Bændablaðið - 05.10.2023, Page 7

Bændablaðið - 05.10.2023, Page 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023 Kennsla í soðgerð á myndrænan hátt. LÍF&STARF Það má segja, að varla vænti maður póstsendinga. Þær enda strjálast svo, að einungis annan og þriðja hvern dag þurfi að kíkja í kassann. Við erum enda búin fyrir giska löngu síðan að frábiðja okkur allar ruslpóstsendiingar. Sú var tíðin í sveitinni hér á árum fyrr, að mikil eftirvænting ríkti á póstsendingardögum. En sem betur fer er þó alltaf einhvers að vænta. Nú á dögunum barst póstsending frá Davíð Hjálmari Haraldssyni, hagyrðingi og skáldi á Akureyri. „Áttunda Davíðsbók“ hins ástsæla hagyrðings, fagurlega árituð af höfundi með svofelldum hætti: Viltu, kæri Geirhjörtur og góði, göfgi, spaki, víðsýni og fróði, af dálki þínum drjúgum eyða bút í Davíðsbók sem nú er komin út. Bókin geymir mestan part ljóð, en einnig stökur, spökur sem og þýðingar. Það sem af er lestri, sannfærist ég fyrir fullt og fast, að Davíð er einn af mínum uppáhaldshöfundum. Bókin er hreint gersemi og eiguleg öllum þeim sem eitthvað fást við ljóðalestur og vísna. Fyrst ber fyrir fallegt ljóðkorn sem Davíð nefnir „Eftirgjöld“: Haustið með hélusvala hrifsar af sumri völdin, leggur svo leigugjöldin á lundina, hól og bala. Haustið með stolti stilltu strýkur á víði kollinn, heimtir af honum tollinn; handfylli af laufi gylltu. Náttúruljóðin eru hrein orðsnilld, eins og til dæmis þetta: „Þú kemur“. Þú kemur hér, vængjalétt vorið, að vestan og austan og sunnan og glettist við rifsberja runnann og reyninn, svo kelið og þorið. Þú kemur með vætu og vinda, ferð vermandi höndum um stráin svo lifna við blómsef og bláin en blæfuglar leika við tinda. Nú vonglaður víðirinn brumar og varpþröstur syngur í birki. Um miðnætti mansöng þér yrki. Að morgni þú breytist í sumar. Davíð býr yfir fullkominni þekkingu á bragar- háttum. Undir fornyrðislagi er þessi vísa: Liðið er sumar, lengjast nætur. Hrollkaldir vindar hækka róminn. Síðasta rósin sölnuð fellur. Fargestir fleygir flognir brott. Mjúklátur maðkur í mold er skriðinn. Hlaupa úr holu heim til bæja skæreygar mýs og skotti prýddar. Voldugur vetur við völd er sestur. Náttúrustökur fylla svo þátt þessa einstaka hagyrðings, Davíðs Hjálmars Haraldssonar: Klæða lindir svalblá svell, sofa björk og heggur. Sólin létt á Fálkafell fölan vanga leggur. Heilsar jörðu kolbrýntkvöld, kveikir ljós í skugga. Drottinn heiðblá himintjöld hengir fyrir glugga. Hlíðarfjall nú hlær við sól, hlákublátt um vanga. Undir fölum fannakjól felur svarta dranga. Semur ljóð um rós og reyni rámur hrafn á svörtum kjól. Grýlukerti á Gráasteini grætir brosmild páskasól. Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggd1@gmail.com MÆLT AF MUNNI FRAM Vefbókin Matreiðsla var gefin út fyrir skemmstu hjá Iðnú útgáfu. Um nýjung er að ræða í útgáfu matreiðslubóka á Íslandi, því aldrei hefur jafn viða- mikið námsefni í matreiðslu verið gefið út í einu riti. Bókin er ætluð til kennslu á fyrsta þrepi matvælabrauta en er jafnframt hugsað fyrir almenning, en farið er vel yfir grunnþætti matreiðslu. Útgáfuhóf var haldið miðvikudaginn 27. september í bókabúð IÐNÚ í Brautarholti 8, þar sem gestum var gefið tækifæri til að ræða við höfunda, kynna sér vefbókina og gæða sér á léttum veitingum. Það eru nokkrir kennarar í Menntaskólanum í Kópavogi sem standa á bak við útgáfuna og hefur mikið verið lagt upp úr því að gera kennsluefnið aðgengilegt, myndrænt og lifandi. Í bókinni eru einnig myndir af ýmsum aðferðum sem matreiðslumenn þurfa að kunna, sýndar skref fyrir skref – hvort sem það er soðgerð eða þrif á vinnuborði. Karl Petersson tók ljósmyndir fyrir bókina og gerði einnig myndbönd, gagnvirkar orðskýringar og verkefni. Hægt er að kaupa aðgang að vefbókinni á slóðinni vefbok.is. /smh Vefbókin Matreiðsla – Aldrei áður verið gefið út jafn viðamikið efni um matreiðslu Trausti Víglundsson framreiðslumeistari og stjórnar- meðlimur Iðnaðarmannafélagsins, og Valgerður Haraldsdóttir, verslunarstjóri IÐNÚ bókabúðar. Ragnar Wessman, matreiðslumeistari og fyrrv. kennari, sagði frá hvernig verkið varð til. Myndir / IÐNÚ Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri IÐNÚ, útgáfu ávarpaði gesti. Úrbeinað lamb. Veitingar frá LUX veitingum. Dýrfinna Guðmundsdóttir, rit- og verkefna- stjóri IÐNÚ útgáfu. Úrbeinuð rjúpa.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.