Bændablaðið - 20.07.2023, Side 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
LÍF&STARF
Handverksbrugghúsin á Íslandi:
Perlan í alfaraleið
Í undanförnum tölublöðum
Bændablaðsins hafa birst pistlar
um íslensk brugghús. Rétt er að
benda á að athugasemdum má
gjarnan koma á framfæri við
greinarhöfunda ef einhverjar eru.
En nú er komið að Smiðjunni,
brugghúsi og veitingastað í Vík
í Mýrdal.
Vík í Mýrdal er einn af þessum
stöðum sem lætur ekki mikið yfir
sér í fyrstu en þegar betur er að
gáð leynast þar ýmsar perlur. Vík
er syðsta sjávarþorp landsins og það
eina sem hefur enga almennilega
hafnaraðstöðu. Vegna staðsetningar
sinnar og mikillar náttúrufegurðar í
umhverfi Víkur hefur bærinn orðið
vinsæll áningarstaður ferðamanna
og líklega hefur Katla, Netflix-
þáttaröð Baltasars Kormáks lítið
dregið úr áhuganum.
Ferðamannastraumnum hefur
fylgt ýmislegt túristalegt en þó
eru þar ýmsar perlur sem teldust
jafnvel faldar. Ef að meginstraums
ferðamannakaffihús henta ekki
er hægt að finna frábæra litla
skólarútu þar sem kaffibrennslan
Skool Beans er rekin. Þar er
nýbrennt og malað handverkskaffi
afgreitt út um baklúguna á gömlum
amerískum skólabíl og fullvaxnir
greinarhöfundar geta ekki alveg
staðið uppi.
Heimabrugg tók völdin
En handverkskaffið er ekki eina
matarhandverkið í Vík, því þar er
líka Smiðjan, handverksbrugghús
og veitingastaður en það er
umfjöllunarefni þessarar greinar.
Þórey Richardt Úlfsdóttir og
Sveinn Sigurðsson voru samstillt
par þegar kom að matar- og
vínáhuga. Hún er frá Egilsstöðum
en hann frá Hvolsvelli. Eftir að
hafa klárað viðskiptafræði í HR
þar sem lokaverkefni Sveins var
verkefni tengt Ölvísholti ákváðu
þau að halda til náms í Danmörku
2014 þar sem Sveinn lagði stund
á vörumerkjastjórnun við CBS.
Í Danaveldi tók heimabruggið
völdin, Sveinn gerðist bjórbloggari
og flestum verkefnum í skólanum
var snúið upp í bjór.
Svo gerðist það að vinur þeirra,
Vigfús Þór Hróbjartsson, fékk Bjór,
umhverfis jörðina á 120 tegundum,
sem deilir höfundum með þessum
greinarflokki, í jólagjöf og hafði
samband og spurði hvort þau ættu
ekki að stofna brugghús í Vík.
Þá hafði Sveinn verið nýbúinn
að skila inn viðskiptaáætlun fyrir
lítið brugghús á Fjóni, sendi vini
sínum áætlunina og sagði í gamni
að hann skyldi bara þýða hana
yfir á íslensku. Þegar Vigfús Þór
sendi þeim teikningar 2 dögum
síðar þar sem hann hafði breytt
gömlu sláturhúsi í Vík í brugghús,
veitingastað og hótel, varð ljóst að
ekki var aftur snúið.
Vorið 2018 opnaði Smiðjan og
síðan þá hefur stöðugur straumur
legið þangað í mat og drykk.
Fljótlega bættist annar Vigfús í
eigendahópinn en báðir Vigfúsarnir
eru frá Vík meðan Þórey og
Sveinn eru núna sest að í Vík og
standa saman að daglegum rekstri
Smiðjunnar. Allt þetta hefur vaxið
úr því að vera lítið ástríðuverkefni
í rúmlega 20 manna vinnustað sem
er í stækkun og fram undan er að
byggja bjórböð, líkt og notið hafa
mikilla vinsælda.
Kveikur sem fólk elskar og hatar
Kunnasta framleiðsla Smiðj unnar
er líklega Haltá ketti, margþurr-
humlaður IPA bjór með mjólkursykri
og gerjaður með norsku sveitageri
kölluðu kveik, sem þýðir einfald-
lega ger á flestum þeim mállýskum
þar sem þetta var notað í Noregi.
Kveik gerið gerjar bjórinn oft
hratt og harkalega og er hann þar
af leiðandi tilbúinn fyrr og kemur
gerið með ýmis ávaxtakenndari
brögð en hefðbundið ger.
Óvísindaleg könnun greinar-
höfunda sýndi að fólk skiptist í
tvo hópa, fólk sem elskar kveik og
fólk sem hatar kveik. Fáir eru þarna
á milli.
Wet all day IPA bjórinn er annar
sem notið hefur töluverðra vinsælda
og hefðbundnari session IPA bjór.
(Session bjór er alla jafna vægari
í áfengisprósentu en reglubundna
útgáfan). Söluhæsti bjórinn þeirra
í Vínbúðinni í fyrra var þó Haltá
Jólaketti, en varla þarf að útskýra
orðagrínið frekar.
Bjart fram undan
Unnendur handverksbjóra hafa
væntanlega tekið eftir því að
hönnunin á Smiðju bjórunum er
nokkuð einkennandi, þó hún sé ekki
beinlínis alltaf eins. Þar gætir áhrifa
listamannsins Bobby Breiðholt sem
hefur verið sá sem hannað hefur
flestar umbúðirnar fyrir brugghúsið
upp á síðkastið. Tengingarnar
voru þannig að fjölskylda herra
Breiðholts var með hús á Vík og
þegar hann bað þau um að gera
mat fyrir brúðkaupið sitt varð úr
að hann tók að sér hönnunina fyrir
fyrirtækið og hefur hann séð um
hana að mestu leyti síðan.
Þrátt fyrir þessi sterku einkenni
á dósunum er kannski samt það
sem einkennir þetta brugghús að
Vínbúðin er ekki þeirra stærsti
útsölustaður, heldur er það
veitingastaðurinn þeirra í Vík.
Lauslega má áætla að um 90% af
framleiðslunni sé til heimanota
og voru eigendurnir oft í stökustu
vandræðum að manna bjórkranana
10 með eigin framleiðsluvörum.
Gekk það svo langt að frá júní
til september 2022 seldi Smiðjan
ekkert til Vínbúðarinnar en hafði
þó ekki undan að framleiða upp
í staðareftirspurn. Hefur það
leitt til stækkunar brugghússins
sem verið er að leggja lokahönd
á en gerjunarrýmið er að fara úr
um 8.000 lítrum í 28.000 lítra
sem segja má að þýði lauslega
um 280–300 þúsund lítra árlega
framleiðslugetu. Sem er kannski
eins gott því Smiðjan var fyrsta
smábrugghúsið til að tryggja sér
leyfi til að selja handverksbjórinn
beint af framleiðslustað þegar
lögum var breytt vorið 2022.
Það er ljóst að það er bjart fram
undan í Vík þegar kemur að bjór
og ljóst að Smiðjan er varla falin
perla mikið lengur, heldur orðið
að raunverulegu aðdráttarafli
fyrir ferðamenn. Það þurfti engan
Baltasar Kormák til þess.
YLEININGAR
Léttar stálklæddar samlokueiningar sem fást með þéttifrauðs- eða steinullarkjarna.
Auðveld og fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi
og er ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir. Henta vel fyrir eldri gripahús
þar sem skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
Höskuldur
og Stefán
hoskuldur@bondi.is
Sveinn Sigurðsson og Þórey Richardt Úlfsdóttir stofnuðu Smiðjuna ásamt vini sínum, Vigfúsi
Þór Hróbjartssyni. Síðar bættist annar Vigfús í eigendahópinn.
Smiðjan er staðsett í hringiðu ferðamannastraumsins í Vík í Mýrdal. Hér má sjá brugghúsið að
utan á snjóþungum vetri.
Smiðjan hefur vaxið úr því að vera lítið ástríðuverkefni í rúmlega 20 manna
vinnustað.
Kunnasta framleiðsla Smiðjunnar er
líklega Haltá ketti, margþurrhumlaður
IPA bjór.