Bændablaðið - 05.10.2023, Side 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023
Á ársfundi Byggðastofnunar,
sem haldinn var í lok apríl sl.,
var Halldóra Kristín Hauksdóttir
settur nýr stjórnarformaður,
eftir fjögurra ára setu sem vara-
formaður stjórnar.
Halldóra Kristín, sem er starfandi
lögfræðingur velferðarsviðs Akur-
eyrar, stendur einnig vaktina sem
bæði eggjabóndi í Sveinbjarnargerði
á Svalbarðsströnd og formaður Félags
eggjabænda auk þess að vera í stjórn
Bændasamtaka Íslands.
„Hjá Bændasamtökunum hef ég
átt kost á því að taka þátt í og móta
þær mikilvægu breytingar sem þar
hafa átt sér stað,“ segir Halldóra.
„Mér hefur fundist ánægjulegt að
horfa á þær verða að veruleika og sjá
samtökin vaxa og dafna – verða aftur
raunverulegur málsvari allra bænda á
Íslandi.“ Bendir hún á að sameinaðir
séu bændur svo miklu sterkari heldur
en hver grein í sínu horni. Íslenskur
landbúnaður sé burðarás er kemur að
búsetu fólks í dreifðum byggðum auk
þess að vera sú atvinnugrein sem snýst
um að yrkja landið og rækta dýr og
grænmeti til manneldis eða annarra
nytja. Hver framtíð og þróun íslensks
landbúnaðar verður, er háð þeim
starfsskilyrðum sem ríkisvaldið skapi.
Yfirgripsmikil og
kostnaðarsöm aðgerð
Nýverið gekk í gildi reglugerð þess
efnis að allar hænur skyldu hafðar
í lausagöngu og vinnur nú Matvæla-
stofnun að úttekt allra búa sem hafa
starfsleyfi til frumframleiðslu eggja.
Er þetta mikill áfangi sem hefur dregist
heldur lengi, en Evrópusambandið
innleiddi kröfuna árið 2012.
Aðspurð segir Halldóra ágætlega
hafa verið tekið í þessa skipan í
hópi eggjabænda, en þó sé um
bæði stórfellda og kostnaðarsama
framkvæmd að ræða á húsnæði þeirra.
Hefur skipunin því miður orðið til
þess að minni framleiðendur hafi hætt
búskap vegna þess mikla kostnaðar
sem af henni leiddi, en starfandi
eru eggjabændur alls tólf talsins.
Með það í huga verður að benda
á að til viðbótar hafi nú öll aðföng
við framleiðslu hækkað verulega
og nær ómögulegt er að eggjaverð
haldist óbreytt þó tilmæli sé um slíkt
frá ráðamönnum. Eggjaframleiðslan
sem slík sé hins vegar í góðu gengi
og það helsta sem myndi hafa áhrif á
hana væri ef farið yrði út í breytingar á
tollum. „Heilt yfir tel ég þessa skipan
þó af hinu góða, sérstaklega ef litið
er til dýravelferðar, segir Halldóra,
en í lausagöngunni búa hænurnar við
meira athafnafrelsi, meira rými og
sýna þá frekar sitt náttúrlega atferli.“
Aðbúnaðarskilyrði
og heilbrigði stofns
Það hefur komið fram í umræðunni
að mismunandi fyrirkomulag sé á
breytingum húsnæðis er kemur að
lausagöngu hænsnfugla. Algengust
eru svokölluð pallakerfi þar sem
hreiðrin eru höfð í miðjunni en
fuglarnir fari á milli hæða. Aðrir kjósa
að hafa hluta gólfs upphækkaðan og
þá hefðbundið gólfkerfi á einni hæð.
Halldóra, sem stendur að eggja-
búinu Grænegg í samfloti við mág
sinn og fjölskyldu, er vel kunnug
þessum rekstri. Upphaflega voru
foreldrar hennar eggjabændur og er
gaman að segja frá því að þau voru
fyrst allra í greininni til þess að hljóta
vistvæna vottun fyrir framleiðslu sína.
„Í dag er þessi vistvæna vottun
ekki lengur til, en þeir sem hlutu
hana urðu að uppfylla ákveðin skilyrði
reglugerða um aðbúnað. Einnig voru
hænurnar allar í lausagöngu, sem eins
og áður sagði, í dag er orðin skylda.“
Halldóra var kosin formaður
Félags eggjabænda nú í vor. Telur hún
sérstöðu íslenskra eggjabænda vera
allnokkra og þá helst fólgna í heilbrigði
stofnsins. Vel er staðið að vörnum
gegn sjúkdómum, en innflutningur
varpstofnsins kemur þar við sögu.
„Flutt eru inn frjó egg sem koma frá
erlendu kynbótabúi sem koma síðan
á einangrunar- og útungunarstöð sem
staðsett er á Hvanneyri, en þá fugla
köllum við foreldrafugla. Kynslóðin
sem kemur undan þessum fuglum fer
svo á sérstök bú sem hafa heimild til
að unga út og endurselja eggjabúum.
Þannig erum við í raun með tvöfalt
kerfi sem býður upp á að hægt sé að
bregðast við ef eitthvað kemur upp á.“
Halldóra nefnir einnig hversu vel
sé staðið að eftirliti með fóðri og þá
heilbrigði varpfuglanna. „Eftirlitið
er sérstaklega gott og reglulega tekin
sýni bæði úr fóðri, eggjum og úrgangi.
Bændur fá heimsóknir frá sérfræð-
ingum Matvælastofnunar jafnt
og þétt og þurfa að lúta ströngum
skilyrðum þeirra um heilbrigði
og aðbúnað dýranna, auðvitað með
tilheyrandi kostnaði.“
Allt lagt á borðið
með ávinning að leiðarljósi
Er talið berst að stöðu hennar sem
nýsettum stjórnarformanni Byggða-
stofnunar kemur skýrt fram að hún
hefur brennandi áhuga á málefnum
landsbyggðarinnar. Stefnumótun og
eftirfylgni verkefna þar innan eru
henni ofarlega í huga enda telur hún
Byggðastofnun búa yfir ómetan-
legum mannauð til þess að takast á
við hin ýmsu verkefni.
Hrósar hún samstarfsfólki sínu sem
hún segir afar lausnamiðað og er full
tilhlökkunar varðandi áframhaldandi
samstarf. „Við komumst lengst þegar
við vinnum saman, ræðum málin og
leggjum allt á borðið, með það fyrir
augum að komast að sameiginlegri
niðurstöðu. Það hefur mér fundist
einkenna störf Byggðastofnunar,“
heldur hún áfram. „Að lögð hefur
verið fram góð vinna hjá stjórn og
starfsmönnum stofnunarinnar að
stefnumörkun, sem verður leiðarljós
okkar á næstunni.
En framtíðarsýn stofnunarinnar er
blómleg byggð um land allt.“
Brothættar byggðir
Halldóra tekur skýrt fram að hennar
áherslumál, líkt og hjá forvera hennar,
Magnúsi B. Jónssyni, séu verkefni
tengd eflingu byggðar og atvinnulífs,
enda mikilvægt að tryggja jöfn
tækifæri allra landsmanna til atvinnu
og búsetu.
Sigrún Pétursdóttir
sigrunpeturs@bondi.is
Sameinuð erum við sterkari
– Halldóra Kristín Hauksdóttir tekst á við hindranir sem tækifæri aukinna lífsgæða
Heilt yfir tel ég þessa skipan þó af hinu góða,
sérstaklega ef litið er til dýravelferðar,
en í lausagöngunni búa hænurnar við meira
athafnafrelsi, meira rými og sýna þá frekar sitt
náttúrulega atferli ...“
LÍF&STARF
Halldóra ásamt sonum sínum fyrir utan eggjabú fjölskyldunnar, Grænegg.
Halldóra í góðum hópi hænsnfugla. Myndir / Aðsendar.