Bændablaðið - 20.07.2023, Page 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
Góður hamborgari á allar sínar
vinsældir skilið, en er samt auðvitað
bara hamborgari hversu mikið
sem góðir auglýsingamenn vilja
telja okkur trú um að einhverjir
hafi klofið atómið yfir steiktum
borgara.
Að elda hamborgara tengist ekkert
geimvísindum, og allir ættu að klóra
sig fram úr því verkefni með bravör.
Hamborgarinn er einmitt vinsæll á
sumrin vegna þess hversu einfalt
og fljótlegt er að hrista hann fram
úr erminni fyrir fjölda fólks heima,
í útilegunni eða í sumarbústaðnum.
Persónulega finnst mér skemmti-
legast að poppa borgarann ögn upp
með heimagerðum góðum sósum
og meðlæti og síðast en ekki síst að
sleppa kryddblöndunni sem heitir
hamborgarakrydd og nota bara gott
salt og nýmulinn svartan pipar. Það
er auðvitað ekkert að því að nota
svona bleika sósu úr brúsa. En það
er líka mjög auðvelt að gera eigið
majones með skemmtilegu bragði.
Eða einfaldlega að taka gott majones
úr búðinni og krydda eftir eigin
smekk. Svo má líka nota alls kyns
súrsað grænmeti sem brýtur upp
bragð og áferð. Klassískur borgari
er gerður úr góðu nautakjöti og þarf
að innihalda a.m.k. 20% fitu sem
gefur bragð og mýkt. Borgarana má
auðvitað gera frá grunni með því
að hakka hráefnið og forma í góð
buff, en víða má líka finna góða
hamborgara. Lesið bara vel smáa
letrið, því íslenskar umbúðir, fánalitir
o.fl. er engin trygging fyrir íslenskum
uppruna kjötsins. Við byrjum á því að
gera majones, sem við síðan deilum
í tvær sósur, aðra á hamborgarann,
og hina til að dýfa kartöflunum í.
Við gerum svo franskar kartöflur frá
grunni og síðast en ekki síst steikjum
við borgarann og berum fram ásamt
hefðbundnu meðlæti og súrsuðum
gúrkum.
Majones uppskrift
2 eggjarauður
1 tsk. salt
2 msk. sítrónusafi
1 msk. hvítvínsedik
½ lítri olía
Þeytið eggjarauður með salti þar til
eru orðnar léttar og ljósar, pískið
sítrónusafa og ediki saman við þar til
þykknar, pískið síðast olíunni saman
við í mjórri bunu. Má gera í skál
með handpísk, í hrærivél eða með
töfrasprota. Grunnuppskriftina má
svo krydda til og frá, teygja og toga.
Jalapeno majones
3 msk. súrsað jalapeno
3 dl majones
Salt
Saxið fínt eða maukið jalapeno
og blandið saman við majonesið,
smakkið til með salti.
Chipotle sósa fyrir franskar kartöflur
1 msk. chipotle mauk ( Chipotle er
reyktur chilipipar)
2 dl majones
1 dl grísk jógúrt
Sítrónusafi
Salt
Blandið saman í skál og smakkið til
með sítrónusafa og salti.
Súrsaðar gúrkur
2 dl eplaedik
150 g sykur
2 dl vatn
1 tsk. salt
2 tsk. fennelfræ
1 tsk. kóríanderfræ
Setjið allt nema gúrkur í pott og látið
suðuna koma upp, skerið gúrkur í
jafnstórar sneiðar eða bita eftir smekk
og setjið í tandurhreina krukku eða
annað ílát með loftþéttu loki. Hellið
heitum vökvanum yfir og lokið.
Tilbúið eftir 2 klst. en getur
geymst vikum og mánuðum saman
í kæli. Sama uppskrift gildir
jafnvel fyrir annað súrsað eins og
lauk, smátómata, sveppi, hvönn,
skessujurt o.s.frv.
Steikarfranskar
3-4 bökunarkartöflur
Olía
Salt
Steikarfranskar eru alla jafna gróf-
skornar og taka því lengri tíma í
eldun en þær sem við sjáum oftast
á skyndibitastöðum. Auðveldlega er
þó hægt að keypt tilbúnar kartöflur,
og líka nota ofninn frekar en að
djúpsteikja. Fyrir þá sem vilja prófa að
gera franskar frá grunni má endilega
fylgja leiðbeiningunum. Athugið að
franskar kartöflur eru alltaf tvísteiktar,
Skerið kartöflurnar í um 1x1 cm
strimla og setjið í kalt vatn. Látið
liggja í vatninu í a.m.k. klukkustund.
Skolið vel tvívegis í miklu vatni
og þerrið á viskastykki. Hitið olíu í
djúpsteikingarpotti í 130 °C og steikið
kartöflurnar í 5–6 mínútur. Setjið til
hliðar og steikið síðan aftur rétt áður
en hamborgarinn fer á pönnuna. Nú
í 180 °C heitri olíu þar til þær verða
gullinbrúnar, takið úr pottinum, saltið
vel og berið fram.
Hamborgari með jalapeno
majonesi, sultuðum gúrkum,
steikarfrönskum og chipotle sósu
4 stk. 120 g hamborgarar
Ostur í sneiðum, Cheddar-ostur
hentar best.
Hamborgarabrauð
Salatblöð
Tómatar í sneiðum
Agúrkur í sneiðum
Sneiddur laukur
Salt og nýmulinn pipar
Steikarfranskar
Saltið borgarana og steikið
eða grillið, snúið þeim við
þegar kjötsafinn myndar polla á
yfirborðinu, piprið og setjið ostinn
á. Hitið brauðin og berið fram með
nýsteiktum kartöflunum, grænmeti,
sósum og súrsuðum gúrkum.
Verði ykkur að góðu!
MATARKRÓKURINN
Hamborgari
– með heimagerðum sósum og frönskum kartöflum
ERFINGJAR LANDSINS
Setja skal inn tölur frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt
- og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins
Þung Þyngst
Létt Miðlungs
Hafliði Halldórsson
haflidi@icelandiclamb.is
Útilega & hestaferðir skemmtilegast
Hún Lilja Sól Favour
Kristbjörnsdóttir er
hress og kát stúlka
að norðan, sem hefur
áhuga á íþróttum og
hestamennsku.
Nafn: Lilja Sól Favour
Kristbjörnsdóttir.
Aldur: 11 ára.
Stjörnumerki: Fiskar.
Búseta: Sigtún.
Skóli: Hrafnagilsskóli.
Skemmtilegast í
skólanum: Heimilisfræði,
myndmennt og smíðar.
Áhugamál: Hestamennska,
fótbolti, körfubolti og
frjálsar.
Tómstundaiðkun: Fótbolti,
körfubolti og frjálsar.
Uppáhaldsdýrið: Hestur.
Uppáhaldsmatur: Tortilla.
Uppáhaldslag: Copines með Aya
Nakamura.
Uppáhaldslitur: Blár.
Uppáhaldsmynd: The Addams
Family.
Fyrsta minningin: Þegar ég fór í
göngutúr á Ítalíu og sá flottan turn.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú hefur gert: Fara í útilegu og
hestaferð.
Við hvetjum sem flesta til að hafa samband ef ykkur langar að vera með!
sigrunpeturs@bondi.is