Bændablaðið - 05.10.2023, Page 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023
● Meðalskyldleikaræktar-stuðull í
íslenska hrossastofninum er einungis
2,8% og því má reikna með að áhrif
skyldleikaræktarhnignunar séu
hverfandi lítil þegar til heildarinnar
er litið (d ≈ 0).
Væntanlegu árlegu erfðaframför
(ÁE) í stofninum má þá hreinlega
reikna með eftirfarandi formúlu
ÁE = ( is RTI σA + ih RTI σA )/ (Ls
+ Lh ÁE yrði samkvæmt forsendunum
sem eru gefnar hér að ofan:
ÁE = (1,755 x 0,8 x 0.18 + 0,644
x 0,6 x 0,18)/(8 + 12) = 0,016 á
mælikvarða dómstigans.
Eins og sjá má í töflu 1 er
staðalfrávik (σp) aðaleinkunnar 0,30
og 0,016 er því 5% af staðalfráviki
aðaleinkunnar. Þessi ræktunarhraði
samsvarar framförum sem nema
einu heilu staðalfráviki á 20 árum.
Þ.e. meðalkynbótagildi stofnsins
mundi hækka um 0,30 einkunnarstig
aðaleinkunnar á 20 árum vegna
framfara í ræktun samkvæmt þessum
raunhæfu forsendum.
Með BLUP aðferðinni er hægt að
meta raunverulegar erfðaframfarir
og bera þær saman við væntanlega
erfðaframför. Það gerir maður með
því að reikna meðaltöl kynbótamats
viðkomandi eiginleika innan
fæðingarára (og þjóðlanda).
Kynbótamatið er leiðrétt fyrir
kerfisbundnum umhverfisáhrifum
líkansins og þar með öllum
greinanlegum áhrifavöldum á
kvarða dómstigans sem ekki eru
tengdir samleggjandi erfðum. Metin
árleg erfðaframför (ÁE) hrossa
fæddra á Íslandi árin 1971 – 1990
reynist vera 0,006 einkunnarstig eða
2% af staðalfráviki aðaleinkunnar.
Með þeim ræktunarhraða tekur
það 50 ár að hækka meðaltal
stofnsins um 0,30 stig. Samsvarandi
ÁE fyrir tímabilið 1991 – 2010
hefur stigið upp í 0,017 sem
samsvarar 5,6 % af staðalfráviki
aðaleinkunnar. Sá ræktunarhraði
samsvarar 18 árum til að hækka
meðaltal aðaleinkunnar stofnsins
um 0,30 stig.
Allt bendir til að ræktunarhraði
hafi aukist enn meir á síðasta áratug
2011 – 2020 og að nú sé ÁE 0,02 eða
6,7% af staðalfráviki aðaleinkunnar.
Það þýðir að hækkun meðaltals
stofnsins um 0,30 stig taki einungis
15 ár. Ræktunarhraðinn hefur því
rúmlega þrefaldast síðan BLUP
kynbótamatið var tekið í notkun.
Ekki ber að skilja orð okkar að
sá árangur sé einungis vegna
þess að ræktendur hafa aðgang
að BLUP aðferðinni, sem hefur
sannað sig sem besta aðferð sem
stendur til boða sem sakir standa
til þess að vinna upplýsingar úr öllu
gagnasafninu um kynbótadóma og
ætternistengingar. Öll umgjörð
ræktunarstarfsins, sýninga,
dómstarfa, gagnabanki Worldfengs
og þekking dómara, sýnenda og
ræktunarfólks hefur vaxið og batnað
og hefur skilað sér í auknu öryggi
matsins og auknum úrvalsstyrk.
Það er óyggjandi staðreynd að
flestir íslenskir hrossaræktendur
velja til undaneldis hross sem eru
vel yfir meðaltali í kynbótamatinu
og það er lykillinn að hinum öru
erfðaframförum sem hafa náðst
í stofninum á síðustu áratugum.
Nýjar kynbótamatsaðferðir sem
byggjast á erfðamengisúrvali eru í
örri þróun og verða eflaust teknar
til notkunar í hrossaræktinni innan
tíðar.
Ekki er ólíklegt að með því móti
verði róðurinn hertur enn frekar!
Í töflu 2 má lesa kynbótamat
aðaleinkunnar stóðhesta og
hryssna sem eru foreldrar afkvæma
í árgöngum 2010, 2015 og 2020
á Íslandi og til samanburðar
í Þýskalandi, Danmörku og
Svíþjóð. Meðaltal kynbótamats
hvers árgangs innan þjóðlands er
(næstum) það sama sem meðaltal
kynbótamats beggja foreldranna.
Í töflu 2 felst ýmis fróðleikur.
Stærð árganganna hefur minnkað
verulega í öllum löndunum frá 2010
til 2020. Árgangur 2020 er 66%;
78%; 69%; 59% af stærð árgangs
2010 í þessum fjórum löndum (IS;
DE; DK; SE). Það býður upp á vissa
grisjun sem getur verkað jákvætt
á erfðaframför. Ræktun hrossanna
á Íslandi hefur forskot sem nemur
u.þ.b. hálfum áratug miðað við
Danmörku og Svíþjóð og heldur
meira miðað við Þýskaland. Þar
veldur mestu öflugt úrval stóðhesta
og styttra ættliðabil í karllegg á
Íslandi. Stöðugt flæði erfðaefnis frá
Íslandi veldur því að erfðaframfarir
verða ekki teljandi hægari í hinum
löndunum heldur skila þær sér
nokkrum árum seinna.
Mynd 6 sýnir dreifni kynbótamats
aðaleinkunnar hrossa fæddra á
Íslandi, Þýskalandi, Danmörku,
Svíþjóð og Noregi á árabilinu 2010
til 2022. Erfðaframfarirnar valda
því að normaldreifingin er nokkuð
skekkt upp á við og sýna glögglega
hvað stofnstærðin (blái flöturinn)
og öflugt íslenskt ræktunarstarf
hefur skapað mikinn fjölda hrossa
með hátt kynbótagildi.
Vert er að hafa það hugfast
að erfðaefni bestu íslensku
kynbótagripanna nýtist bæði
hrossaræktinni á Íslandi og
erlendis og stuðlar þannig að
framgangi íslenska hestakynsins á
veraldarvísu.
Höfundar, Þorvaldur Árnason og
Elsa Albertsdóttir eru doktorar í
erfða- og kynbótafræði.
Góð smurning
Komdu við á næstu Olísstöð
Góð smurolía eykur endingu véla og dregur úr sliti
og kostnaði við rekstur. Við eigum mikið úrval frá
Texaco, Castrol og Cargo Oil fyrir öll hugsanleg tæki.
Mynd 4.
Mynd 5.
Mynd 6.
1. Ullur frá Hólum IS2015158300
Blup: 123
F: Viti frá Kagaðarhóli
M: Ferna frá Hólum
(mf: Hróður frá Refsstöðum)
Lýsing: Ullur er fyrst og fremst
frábær töltari. Góður ferða- og
reiðhestur með fína fótlyftu.
Ullur er mikið taminn og kann
flestar fimiæfingar. Hentar sem
keppnishestur í léttari flokkum.
Ullur er sterkur, næmur og gæfur
en hentar ekki byrjendum.
Ullur er 144 cm á herðakamb.
Verð: 800.000 kr.
2. Uggi frá Hólum IS2016158300
Blup: 123
F: Eldur frá Torfunesi
M: Ferna frá Hólum
(mf: Hróður frá Refsstöðum)
Lýsing: Uggi er gangsamur,
vakandi hestur og frekar þægur.
Þægilegur útreiða- og ferðahestur
en hentar ekki óvönum.
Uggi er frekar sterkur
og142 cm á herðakamb.
Verð: 800.000 kr.
3. Naskur frá Hólum IS2015158302
Blup: 130
F: Skýr frá Skálakoti
M: Völva frá Hólum
(mf: Vilmundur frá Feti)
Lýsing: Naskur er stór, 149 cm á
herðar, og myndarlegur geldingur.
Rólegur og þægur með góðar
gangtegundir og fína fótlyftu og
kann flestar fimiæfingar.
Naskur hentar byrjendum jafnt
sem lengra komnum í hesta-
mennskunni. Líklegur sem keppnis-
hestur í barnaflokki og hentar líka
lítið vönum knöpum.
Verð: 1.500.000 kr.
4. Íþrótt frá Hólum IS2015258301
Blup: 117
F: Eldur frá Torfunesi
M: Storð frá Hólum (mm: heiðurs-
verðlaunahryssan Ösp frá Hólum)
Sköpulag: 8,09
Lýsing: Íþrótt er efnileg hryssa í
margt. 140 cm á herðar, þægilega
viljug. Gæti hentað í keppni, ræktun
eða sem virkilega góð útreiðahryssa.
Hún kann flestar fimiæfingar.
Hentar ekki byrjendum.
Verð: 1.500.000 kr.
5. Íshildur frá Hólum IS2015258301
Blup: 134
F: Skýr frá Skálakoti
M: Storð frá Hólum
(mm: heiðursverðlaunahryssan
Ösp frá Hólum)
Sköpulag: 8,42
Hæfileikar: 8,32
Lýsing: Íshildur er með mjög góðan
kynbótadóm, 8.36 í aðaleinkunn.
Efni í virkilega gott keppnishross.
Íshildur er með 8,5 fyrir marga
verðmæta eiginleika eins og tölt,
hægt tölt, skeið, brokk, fegurð í reið,
háls-, herða og bógasamræmi o.fl.
Íshildur er þæg, skemmtilega
viljug og þjál. Hún kann flestar
fimiæfingar og er 145 cm á
herðarkamb að stærð.
Verð: 6.000.000 kr.
SÖLUHROSS FRÁ HÓLUM - október 2023
Sala fer í gegnum: Ríkiskaup / eignir - Helenu Rós Sigmarsdóttur s. 863 5125 - netfang: helena@rikiskaup.is