Bændablaðið - 20.07.2023, Side 52

Bændablaðið - 20.07.2023, Side 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023 Búið er að birta lokaskýrslu verkefnisins „Ræktun gegn riðu - Áhrif mismunandi leiða við innleiðingu verndandi arfgerða metin með slembihermunum“ á heimasíðu RML. Verkefnið var unnið af Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands og var styrkt af Þróunarsjóði sauðfjárræktarinnar. Niðurstöðurnar sýna að þrátt fyrir að hin viðurkennda verndandi ARR-samsæta sé mjög sjaldgæf er hægt að innleiða hana tiltölulega hratt hér á landi, þannig að allar kindur á riðusvæðum verði með verndandi arfgerðir eftir innan við 10 ár og allur stofninn eftir innan við 20 ár. Þetta er hægt með viðráðanlegum fjölda arfgerðagreininga og án þess að setja stofninn í hættu vegna skyldleikaræktar eða lítillar virkrar stofnstærðar. Þegar fyrstu íslensku kindurnar sem bera ARR-samsætuna fundust á bænum Þernunesi á Austurlandi í fyrra vöknuðu miklar vonir um innleiðingu samsætunnar í íslenska sauðfjárstofninn og sigur í baráttunni gegn riðu, en ARR- samsætan er alþjóðlega viðurkennd sem verndandi gegn riðu. Fáir arfberar ARR, sem allir eru úr sömu hjörðinni í upphafi, vekja hins vegar áhyggjur um að innleiðing samsætunnar í allan stofninn geti verið tímafrek og kostnaðarsöm, dregið úr erfðaframförum í kynbótastarfinu ásamt því að valda óhóflegri skyldleikarækt og tapi á erfðafjölbreytni í stofninum. Markmið þessa verkefnis var því að meta áhrif mismunandi leiða innleiðingar ARR í íslenska sauðfjárstofninn og voru helstu áhrifaþættir til skoðunar: Hraði innleiðingar, skyldleikarækt, virk stofnstærð og erfðaframför. Í rannsókninni var íslenski sauðfjárstofninn og kynbætur á honum settur upp með hermilíkani í tölvu og reyndum við eftir fremsta megni að líkja eftir stofninum í raun. Stofninum var skipt niður í hjarðir og hjörðunum skipt þannig að hluti var á riðusvæðum og hluti á öðrum svæðum. Í hermilíkaninu voru hermdir þrír framleiðslueiginleikar: Fallþungi, gerð og mæðraeiginleiki. Settar voru upp 12 sviðsmyndir fyrir 20 ár af riðumótstöðuræktun þar sem ARR-samsætan var innleidd í 130.000 áa stofn. Þrjár breytur aðskildu sviðsmyndirnar: 1) hvort áhersla á riðumótstöðuræktun var mikil í öllum stofninum eða mikil á riðusvæðum en minni annarstaðar, 2) hversu stórt hlutfall lamba var arfgerðargreint, og 3) hvort hrútar með verndandi arfgerðir voru aðeins notaðir í eitt ár eða í allt að þrjú ár. Til samanburðar var sett upp grunnsviðsmynd þar sem aðeins var valið fyrir framleiðslueiginleikum. Í töflu 1 má finna lýsingu á sviðsmyndunum sem eru sýndar í myndum 1 til 3 í þessari grein. Í öllum sviðsmyndum báru nánast allar kindur minnst eina ARR-samsætu eftir 20 ár af riðumótstöðuræktun og á riðusvæðum eftir 9 ár. Á mynd 1 sést þróun arfgerðahlutfalla ærstofnsins í fjórum af sviðsmyndum rannsóknarinnar. Eftir 20 ár af riðumótstöðuræktun er hlutfall arfhreinna ARR-gripa að nálgast 100% í sviðsmyndum þar sem allur stofninn leggur áherslu á innleiðingu en er á bilinu 50-70% í sviðsmyndum þar sem minni áhersla er utan riðusvæðanna. Mikill munur var á fjölda arfgerðar Völuteig 4 - 270 Mosfellsbær www.vinnuvelarehf.is - S: 496 4400 1.000m3 án vsk. 2.800.000 1.500m3 án vsk. 3.500.000 Verðdæmi: 2.000m3 án vsk. 4.300.000 Hagkvæm geymsla verðmæta MYKJULÓN Kr. 3.472.000 m/vsk Kr. 4.340.000 m/vsk Kr. 5.332.000 m/vsk Mykjulón eru hagkvæm og afturkræf aðferð við geymslu á húsdýraáburði sem gerir bændum kleift að hámarka verðmæti áburðarefna og uppfylla kröfur um geymslu búáráburðar. Mykjulón eru styrkhæf framkvæmd. RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS Hægt að innleiða ARR hratt án þess að stofna stofninum í hættu Jón Hjalti Eiríksson. Þórdís Þórarinsdóttir. Mynd 1 - Þróun arfgerðahlutfalla ærstofnsins á árunum eftir að riðumót- stöðuræktun hefst. Q eða R tákna breytileika í sæti 171. Mynd 2 - Þróun meðalskyldleikaræktarstuðuls í stofninum við innleiðingu ARR-samsætunnar. Mynd 4 – Virk stofnstærð fyrir ár 1-15. Niðurstöðurnar sýna að þrátt fyrir að hin viðurkennda verndandi ARR-samsæta sé mjög sjaldgæf er hægt að innleiða hana tiltölulega hratt hér á landi, þannig að allar kindur á riðusvæðum verði með verndandi arfgerðir eftir innan við 10 ár og allur stofninn eftir innan við 20 ár. Mynd / ÞÞ

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.