d. Brydeshús, sundlaugin, Godthåb, bankahúsið gamla og verslun Haralds Eiríkssonar. Gaseitrun hættulega mikil. Mánuði síðar er enn heitt í kolunum, en þó reyna sumir að halda dampi og setja niður kartöflur. 25. apríl: Mikill hiti í húsum við Kirkjubæjarbraut, viður svíður og málning flettist af. Einhverjir hafa sett niður kartöflur. Flutningur fjölskyldna aftur til Vestmannaeyja til baka hófst fyrir alvöru í ágúst og í nóvember sama ár höfðu rúmlega 2.000 manns snúið til baka af rúmum 5.000. Þeirra beið mikil og erfið vinna, enda þótt gosi hefði lokið stóð þykk askan eftir og talið er að eyðilegging hafi orðið á allt að 60% húsa bæjarins. Í dag búa rúmlega fjögur þúsund manns í Heimaey, 12. fjölmennustu byggð á Íslandi, en Vestmannaeyjar samanstanda af alls 15 eyjum og um 30 skerjum og dröngum. /SP HRINGINN Í KRINGUM LANDIÐ Ærið verður um að vera á Hvann- eyri aðra helgina í ágúst, en laugar- daginn þann tólfta verður hin sívinsæla Hvanneyrarhátíð haldin á milli kl. 13–17. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskólans, mun setja hátíðina kl. 13.30 á kirkjutröppunum en í kirkjunni má hlýða á ljúfa tóna yfir daginn. Þar munu Reynir del Norte, einn helsti fulltrúi spænsks gítarleiks á Íslandi, og Þórarinn Torfi, gítarleikari og söngvaskáld , flytja nokkur lög hvor. Landbúnaðarsafn Íslands býður gestum að líta við án endurgjalds og verða gamlar dráttarvélar og annað áhugavert til sýnis fyrir utan. Einnig verður boðið upp á andlitsmálun og geta ungir sem aldnir tekið þátt í leikjum og sprelli á vegum Ungmennafélagsins Íslendings. Keppt verður í dráttarvélaakstri eins og vani er, merk saga Frúargarðsins verður sögð auk þess sem gestir geta séð sýninguna „Konur í landbúnaði í 100 ár“ á lofti Halldórsfjóss. Hægt verður að gæða sér á veitingum í Skemmunni kaffihúsi og Kvenfélagið 19. júní verður einnig með veitingasölu. Þá verður markaður í hlöðunni með handverk og góðgæti beint frá býli og opið fjós hjá Hvanneyrarbúinu sem gaman er að heimsækja. Þá sýnir Álfheiður Marinósdóttir, kennslustjóri LbhÍ, býflugnabúin sín og hægt verður að horfa á gömul myndbrot í sögu og viðburðum frá Hvanneyri. Dagskránni lýkur kl. 17 en kl. 20 verður brekkusöngur á kirkjuhólnum ef veður leyfir, annars þenja gestir og gangandi raddbönd sín í hlöðu Halldórsfjóss. Fyrir sundglaða má minna á að Hreppslaug er opin til klukkan 22. /SP Hvanneyrarhátíð Hvanneyrarhátíðin er jafnan vel sótt. Ungir sem aldnir koma saman og taka til hendinni í Frúargarðinum. Staðarbúar komu saman í júní og lyftu grettistaki í garðinum og fögnuðu – í kjölfarið –með götugrilli í Skemmunni kaffihúsi. Myndir / Aðsendar Voru sjálfboðaliðar óþreytandi við þau verk er vinna mátti þó askan dreifðist um allt. Hér eru ötulir vinnumenn og konur með gosið í baksýn. Mynd / Sigurjón Einarsson frá Oddsstöðum - Wikipedia Skemmuvegur 4, Blá gata. hafsport.is KONTRA 400 Sterkir, stöðugir og ósökkvandi bátar fyrir íslenskar aðstæður. PLASTBÁTAR 895.000 kr. (án stýris) 1.495.000 kr. (með stýri og kerru) Vestmannaeyjar fyrir hálfri öld: Heimaeyjargosið Morgunblaðið laugardaginn 27. janúar, skömmu eftir að gos hófst. Myndatextinn segir: „Vikurinn kaffærir húsin smátt og smátt. Í baksýn er ógnvaldurinn spúandi eldi og eimyrju.“ Ljósmyndari er Sigurgeir Jónasson. (www.timarit.is) Í Morgunblaðinu miðvikudaginn 24. janúar má sjá brot af upplifunum þeirra Eyjamanna sem flúðu heimili sín – við komuna til Þorlákshafnar. Til vinstri eru þau Pétur Guðjónsson og Lilja í Kirkjubæ og segir Lilja að í raun hafi eldhafið verið við bæjardyrnar hjá þeim. Á myndinni til hægri hefur ungi maðurinn í hægra horninu orðið og segir: „Nei, maður varð ekki hræddur heldur aðallega ruglaður, já, alveg ringlaður.“ (www.timarit.is)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.