Bændablaðið - 20.07.2023, Page 56

Bændablaðið - 20.07.2023, Page 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023 Vetrarnepja: Próteinræktun og olíuframleiðsla Mikil tækifæri eru á ræktun olíujurta hér á landi. Með ræktun á olíujurtum má anna eftirspurn matarolíu, lífdísils og próteingjafa fyrir búfé. Niðurstöður rannsókna við Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðar- háskóla Íslands hafa sýnt tvöfalt meiri uppskeru vetrarrepju samanborið við vornepju og uppskerumöguleika á við það sem best gerist erlendis. En undanfarin ár hafa verið stundaðar rannsóknir á repju og nepju styrkt af Matvælasjóði, Þróunarsjóði nautgripabænda, Orkurannsóknasjóði Lands- virkjunar og Nýsköpunarsjóði námsmanna. Vetrarafbrigði eru ólík vor- afbrigðum að því leyti að vetrarafbrigðum er sáð síðsumars og látin yfirvetrast sem blómgast svo og þroskast haustið eftir, rúmu ári eftir sáningu. Helsti munurinn á afbrigðum þegar kemur að kostnaði er áburðarliðurinn, þar sem bera þarf á við sáningu til vetrarundirbúnings og að vori eftir veturinn. Niðurstöður erlendis og hérlendis hafa sýnt fram á hærri uppskeru vetrarafbrigða en vorafbrigða sem leiðir til hærri tekna og vegur því upp á móti gjöldum sem við kemur ræktuninni. Að því gefnu að vetrarafbrigðið lifi veturinn af, sem er ekki alltaf raunin hér á landi. Olíurepja- og -nepja búa yfir ólíkum eiginleikum þegar kemur að þroska en hvað útlitið varðar eru þær mjög líkar. Nepja hefur styttri vaxtartíma og er harðgerðari en repja. Nepja er því talin öruggari í ræktun á norðlægari slóðum þrátt fyrir að repja skili alla jafna mun meiri uppskeru. Á heimsvísu er repja mun meira ræktuð en nepja en repja er með algengustu olíujurtum heims. Olían af nepju er alla jafna talin af síðri gæðum til manneldis en af repju. Hægt er að fóðra svín með uppskeru olíujurta án þess að pressa olíuna úr fræinu. Við pressun fæst annars vegar olía og hins vegar kaka (sem áður hefur verið kölluð hrat). Olían nemur um 1/3 og kakan 2/3 af uppskerunni. Olíuna má meðal annars nýta til manneldis en kökuna má nýta sem próteinhráefni í fóður. En talsvert er af repjuköku og repjumjöli í kjarnfóðuruppskriftum fyrir nautgripi. Repjukaka, úr íslenskri uppskeru, eftir eina umferð í kaldpressun er um 30% prótein en um 10% fita. Kökuna má þannig nýta beint í heilfóðurblöndu en huga þarf að magni kökunnar svo fituhlutfallið verði ekki of hátt í heildarfóðri gripa. Mögulegt er að minnka fituhlutfallið í kökunni enn frekar með því að pressa kökuna og nýta hita við pressun. Umhleypingar, frostlyftingar, snjór og klaki eru þættir sem hafa áhrif á vetrarlifun olíujurta. Niðurstöður rannsókna á vegum Jarðræktarmiðstöðvar LbhÍ bentu til þess að sáðtími og haustáburður hafði áhrif á vetrarlifun, vaxtarhraða og uppskeru. Bornir voru saman þrír sáðtímar á vetrarnepju á Hvanneyri 2021-22, ljóst var að vori að afföllin voru talsvert meiri hjá fyrri sáðtíma (8. júlí). En þær plönturnar sem eftir stóðu fengu því meira rými til vaxtar og urðu því mun stærri og með fleiri hliðarsprota. Plöntum sem sáð var seinna (28. júlí) voru talsvert fleiri í hverjum reit, grennri og hærri samanborið við fyrri sáðtíma. Engar plöntur lifðu veturinn sem sáð var 18. ágúst. Niðurstöðurnar sýndu að plöntur sem fengu mismunandi sáðtíma meðferð urðu fullþroska á sama tíma haustið eftir. Fjöldi vaxtardaga fyrir fyrri sáðtímann var því 476 dagar en fyrir seinni 453 dagar, því munaði rúmum þremur vikum á vaxtartímanum. Þessar niðurstöður eru sambærilegar þeim sem finnast erlendis. Marktækur munur var á allflestum gæðaeiginleikum sem mældir voru en einungis munaði 0,2 tonn þe/ha í uppskeru á milli sáðtíma. Svo virðist sem plönturnar úr fyrri sáðtíma hafi náð að bæta upp fræuppskeru með því að nýta plássið en kom það verulega niður á gæðum uppskerunnar. Repja og nepja eru kjörin til skiptiræktunar við korn og túnrækt. Stólparætur repjunnar brjóta jarðveginn á annan hátt en trefjarætur grastegunda. Sem tvíkímblöðungar veita olíujurtir þann möguleika að verjast ágangi einkímblöðunga í ræktun með varnarefnum, helst ber að nefna húsapunt. Varast skal einnig að rækta káltegundir eins og repju og nepju á sama stað lengi þar sem kálflugumaðkurinn getur auðveldlega grandað allri uppskeru í akri. Hálmur olíujurta er góður undirburður en talinn steinefnaríkur og því gæti verið til bóta að skilja hann eftir til jarðvegsbóta en kanna má möguleika að nýta hann sem steinefnahráefni í fóðuruppskriftir. Þó að möguleikar á olíujurta- ræktun hér á landi séu talsverðir og eftirspurn olíu og próteins til staðar, þá er úrvinnsluþátturinn helsta hindrun í vegi stórfelldrar ræktunar. Því ljóst er að olíujurtum líður vel í íslenskri jörð. Sunna Skeggjadóttir og Hrannar Smári Hilmarsson, starfsmenn Jarðræktar- miðstöðvar LbhÍ. Sunna Skeggjadóttir. Hrannar Smári Hilmarsson. Olíujurtir í blóma á Hvanneyri. Mynd / Þóroddur Sveinsson Á FAGLEGUM NÓTUM Komdu við í sýningarsalinn okkar að Krókhálsi 9 eða skoðaðu úrvalið og kynntu þér kosti langtímaleigu á sixtlangtimaleiga.is. Einnig getur þú haft samband við viðskiptastjóra Sixt í síma 540 2222 eða á vidskiptastjori@sixt.is B irt m eð fyrirvara um m ynd- og textabrengl. Innifalið í langtímaleigu: Þjónustuskoðanir Tryggingar Hefðbundið viðhald Vetrardekk DekkjaskiptiBifreiðagjöld (Tesla Model Y bíður eftir þér!) Brostu hringinn! Verð: 149.600 kr. á mánuði Verð: 149.600 kr. á mánuði. Bændablaðið kemur næst út 24. ágúst Hér má sjá samanteknar niðurstöður tilrauna síðustu ára fyrir þrjár gerðir olíujurta Þurrefni % Rúmþyngd g/dL Þúsundkornaþyngd g Uppskera Tonn þe/ha Olíuhlutfall % Tonn olía/ha Tonn repjukaka/ha Vetrarnepja 59 - 78 64 - 69 2,7 - 3,0 0,4 - 3,3 31 - 36 0,1 - 1,0 0,2 - 1,8 Vetrarrepja 57 - 78 55 - 67 3,2 - 5,2 1,4 - 5,6 36 - 43 0,5 - 2,4 0,8 - 3,2 Vornepja 57 - 88 58 - 68 - 0,8 - 2,3 38 - 46 0,4 - 1,1 0,4 - 1,2

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.