Bændablaðið - 20.07.2023, Síða 49

Bændablaðið - 20.07.2023, Síða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023 Góð smurning Komdu við á næstu Olísstöð Góð smurolía eykur endingu véla og dregur úr sliti og kostnaði við rekstur. Við eigum mikið úrval frá Texaco, Castrol og Cargo Oil fyrir öll hugsanleg tæki. Helluhraun 4, Hafnarfirði sími 565 2727 & 892 7502 www.rag.is TILBOÐSVERÐ 4.900.000,- Við auglýsum svo sannarlega ekki “verð frá”. VIÐ AUGLÝSUM ALDREI „VERÐ FRÁ“ SERES 3 Luxury Rafmagnsbíllinn býður upp á ríkulegan staðalbúnað og frágang í hæsta gæðaflokki! Sveitasæla Skagafjarðar Landbúnaðarsýningin og bænda- hátíðin Sveitasælan verður haldin í Skagafirði þann 19. ágúst næstkomandi. Hátíðin er nú endurvakin eftir þriggja ára dvala en hún er haldin af sveitarfélaginu Skagafirði, reiðhöllinni, Búnaðarsambandi Skagfirðinga og búgreinafélögum á svæðinu. Viðburðurinn fer fram í reiðhöllinni á Sauðárkróki. Bændur og áhugafólk um landbúnað gera sér þar glaðan dag, kynna starfsemi sína, handverk og vörur beint frá býli, fram fer kálfasýning, hrútaþukl og aðrar óvæntar uppákomur. Hátíðin verður með myndasamkeppni þar sem myndasmiðir eru beðnir um að sýna sína sveitasælu með því að tagga myndir af hátíðinni og verða vinningar í boði fyrir bestu myndirnar. Hægt er að nálgast allar frekari upplýsingar gegnum samfélagsmiðla Sveitasælunnar. /ghp Kálfasýning fer fram á Sveitasælunni. Mynd /Aðsend Þetta eru kvígurnar Dröfn og Díla frá Laxamýri í Suður- Þingeyjarsýslu. „Þær voru komnar í heiminn að morgni 10. júní þegar fólk kom í fjós og eru fimmtu tvíkelfingarnir á árinu,“ segir Atli Vigfússon, bóndi á Laxamýri, aðspurður um þessa litfögru tvíkelfinga. Móðir Dröfn og Dílu heitir Medúsa og er út af Núma nr.16038 frá Gaulverjabæ. Faðirinn heitir Hjörtur frá Hjartarstöðum á Héraði og er sonur Ýmis nr.13051 frá Klauf í Eyjafirði. Kvígurnar eru verðandi mjólkurkýr og hafa verið settar á í þeim tilgangi. Á Laxamýri er blandað bú með 85 nautgripum í fjósi, þar af rúmlega 40 kýr. „Við sem búum hér á bænum höfum mikinn áhuga á litaflóru íslenska kúastofnsins og þar er sægrátt og grátt í uppáhaldi. Það er að vísu erfitt í ræktun því gráu litirnir eru víkjandi litir en stundum koma kýrnar skemmtilega á óvart með fallegum litarafbrigðum,“ segir Atli alsæll. /mhh Fimm tvíkeflingar á ári Nýjustu tvíkelfingarnir á Laxamýri, systurnar Dröfn og Díla, sem eru einstaklega fallegar á litinn enda sérstakt áhugamál á bænum að rækta sægráar og gráar kýr. Mynd /Aðsend

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.