Bændablaðið - 05.10.2023, Síða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
Undanfarna mánuði hefur verð á hrávörum á
heimsmarkaði farið lækkandi eftir gífurlegar
verðhækkanir árið 2022. Enn er verðið þó langt
fyrir ofan það sem það var árin 2015–2019, fyrir
heimsfaraldur.
Umtalsvarðar lækkanir hafa verið á jarðgasi
og hveiti svo dæmi séu nefnd. Þessi verðþróun
endurspeglar bættar framboðshorfur og ný
viðskiptatengsl. Rússar beina nú útflutningi sínum
á jarðefnaeldsneyti frá Evrópu til Kína, Indlands
og annarra landa. Gert er ráð fyrir að hrávöruverð
haldist lítið breytt út þetta ár og fram á það næsta
samhliða bættum framboðshorfum og samdrætti
í eftirspurn á heimsvísu.
/USS
Verðlækkun á erlendum
hrávörumörkuðum
Vísitala kornverðs Alþjóðabankans lækkaði um tæp 5% á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs en er enn tveimur þriðju yfir
meðaltali sínu fyrir heimsfaraldurinn 2015-2019.
Á fyrsta ársfjórðungi var hveitiverð 100 prósent yfir
meðaltali áranna 2015-19 og verð á maís var 80 prósent
hærra. Lækkun kornvöruverðs árið 2023 er knúin áfram
af opnun viðskipta með korn frá Úkraínu um Svartahaf
(sem nú er lokað fyrir) og góð uppskera í öðrum helstu
framleiðslulöndum.
Verð á próteinafurðum hefur verið nokkuð stöðugt á þessu
ári og er um 52% yfir meðaltali áranna 2015-2019.
Heimsmarkaðsverð á hrávörum í fóður
Vísitala áburðarverðs Alþjóðabankans lækkaði um 18
prósent árið 2022 en er enn vel yfir meðaltali áranna 2015-
2019, að hluta til vegna minni birgða í kjölfar innrásar Rússa
í Úkraínu og viðskiptatakmarkana sem fylgdu í kjölfarið.
Síðustu mánuði hefur verð á áburði farið lækkandi. Einkum
á áburði sem framleiddur er úr jarðgasi, svo sem UREA,
en áburður sem fæst við námuvinnslu, svo sem DAP og
MOP, hefur lækkað minna. Þrátt fyrir lækkun á áburði eru
bændur enn að draga úr notkun áburðar.
Gert er ráð fyrir að áburðarefni lækki um allt að 37% á þessu
ári og gert áfram ráð fyrir 7% lækkun árið 2024. Lækkunin
næstu mánuði verður knúin áfram af auknum stöðugleika
í framboði og lækkandi orkuverði.
Heimsmarkaðsverð á áburði
Verð á innfluttum hrávörum í fóður fylgir að mestu sömu þróun og
hefur verið á heimsmarkaðsverði.
Sveiflur er þó ekki alveg sambærilegar sem skýrist líklega af
framvirkum innkaupasamningum. Sú gífurlega hækkun sem varð
árið 2022 hefur nú að mestu gengið til baka.
En fóðurverð er enn þá hátt og er nú um 30-40% hærra en það var
fyrir heimsfaraldurinn.
Innflutningur á hrávörum í fóður
Heimsmarkaðsverð
á áburðarhráefnum
Verð í ágúst 2023 ásamt
12 mánaða verðbreytingu
N (Urea) 56 kr/kg
↓-36%
P (DAP) 77 kr/kg
↓-33%
K (PC) 52 kr/kg
↓-65%
Heimsmarkaðsverð
á hrávörum í fóður
Verð í ágúst 2023 ásamt
12 mánaða verðbreytingu
Hveiti 46 kr/kg
↓-17%
Maís 30 kr/kg
↓-36%
Soja 75 kr/kg
↓-4%
Innflutningsverð á
hrávörum í fóður
Verð í ágúst 2023 ásamt
12 mánaða verðbreytingu
Hveiti 44 kr/kg
↓-28%
Maís 46 kr/kg
↓-20%
Soja 81 kr/kg
↑3%