Bændablaðið - 20.07.2023, Síða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
Þetta gerir skógarbóndi
Störf bænda eru fjölbreytt árið um
kring. Vinnuár skógarbænda hefst
strax um áramót, því þá þurfa þeir
að vera búnir að ákveða hvað þeir
ætla að gera það árið.
Samkvæmt skógræktaráætlun
sinni leggja þeir inn beiðni til
Skógræktarinnar um ákveðið magn
af plöntum til gróðursetningar. Út
frá því útvegar Skógræktin plöntur
til handa bændum.
Fyrstu vetrarmánuðina segir
Björn að sé nokkuð rólegur tími.
„Ég er engu að síður í þeim hópi
sem tel mikilvægt að skógar-
bændur sæki þau námskeið sem
eru í boði. Við fæðumst ekki
með vitneskjuna um skógrækt en
auðveldasta og fljótlegasta leiðin til
að öðlast þekkinguna er að sækja
sér menntun.“
Þannig, segir Björn, sé lærdóms-
ríkt að taka þátt í félagsstarfi
skógarbænda. Þau hjón eru sjálf í
einum af þremur leshópum skógar-
bændafélagsins þar sem m.a. er
farið í heimsóknir milli bænda
og þeir kynna sér starf kollegana
og læra jafnvel af árangri þeirra
og mistökum.
Þegar líður að vori sé mikilvægt
að útvega sér allt sem til þarf í
gróðursetningu, kaupa áburð og
yfirfara öll tól og tæki. „Það er fátt
leiðinlegra en að lenda í biluðum
verkfærum fyrir gróðursetningu,“
segir Björn, enda má þá engan
tíma missa því frá miðjum maí er
mikið um að vera. „Við vitum það
að viku af júní þá þurfum við að
vera búin með gróðursetningu á
öllum plöntum sem koma úr frysti.
Við getum svo tekið okkur aðeins
lengri tíma með bakkaplöntur og
asparstiklinga.“
Þegar vorgróðursetningu lýkur
tekur við girðingarvinna og viðhald
slóða. „Svo skiptir miklu máli,
eins og núna í júlí, að komast
reglulega um og skoða trén með
tilliti til sjúkdóma og plága sem
geta sprottið upp,“ segir Björn.
Ef svo ber undir þurfi að bregðast
fljótt við, láta sérfræðinga á
Mógilsá vita. „Sem betur fer höfum
við verið mjög laus við plágur
hingað til. Við förum vikulega,
göngum um og skoðum trén.
Hér getur komið upp ertuygla á greni
sem er mjög hvimleitt.“
Þá er júlí einnig tími jarðvinnu.
Ef undirbúa þarf svæði fyrir haust-
gróðursetningu þarf að koma því í
verk og einnig er gott að undirbúa
svæði fyrir næsta ár.
„Í ágúst taka svo haustgróður-
setningar við. Um leið og við
gróðursetjum gefum við áburð. Við
erum komin með seinleystan áburð
sem plönturætur geta legið upp við
án þess að brenna og því gefum
við jafnóðum.“
Eftir að öllum gróðursetningum
er lokið hefst vinna við umhirðu
skógarins; uppkvistun, tvítoppar
teknir og millibilsjöfnun – en
í því felst að lökustu trén eru
tekin og magn trjáa minnkar þar.
Fyrsta grisjun hefst svo um 30 ára
aldurinn. „Umhirðuþátturinn er
mjög mikilvægur og skógarbændur
verða að gera sér grein fyrir því að
um leið og maður setur niður tré
þá er verkefnið ekki þar með búið.
Maður þarf að passa vel upp á að
það fjármagn sem ríkið leggur til
nytjaskógræktar á Íslandi nýtist
sem best.“
Að njóta og nýta
Björn segir að enginn fari af stað
í skógrækt í dag til þess að græða
peninga, heldur til að græða upp
landið. „Auðvitað geta jarðir hækkað
í verði þegar á þeim er skógur en þú
ert samt á öðrum forsendum. Þeir
sem mennta sig í skógrækt gera það
ekki til að fara í „bissness“. Þeir sem
ráða sig í skógræktarvinnu spyrja
ekki um laun – fólk er í þessu af
hugsjón. Þannig er þetta bara.“
Hjónin segja skógræktina
einnig fjölskyldufag og taka bæði
börn þeirra og barnabörn virkan
þátt í uppgræðslunni. „Við tökum
myndir af svæðinu og biðjum þau
að skoða þær eftir þrjátíu til fimmtíu
ár. Þar sem áður voru rofabörð og
svartir melar verður gróðursæll
verðmætur skógur.“
Því ef vel gengur mun ásýnd
Klufta breytast verulega næstu
áratugi. Rúmlega 100 hektara skógur
með blönduðum trjátegundum
munu prýða landið og ofan við það
mun uppgrætt land og birkikræða
líðast upp yfir 300 metra hæðina.
Berjamóa má finna víða. Timbur
skógarins verður nýtanlegt og gnægð
fæðu verður að finna, slóðarnir
munu svo bjóða upp á gönguleiðir
gegnum fjölbreytt skógarlandslag.
„Í framtíðinni verður þetta skógur
til að njóta, ekki síður en að nýta,“
segir Björn enda feli útivist í skógi
í sér mikla hugarró.
Skógurinn er óárstíðarbundinn
bendir Jóhanna á. „Það er alveg eins
gott að fara út í skóg á veturna og á
sumrin. Hann gefur þér alltaf kyrrð
og friðsæld. Þegar maður kemur á
svona stað þá er eins og það hægi á
hjartslættinum.“
Midea Varmadæla
Arctic Series
- Loft í vatn -
Nýtt útlit - tekur lítið gólfpláss
Innbyggður neystluvatnstankur
Wifi tenging - hægt að stjórna og fylgjast
með úr snjalltæki
Hafðu samband við okkur og við
finnum réttu dæluna fyrir þig
Frábær verð
Umhverfisvænn
kælimiðill
Allt að 80% orkusparnaður
www.kaelitaekni.is
Huppa frá Kluftum
Jörðin Kluftar var lengi efsta byggða ból í Hrunamannahreppi en fór í
eyði árið 1954. Saga Klufta er samofin sögu íslensku mjólkurkýrinnar, en
þar ólst upp afburðakýrin Huppa. Hún fæddist þann 3. nóvember árið 1926 og
lifði þar til 17 ára aldurs.
Huppa er talin vera sú kýr sem hefur haft hvað víðtækust áhrif á naut-
griparækt hér á landi.
Í Morgunblaðinu á fæðingardegi Huppu árið 1976 er grein um kúna í tilefni 50
ára afmælis hennar. Þar er sagt að synir hennar hafi verið notaðir til kynbóta á
nokkrum stöðum á landinu og síðar sonar- og dætrasynir. „Eftir að sæðingar
nautgripa hófust og einkum eftir að djúpfrystingartæki voru tekin í þágu
nautgriparæktar, hefur útbreiðsla Kluftakynsins enn aukist og má nú telja víst,
að þorri íslenskra kúa eigi ætt sína að rekja að einhverju leyti til Huppu.“
Áhrifa Huppu gætir nú sem fyrr og óhætt er að segja að sem næst allar
núlifandi kýr reki ættir sínar til hennar á einn eða annan hátt. Þá dregur afurða-
og skýrsluhaldskerfi í nautgriparækt nafn sitt af Huppu. Jörðin Kluftar var tekin
af skrá yfir eyðibýli nýlega enda hafa Björn og Jóhanna þar nú búsetu.
Björn lítur yfir brekku með furutrjám sem eru að ná sér á strik eftir vorhretið. Í skóginum má meðal annars finna
greni, aspir og birki. Íbúðarhús hjónanna sést í fjarlægð.
Hér sést nokkuð myndarleg ösp í forgrunni en í bakgrunni má sjá brekku
með úrvalsbirki úr yrkinu ´Emblu´.
Þegar líða fer að vori þarf að yfirfara öll verkfæri fyrir gróðursetningu og
kaupa áburð. Neðst til vinstri sést áburðurinn sem bændurnir nota; seinleyst
korn sem sett eru niður undir plönturnar.
Bæjarrústir Klufta sem fór í eyði árið 1954. Þar var kýrin Huppa til 17 ára
aldurs. Í forgrunni má sjá breiðu af höskollum.
VIÐTAL