Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
Suðurhrauni 12b - 210 Garðabæ | 545 4600 | metal@metal.is
LÁGAFELL VERSLUN OG BYGGINGAR EHF
VÖLUTEIGUR 4, 270 MOSFELLSBÆR
WWW.LAGAFELLVERSLUN.IS
846 7014 – 895 4152
Sérstyrkt fyrir íslenskar aðstæður - 24 ára reynsla á Íslandi
SERRALUX
Gróðurhús og yndisreitir í miklu úrvali
Aukaársfundur
Rafrænt stjórnarkjör
Aukaársfundur Lífeyrissjóðs bænda
niðurstöður rafræns stjórnarkjörs og tillögur
um breytingar á samþykktum sjóðsins.
Rafrænt stjórnarkjör fer fram dagana 21. – 28. ágúst n.k.
Framboðsfrestur er til og með 3. ágúst 2023.
Tillögur um breytingar á samþykktum Lífeyrissjóðs bænda
LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA
Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík
s. 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is
Bændasamtök Íslands (BÍ), í
samstarfi við Hampfélagið, lögðu
nýlega fram könnun sem er opin
öllum áhugasömum til 15. ágúst.
Könnunin er aðgengileg á
heimasíðum og samfélagsmiðlum
félaganna, bondi.is og hampfelagid.is.
Hamprækt á Íslandi er fjarlæg
hugmynd í augum margra en það
var kartaflan líka þegar hún var fyrst
kynnt fyrir Íslendingum fyrir þremur
öldum. Enginn hefur farið varhluta
af kartöflum. Það er ærin ástæða til
að trúa á að iðnaðarhampur geti orðið
að nýrri „kartöflu“ fyrir íslenskan
landbúnað. Sú ímynd af hampi sem
náð hefur að skjóta hvað dýpstum
rótum hérlendis er væntanlega
sprottin frá Bandaríkjunum á tímum
hippanna en þá fékk hampurinn orð á
sig fyrir að vera eiturlyf. Allur annar
ávinningur hampplöntunnar féll
þar með í skugga þessara
heilasljóvgandi áhrifa og þannig
hefur það bara verið.
Mikið vatn hefur runnið til
sjávar og í dag hafa vísindamenn
náð orðstír hampsins aftur til vegs
og virðingar. Það er nefnilega
fjölmargt sem hampplantan getur
gefið okkur. Sumir segja að hampur
sé eina plantan sem æðri máttarvöld
hafi ætlað manninum því hún veitir
flest það sem mannveran þarfnast.
Fyrir utan afurðir eins og trefjar
í föt, stöngla í steypu og olíur til
heilbrigðis má nefna jarðvegsbæti
og kolefnisbindingu.
Ýmsir frumkvöðlar hafa prófað
að rækta iðnaðarhamp hérlendis og
er árangurinn misjafn, rétt eins og
við var að búast; því þekking og
reynsla er mislangt á veg komin.
Þeirmsem hafa náð tökum á
ræktuninni hefur þó tekist að sýna
fram á að ræktunin er auðveldari en
marga hefði grunað. Áskorunin nú er
að skilgreina viðráðanleg markmið
og finna viðeigandi markað fyrir þá
afurð sem ætlunin er að rækta. Þá
þarf að vita hvaða möguleikar eru
fyrir hendi; hvar, hve mikið og fleira
eftir því.
Tilgangur könnunarinnar er að
safna upplýsingum til greiningar á
núverandi stöðu iðnaðarhampræktar
hérlendis og kanna mögulegt
umfang hampræktar út frá því. Með
viðunandi fjölda svara úr könnuninni
má reikna með að hægt verði að
áætla hvar á landinu sé mestur áhugi
á hamprækt, hvaða landkostir eru
til umræðu, flatarmál mögulegs
ræktunarlands og ytri skilyrða og
upp úr þeim gögnum má til dæmis
gera útreikning á mögulegu framboði
hráefnis og setja í samhengi við
vaxandi eftirspurn.
Könnunin er gerð til að vinna
að framgangi iðnaðarhampræktar
á Íslandi.
Hlynur Gauti Sigurðsson,
sérfræðingur hjá BÍ og
félagsmaður í Hampfélaginu og
Þórunn Þórs Jónsdóttir,
stjórnarformaður og einn af
stofnendum Hampfélagsins.
Hamprækt á
Íslandi?
Hlynur Gauti
Sigurðsson.
Þórunn Þórs
Jónsdóttir.