Bændablaðið - 05.10.2023, Side 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023
Hafin er skipuleg söfnun upplýsinga
um hvar mengaðan jarðveg er
að finna á Íslandi og þær birtar
á gagnvirku kort hjá Umhverfis-
stofnun (UST). Kallað er eftir
aðstoð almennings.
Á kortinu hafa nú þegar verið
merktar margar miltisbrandsgrafir
um allt land, riðugrafir, urðunarstaðir,
gamlir sorphaugar, ruslabrennslustaðir
og olíumengun, m.a. frá skipsflökum.
UST er í sérstöku átaki varðandi
að safna upplýsingum frá almenningi
um menguð svæði á landinu og
koma þeim inn á kortið. Hægt er að
senda upplýsingar með því að skrá
sig inn með rafrænum skilríkjum
eða senda inn nafnlausar ábendingar.
Almenningur getur ekki séð nöfn
þeirra sem hafa sent inn ábendingar
undir nafni.
Ábendingar frá almenningi
streyma inn
Að sögn Kristínar Kröyer, sérfræðings
í teymi mengunareftirlits og
umsjármanns verkefnisins hjá UST,
vonast stofnunin til að geta fengið sem
heildstæðasta mynd af menguðum
svæðum á landinu öllu.
„Viðbrögðin við verkefninu hafa
ekki látið á sér standa, fólk er almennt
mjög ánægt með þetta og ábendingar
hafa streymt inn,“ segir Kristín og
bætir við að stofnunin hafi ekki haft
undan við að yfirfara þær ábendingar
sem borist hafa.
Mikilvægi slíkrar gagnasöfnunar
virðist ótvírætt. „Gögnin sem koma út
úr þessu verkefni eru mjög mikilvæg
bæði þegar kemur að skipulagsvinnu en
þó sérstaklega fyrir komandi kynslóðir
til að hafa aðgang að upplýsingunum
síðar meir,“ segir Kristín. „Þessar
upplýsingar nýtast sem dæmi beint
í skipulagsvinnu sveitarfélaganna,
sem bakgrunnsupplýsingar fyrir
ráðgjafa sem vinna að rannsóknum
eða hreinsunaraðgerðum á menguðum
svæðum og komandi kynslóðum til að
hafa yfirsýn yfir menguð svæði,“ segir
hún enn fremur.
Mikilvægt að fá upplýsingar
áður en þær glatast
UST óskar eftir öllum ábendingum um
hvar mengun sé að finna. Til dæmis um
riðu- og miltisbrandsgrafir, hvar olía
hefur lekið í jörð eða verið grafin, um
urðunarstaði þar sem úrgangur hefur
verið grafinn eða brenndur, gamlar
bensín- og smurstöðvar, brennur,
geymslur fyrir hættuleg efni þar sem
þau kunna að hafa lekið út, skotvelli,
gamlar spennistöðvar og staði þar sem
skip hafa verið í viðhaldi og niðurrifi.
Mikilvægt sé að skrá eins mikið af
upplýsingum um mengaðan jarðveg
og hægt er áður en þær glatist.
Íslenskt heilbrigðiseftirlit og UST
vinna í sameiningu að því að setja
upplýsingarnar í gagnagátt um þekkt
menguð svæði og svæði þar sem
grunur er um mengun og þar með í
gagnvirka kortið. Undanfarið hafa
verið kynningarfundir víða um land
á verkefninu.
Því ber að halda til haga að Sigurður
Sigurðarson dýralæknir safnaði, ásamt
konu sinni, Ólöfu Erlu Haraldsdóttur,
upplýsingum um miltisbrunagrafir á
Íslandi. Árið 2017 hóf Sigurður að
merkja allar miltisbrunagrafir sem
hann vissi um á landi. Allar götur síðan
hafa verið að koma fram upplýsingar
um áður óþekktar grafir og eru þær
fjölmargar. /sá
LÍF&STARF
Mengun:
Fólk hvatt til að láta vita
af menguðum jarðvegi
– Upplýsingar um mengunarstaði birtar á gagnvirku korti
Skjáskot af mengunarkortinu. Mynd / UST
Umhverfisstofnun og heilbrigðiseftirlit landsins biðja almenning nú að veita
upplýsingar um hvers kyns mengun í jarðvegi. Mynd / Pixnio
Kristín Kröyer.
STÁLGRINDARHÚS
STÖÐLUÐ
Stærðir: 80m², 150m², 250m² og 350m²
Stálgrindin er heitgalvaniseruð og er sérsmíðuð fyrir íslenskar aðstæður. Húsin standast
mestu snjó-og vindálagskröfur sem gerðar eru í byggð á Íslandi og henta því sem geymslu-
og vélaskemmur í öllum landshlutum. Húsunum fylgja allar nauðsynlegar teikningar til að fá
byggingarleyfi ásamt teikningum af grunni og vinnuteikningum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
Það verður mikið um að vera
í reiðhöllinni Skeiðavangi á
Hvolsvelli laugardaginn 14. október
á „Degi sauðkindarinnar í Rangár-
vallasýslu“ á vegum Félags
sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu.
Fjáreigendur milli Þjórsár og
Markarfljóts mega mæta með fé til
sýningar en dómar byrja klukkan 10
og sýningin sjálf klukkan 13.
Verðlaun verða veitt fyrir besta
hyrnda lambhrútinn, besta kollótta
lambhrútinn, bestu kollóttu
gimbrin og bestu hyrndu gimbrina.
Einnig verða verðlaun fyrir besta
veturgamla hrútinn úr kynbótamati
ársins 2022 og bestu fimm vetra ána
úr kynbótamati ársins 2022.
Auk þess verður ræktunarbú
ársins 2022 verðlaunað og sérstök
verðlaun verða fyrir þykkasta
bakvöðva sýningarinnar. Áhorfendur
fá síðan að velja litfegurstu
gimbrina úr lömbum sem taka þátt
í litasamkeppni dagsins. SS styrkir
sýninguna með því að gefa gestum
kjötsúpu. /MHH
Dagur sauðkindarinnar
FRÉTTIR
Allir eru velkomnir á Dag sauð-
kindarinnar, sem haldin verður
hátíðlegur á Hvolsvelli laugardaginn
14. október. Mynd / MHH
RARIK í nýju og glæsilegu
húsnæði á Selfossi
Þann 23. júní í sumar flutti
RARIK starfsstöð sína á Selfossi
í nýtt húsnæði við Larsenstræti 4.
Húsið og aðstaðan er öll hin
glæsilegasta en nýja aðstaðan felur
meðal annars í sér bætt vinnuskilyrði
starfsfólks og hagræði fyrir reksturinn
sem framvegis verður á einum stað í
stað tveggja áður. Þá er þess vænst
að sameinuð starfsstöð skapi gott
nútímalegt vinnuumhverfi og auðveldi
starfsfólki að þjóna viðskiptavinum
fyrirtækisins enn betur í framtíðinni.
Húsið er um 1.500 fermetrar að stærð
en lóðin öll er um 6.000 fermetrar,
sem felur í sér stórt athafnasvæði,
stóran lager og rúmgott þjónusturými.
Þá er sérstakt aðstöðuhús fyrir
kerrur og rafstöðvar, hjólageymsla
fyrir reiðhjól starfsmanna, þvottaplan
fyrir bíla, búningsklefar fyrir karla og
konur og aðgengi fyrir hjólastóla er
mjög gott. Um 40 starfsmenn RARIK
á Suðurlandi vinna í húsinu en
fyrirtækið er líka með um 20 manna
starfsstöð á Hvolsvelli. /MHH
Nýja RARIK húsið er við Larsenstræti á Selfossi. Mynd / MHH